Vísir - 08.09.1961, Blaðsíða 16

Vísir - 08.09.1961, Blaðsíða 16
VISIR Föstudagur 8. september Rættum gatnagerö Á FUNDI bæjarstjórnar í gær var rætt um gatnagerð bæjar- ins. Það kom meðal annars fram : ræðum bæjarfulltrúa, að þeir telja nauðsynlegt fyrir bæinn að hann fái nýjan tekju stofn fyrir gatnagerð. Var rætt um benzínskatt eða hluta hans í bessu sambandi. Gunnlaugur Pétursson var í sæti Geirs Hallgrímssonar, borgarstjóra, sem er í sumar- fríi. Fyrsti haust- • r snjor. Fyrsti liaustsnjórinn sást í fjöllum við Eyjafjörð í fyrra- dag, en þá voru fjallabrúnir gráar í rót. í byggð rigndi mikið aðfara- nótt þriðjudagsns, en snjóaði hinsvegar .til fjalla. Ekki hefir næturfrost komið ennþá á lág- lendi, en í nótt komst hitinn niður í þrjú stig. f morgun er hitinn kominn upp í 5 stig með bjartviðri og sólskini. íslenzkt sælgæti í stórnm stíl á Ameríkumarkað. Linda h.f. á Akureyrí endurbyggir verksmiðjur t því skyni. Súkkulaðiverksmiðjan Linda á Akureyri mun nú hefja útflutning á súkkulaði til Bandaríkjanna, en þar hafa boðizt miklir markaðir. Undanfarin fjögur ár hefir verksmiðjan flutt út súkkulaði til Noregs og Danmerkur. Verks-íniðjan tekur til starfa nú um helg- ina í nýjum húsakynnum. Eyþór Tómasson, eigandi fyrirtækisins, sagði í við- tal við Vísi í morgun að stærð nýja verksmiðjuhússins væri 3000 fermetrar á þrem hæðum, eða samtals 10.300 rúm- metrar. Gamla verksmiðju- húsið, sem Linda hafði fram- leiðslu sína í, var 900 fermetra stórt, en nú hefur Áfengisverzl. ríkisins ikeypt það og flytur þangað með útibú sitt á Ak- ureyri. Eyþór sagði, að Lindaverk- smiðjan nýja væri ekki aðeins langsamlega fullkomnasta verk smiðja sinnar tegundar hér á landi, heldur mætti leita langt út fyrir endimörk landsins að jafn fullkominni súkkulaði- verksmiðju. Vélakosturinn er frá Vestur-Þýzkalandi að lang- mestu leyti, og af fullkomnustu gerð, þannig, að framleiðslan er sjálfvirk að svo miklu leyti sem unnt er. Vísir innti Eyþór eftir því hvort innanlandsmarkaðurinn væri nógu mikill fyrir jafn stórvirkar vélar. Hann svaraði því til, að endurbygging verk- smiðjunnar með margföldum afköstum á við þá gömlu, væri fyrst og fremst miðuð við út- flutning á súkkulaði og sælgæti. Linda byrjaði fyrir fjórum ár- um að flytja út súkkulaði til Danmerkur og síðan til Noregs, eyn nú væri Ameríkumarkaður fyrir hendi og það í svo stórum stíl, að Eyþór kvaðst mundu fullhertur að anna eftirspurn- inni. Hann sagði, að þar væru að opnast hinir ótrúlegustu möguleikar. Samningsaðilar væri þegar búnir að koma sér saman um verð og gæði, en Framh. á bls. 5. Ctý •/ Þórhallur Maack, sem er scndill á ritstjórn Vísis, heldur hér á merkilegu björgunartæki sem mjög er að ryðja sér til rúms vegna þess hve fyrir- hafnarlítið það er. Það heitir SARAH og er alveg sjálfvirkt. Það þolir að liggja í sjó. Flug- vél sem leitar að nauðstöddum báti með svona tæki, heyrir í neyðarsendi þess í mikilli fjar- lægð, sömuleiðis leitarskíp. Rafhlöður tækisins gera því kleift að senda viðstöðulaust í 24 klst. Sjá stutta frétt á bls. 9. AusturvöIIur er og hefur lengi verið einn fallegasti blettur í Reykjavík. Enn hefur það aukið á ánægju bæjarbúa, að nú eru blómabeðin upplýst er skyggja/tekur. Þessa skemmtilegu mynd tók ljósmyndari Vísis, Ingimundur Magnússon þar. Vh'sir hefur haft fregnir af því austan úr Svíþjóð að bókaútgáfa ein í Stokk- hólmi, Steinsviks Bokforlag sé nú að undirbúa heildar- útgáfu allra Islendinga- sagna.Það er norrænufræð- ingurinn dr. Áke Ohlmarks sem vinnur að þýðingu sagnanna og stendur verk- ið nú sem hæst. Eftir því sem Vísir hefur fregnað mun ætlunm að sögurnar komi út allar nokkurnveg- ínn samtímis eða með mjög stuttu millibih. Mikilvirkur þýðari. Dr, Ohlmarks dvaldist hér á íslandi sem sænskur sendi- kennari fyrir stríð á árunum 1935 og 36. Hann lærði ís- lenzku vel og hefur sérstak- lega á síðustu árum unnið að þýðingum og útgáfum á Eddu- kvæðum. Hann hefur gefið út nokkrar bækur með þýðingu á Eddukvæðum, Eddans Guda- sánger 1948, Eddans Hjálte- sánger 1954, Eddica . minora 1955, Eddica apocrypha 1956 og Islands hedna skaldediktn- ing 1957. Kramh á 5. síðu A-kaldi og skýjað í dag. Stinnings- k kaldi í nótt.

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.