Vísir - 08.09.1961, Page 7

Vísir - 08.09.1961, Page 7
Föstudagur 8. september 1961 VÍSIR 7 Strætisvagnar Reykjavíkur eru mikið fyrirtæki og ég held mér sé óhætt að segja yfirleitt vinsælt hjá bæjarbúum. Eg er persónulega búinn að vera fastur viðskiptavinur þess í bráðum 20 ár og það í allstór- um stíl. Á þeim tírna hefur það afar sjaldan komið fyrir, að mér hafi fundizt ég hafa al- varlega ástæðu til umkvart- ana. Það var jú á tímabili fyr- ir einum 10—12 árum síðan að margt var þar í ólestri, mest vegna alvarlegs vagnaskorts, en nú held ég að óvíða muni að finna sams konar fyrirtæki, sem gefi betri þjónustu eða hafi eins góð farartæki fyrir jafn lág fargjöld og hér eru. Það er töluvert í tízku hér á íslandi að skammast og jagast við öll opinber fyrirtæki, finna þeim allt til foráttu. Sjálfur hef ég gert þetta, en ekki nema mér hafi fundizt full ástæða til. Á sama tíma hef ég látið þau njóta sannmælis og viður- kennt það, sem þau hafa vel gert. Ég álít að strætisvagna- þjónustan i Reykjavík eigi hól skilið í mun ríkari mæli en að- finnslur og því á hún að fá það. Maður verður var við að það er áhugi fyrir því að veita góða þjónustu, jafnt hjá þeim, sem stjórna þessu fyrirtæki og þeim, er standa í eldinum, aka okkur um bæinn og svo sann- arlega mæta ýmsu misjöfnu. Mér finnst einnig, að við far- þegarnir höfum mannazt tölu- vert á síðustu árum. Um tveir þriðju okkar kaupa farmiða og það má víst heita algjör und- antekning að við heimtum að vagnstjóri skipti fyrir okkur peningum. Við erum einnig að venja okkur af því að troðast, eins og fé á garða að vögnun- um. Það er helzt niður á torgi að svoleiðis á sér stað ennþá. Við skulum hætta því líka. En margt má færa til betri vegar ennþá og það á að vera keppikefli allra að gera það. Það er t.d. mikil nauðsyn. að sérstakir menn séu til aðstoðar vagnstjórum á stöðvunum á Lækjartorgi og við Kalkofns- veg, þegar mest er annríkið um hádegið og þó sérstaklega á Gamla Bíó sýnir nú „Bræðurnir Karamasov“, sem gerð er eftir bók Dos- toyevskis. — Bókin er mik- ið listaverk og margþætt. Trúuðum er hún sterk trúboðun, sálfræðingar telja hana beztu sálfræðilega sögu, sem gerð hefur verið, diplomatar lesa hana enn til að kynnast rúsneskum þjóðarein- kennum, og að auki er hún spennandi ástarsaga og glæpa- saga. Ekki var við því að búast, | að takast mætti að ná öllum þessum atriðum til fullnustu. | Það er þó reynt, og þó að mynd- j in taki nærri-tvo og hálfan tíma, verður lítið annað eftir, þegar j upp er staðið, en gamla formúi- j an: pilturinn hittir stúlkuna,! missir stúlkuna og fær hana j aftur. í stað þess að leggja megináherzlu á einn þátt sög- unnar, er öllum meiri háttar j senum troðið inn með þeim ár- angri, að myndin er líkust ýtar- legu efnisyfirliti. Jafn frábær misnotkun á lit- um mun varla haf. sézt. Ef ein- hver er glaður, er hann og um- hverfið allt ljósgult. Reiðir eru tómatarauðir, daprir sægrænir, og elskendur rauðir. Þetta get- ur verið sérkennilegt. þegar fólk í mismunandi skapi stend- ur hlið við hlið. Lee J. Cobb stendur sig bezt af leikurunum, sem hinn ger- spillti og hálfbr.iálaði faðir, Yul Brynner leikur hinn ofsafengna Dimitri, með mikilii ró og spekt. Maria Schell er töfrandi falleg, en Grushenka hennar verður glettin stelpa, í stað kon- unnar, sem ýmist var slungin og djöfulleg eða saklaus sem barn. Richard Basehart virðist aldrei átta sig á Ivan, og er á svipinn eins og snaran sé að herðast um hálsinn á honum. Munkinn, Alyosha, leikur Will- iam Shatner og gerir úr honum vel upp alinn sunnudagaskóla- dreng. Það er ekki á færi annarra en snillinga að vinna úr lista- verki eins og bók þessari, en þeir virðast, því miður, hafa verið uppteknir annars staðar. Ekki er nema sanngjarnt að taka það fram. að maður sem ekki hefur lesið bókina. myndi sennilega skemmta sér vel. Ó. S. kvöldin, Þá eru vagnarnir oft seinir og því mikið undir því komið að greiðlega gangi að af- greiða þá þar. Stundum eru menn til staðar til að hleypa farþegum inn um afturdyr, en það virðast oftast vera íhlaupa- menn, sem gera það af greiða- semi. Það er líka kominn tími til að hafa kort af leiðunum uppi í öllum. vögnum. Þær eru nú orðnar svo margar að jafn- vel við innanbæjarmenn átt- um okkur ekki á því, hvernig allar þeirra aka, hvað þá utan- bæjarfólk. Flestir vagnarnir eru á sömu leiðum mest af tímanum og geta því þessi kort verið í þeim að staðaldri, ann- ars ætti að vera hægt að ganga frá