Vísir - 08.09.1961, Blaðsíða 6

Vísir - 08.09.1961, Blaðsíða 6
6 Ví S T R Föstudag-ur 8. sept. 1961 Utan úr heimi Lífvörður Kennedy’s Þegar John F. Kennedy var fyrir skömmu að leika golf, veittu áhorfendur því athygli að tveir grannvaxnir menn voru án afláts í nánd við for- setann. Mennimir voru klæddir sportfötum eins og kennedy. Þeir höfðu golfkylf- ur í leðurhylkjum. En þeir tóku kylfumar aldrei upp til þess að slá með þeim. Mennirnir skimuðu í allar áttir og ekkert fór fram hjá þeim. Þetta voru lífverðir Kennedy. Hjá kylfunum í leð- urhylkjunum höfðu þeir hlaðnar vélskammbyssur — svona til vara. Svo er mál með vexti að forseti U.S.A. fer ekkert án þess að einn eða fleiri af líf- verði hans fylgi honum. Þessir menn hafa ekki ann- að á sinni könnu en að gæta forsetans og koma í veg fyr- ir að honum sé gert mein. Sama máli gegnir um konu hans o gböm. Þeirra er gætt gaumgæfilega. Lífvarðarmennirnir *kunna annað meira en berja niður árásarmenn ef með þyrfti. Þeir eru sérfræðingar í að finna faldar vítisvélar, þeir þekkja eiturefni og hættuleg- ar lofttegundir. Þeir geta not- að „geiger“mæla og greint geislavirkni hluta eða efna o. fl. Þegar Kennedy flýgur frá einum stað til annars, er æ- tíð einn lífvörður hans í vél- inni, sem getur stjómað flug- vél og tekið krappar beygjur, og einhver, sem ef þörf ger- ist, getur séð forsetanum fyr- ir fallhlíf og ýtt honum út með einu sparki. Fari forsetinn á refaveið- ar þurfa „seeret-service* mennimir að fylgja honum ríðandi. Fari hann á skíði verða lífverðamenn að kunna á skíðum. Fari hann út að synda, þurfa eftirlitsmenn- imir að kunna sund og vera reiðubúnir að bjarga forset- anum frá dmkknun ef þörf gerist. Fari Kennedy í opin- bert samkvæmi er það nauð- synlegt að lífvarðarmenn séu góðir samkvæmis-menn „í kjóli og hvítt“. Forsetinn má ekki ganga eitt einasta skref án þess að hafa lífvörð með sér. En fyrirmælin um konu hans Jaequeline Kennedy em ekki eins ströng. Hún getur sjálf ákveðið hvort hún vill hafa lífvörð eða ekki, er hún fer eitthvað án þess um op- inbera heimsókn eða sam- kvæmi sé að ræða. En hún kýs þó oftast að einhver líf- varðarmaður fari með henni, er hún fer til dömumorgun- verða og tedrykkju. Þá em bömin. Caroline er þriggja ára og John F. litli varð sex mánaða í maí í vor. Bamanna skal gætt. Hér er einkum um þá hættu að ræða að bömunum verði rænt. Þegar Caroline er að leika sér í garðinum bak við Hvíta húsið, er þar ætíð einn eða fleiri menn úr lífverðinum og er hún að ári liðnu fer að sækja smábamaskóla, mun einhver af hinum þrekmiklu lífvarðarmönnum sitja í einu homi kennslustofunnar og fylgjast með því hvemig teikning, útklippingar og ým- islegt föndur er kennt. Böm- in em einnig látin hafa yfir vísur. T.d. „Ég veit um læ- virkjahreiður". Sé John F. litla ekið eitt- hvað í bamavagninum fer líf- varðarmaður í humátt á eftir og er reiðubúinn að koma til hjálpar ef þörf krefur. Inni í Hvíta húsinu verð- ur „secret-service" að vaka yfir öryggi forsetans og f jöl- skyldu hans, bæði þegar mat- ast er í borðstofunni og dval- ið er í dagstofunni. Ef hr. og frú Kennedy vilja hafa frið og ró — vera ein — verða þau að fara upp í einka íbúðina — á fyrstu hæð. Þangað hafa lífvarðarmenn ekki rétt til að fara né ber skylda til þess. 1 einkaíbúðinni geta for- setahjónin verið eins og ann- að fólk. • Nýlega er komin út mikil bók um ,,Lindbergh-málið“ (bams- ránsmálið). Þetta er mikið verk, nœrri 600 síður, en höf- undurinn, George Waller, hef- ur unnlð að bóldnni í 25 ár. Fiskur á dagskrá. Dagana 19.