þeim þannig, að auðvelt væri að flytja þau milli vagna. Einnig vildi ég bcnda á að gott væri að hafa fleiri leiðir, sem gengju milli bæjarhlut- anna, austur og vestur. Nokk- ur breyting hefur orðið ti 1 batnaðar á þessu upp á síðkast- ið. en betur mætti ennþá. Leið 22 er góð. en það ætti ekki að láta allan biðtímann falla á stöðina á Laugarásveginum. heldur hafa einnig fastan tíma til brottfarar t.d á Miklubraut Eleiri biðskýli þarf eihnig að reisa, sérstaklega vil ég benda á hornið á Rétta'holtsvegi og Éovavegf. Þar liggia um marg i ar leiðir og f.iölfarnnr og þai 1 er ekkert afdrep að fá. einmg ; mjög næðinssamt F.n sem sagt. j ég tel. að við megum vera St.rætó okkar þakk'át fvrir I margt og vonandi tekst að halda við þeirri góðvild sem nú ríkir yfirleitt i samskiptum þess og bæjarbúa. Víðförli. Vigfús Guð- mundsson, gestgjafi, hélt áfram lestri cerðasögu sinn ar, „Norður Noreg‘.‘ Hann :agði skemmti lega frá því, sem fyrir augu hans bar á leið- inni frá Bodö til Finnmerkur, Lýsingar á staðháttum og at- vinnulífi íbúanna voru all góð- ar, sérstaklega frá bæjunum, t. d. Tromsö, en sá bær er mjög vinsæll ferðamannabær. Þaðan er líka m. a. mikill útflutning- ur á frystum laxi, og er ræðis- maður íslands í borginni stærsti útflytjandinn. Einn flutti hann út rúmlega 200 tonn á síðasta ári. Vigfús ræddi um versnandi saltfiskmarkaði við fiskimenn í Lofóten, en hann er kunnug- ur víða í Suður- og Mið-Ame- ríku, en þar éta menn mikið af saltfiski. Eflaust hefði Vigfús haft nóg frá að segja í mörg erindi í viðbót,, og nokkur galli var það á þessari frásögu, að hann var ailtaf að fara fljótt yf- ir sögu, stikla á stóru og barma sér yfir þvi, að timinn væri nú senn á þrotum. í öllum þéssum ílýti fór flutnnigurinn meira og minna úr skorðum. Þrátt fyrir þennan galla hafa margir haft gagn og gaman af þessari terða- sögu, og vonandi segir Vigfús hlustendum seinna af nýjum ferðalögum sínum. Sigurðúr A. Magnús^on, jblaðamaður flutti mjög athygl- isvert erindi, og vona ég, að sem flestir lilustenda liafi hlýtt á það af athygli. Þetta var hin vikulega erlenda rödd, að þessu sinni timaritsgrein eftir Peter Dimitriu, sem nefndist „Vanda- mál rúmenskra menntamanna“. Peter Dimitriu er þekktur rúm- enskur rithöfundur, sem flúði vestur fyrir tjald og býr nú í Frakklandi. Hann hafði verið í miklum metorðum hjá vald- höfum Rúmeníu, hlotið bók- menntaverðlaun og ýmsan heið- ur annan, en hann var í áróð- ursför vestur fyrir tjald, þegar liann notaði tækifærið til að flýja. í greininni lýsti hann á eftirminnilegan hátt viðbrögð- um menntamanna við valda- töku kommúnista og lífinu undir járnhæl þeirra. Hann reyndi að útskýra, hvers vegna menntamenn í hinum komm- únistíslru ríkjum hefðu látið tilleiðast að lilíta þeim tak- mörkunum, sem „menningar- lögreglan“ setur, og þeir jafnvel reynt að gera valdhöfunum til geðs, þótt þeir væru raupveru- lega andsnúnir þessu hug- myndakerfi. Einnig drap hann á tímabilið 1954—58, þegar hlákan mikla var þau austur frá, og nokkuð var slakað á taumunum, en þá fylltust koll- egar hans í Rúmeníu nýrri von um að batna myndi i ári. En sú von brást þó, og fjöldi vina Dimitrui var hnepptur i fang- lsJi eða framdi sjálfsmorð í ör- væntingu sinni. Bækur voru Framh. á bls. 10. Minnisvar afhjúpaður í Fossvo Fórust 23 ásanrt 2 íslencfingum við Snæfellsnes 1942. ■ r sjomenn Kalli frændi í dag verður afhjúpaður í Fossvogskirkjugarði minnis- varði yfir 23 pólska sjómenn, sem drukknuðu, er skip þeirra fórst við Snæfellsnes á stríðsár- unum. Með skipinu fórust og 2 Islcndingar en aðeins tveir skip verja komust af, íslenzkur og nólskur. Það vav vöruflutningaskipið „Vigry“, 2800 smálestir, sem fórst á Skóganesi á Snæfellsnesi 16. janúar 1942 .Ekki hafði vitn- azt um slysið fyrr en það varum garð gengið, því að Slysavarna- félag íslands hafði oft erfitt um vik um samband við slrip á stríðsárunum. Með skipinu fór- ust tveir íslendingar, Ragnar Pálsson úr Hvefagerði. f. 1907 og átti 1 barn ungt, og Garðar Norðfjörð Magnússon (bróðir Sigurðar A. bJaðamanns) úr Reykjavík, f. 1916. — Annar þeirra tveggja, sem af komust. var íslenzkur piltur, Bragi Kristjánsson, þá til heimilis á Mýrargötu 7 í Reykjavík. Athöfnin í Fossvogskirkju- garði á föstudag fer fram kl. 2 síðdegis, og afhjúpar borgar- stjórinn í Reykjavík minnis- varðann, sem reistur liefur ver- ið af pólska sendiráðinu í Rvík.

x

Vísir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.