—27. septem- ber verður haldin á vegum matvæla- og landbúnaðar- stofnunar S. Þ. (FAO) ráð- stefna sem f jallar um vanda- mál í sambandi við næring- argildi fisks og annarra fisk- afurða. Ráðstefnan fer fram í Washington. Ráðstefnunni verður skipt í fimm deildir, sem hver f jall- ar um sitt sérstaka efni, þ.e. a.s. „Hlutverk fiskafurða meðal matvæla okkar“, „Efna samsetning fisks og fiskaf- úrða“, „Fiskur og fiskafurð- ir í mataræði ýmissa landa“, „Fiskur og fiskafurðir sem fæðutegundir" og „Eftir- spum eftir físki til manneld- is og möguleikar á að auka neyzluna". FAO býst við þátttöku frá mörgum hinna 88 aðild- arríkja, en auk þess sækja ráðstefnuna vísindamenn frá ýmsum löndum og alþjóða- stofnunum. V Nr. 20/1961 TILKYNNEffG Verðlagsnefnd hefur ákveðið eftirfarandi hámarks- verð í smásölu á framleiðsluvörum Raftækjaverk- smiðjunnar h.f., Hafnarfirði: Eldavél, gerð 2650 ..................... Kr. 3.950.00 _ _ 4403A — 5.250.00 _ _ 4403B — 5.950.00 _ _ 4403C — 6.550.00 _ _ 4404A — 5.850.00 _ _ 4404B — 6.550.00 _ _ 4404C — 7.100.00 Hitahólf .................................. — 600.00 Þvottapottur 100 1....................— — 3.600.00 — 50 1....................... — 2.750.00 Kæliskápur, L-450 ......................... — 8.425.00 Þilofn 250 w............................. — 420.00 — 300 w............................ — 440.00 — 400 w............................ — 460.00 — 500 w............................. — 535.00 — 600 w............................ — 590.00 — 700 w..............:............. — 640.00 — 800 w............................ — 720.00 — 900 w............................ — 800.00 — 1000 w.......................... — 910.00 — 1200 w............................ — 1.060.00 — 1500 w............................ — 1.220.00 — 1800 w............................ — 1.460.00 Á öðrum verzlunarstöðum en í Reykjavík og Hafn- arfirði má bæta sannanlegum flutningskostnaði við of- angreint hámarksverð. Söluskattur er innifalinn í verðinu. Reykjavík, 7. sept. 1961. Verðlagsstjórinn. Á hverju sumri efnir blaðið Milwaukee Joumal til kappsiglinga á flatbytn- um með utanborðshreyfla, og fer þessi keppni fram á Refaá, Fox River, sem rennur skammt frá borg- inni. Þessi mynd var tek- in, þegar keppnin fór fram fyrir nokkrum dögum, en þá hvolfdi bátnum undir Jim nokkrum Muehl, þeg- ar keppnin stóð sem hæst, og Bill Leutner, sem var rétt á eftir, brunaði beint yfir hann. Muehl skrám- aðist lítið eitt — og svo varð hann náttúrlega hundblautur, en að öðru leyti slapp liann „með skrekkinn“. Þetta glæsilega skip er eina nýja hafskipið, sem hóf farþegaflutninga milli gamla og nýja heimsins á þessu ári. Það heitir Em- press of Canada, 27.300 lestir og því stærsta skip, sem heldur uppi ferðum til Montreal, hafnarborgar- innar miklu við St. Láren- tíusar-fljót. Fyrir stríð átti félag það, sem er eigandi þessa skips, Canadian Pa- cific, enn stærra skip í At- lantshafssiglingum. Það hét Empress of Britain og var 42.500 lestir, en það komst ekki lengra en til Quebec. Empress of Can- ada getur flutt 1048 far- þega í ferð. Það kostaði um hálfa áttundu milljón sterlingspunda.

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.