Vísir - 17.10.1961, Blaðsíða 8

Vísir - 17.10.1961, Blaðsíða 8
8 V í S I R Þriðjudagur 17. október 1961 'M , ! ÚYGErANDI: BLAÐAUTGÁFAN VÍSIR Ritstjórar: Hersteinn Pólsson, Gunnar G. Schram Aðstoðarritstjóri: Axel l horsteinsson. Fréttastjór ar: Sverrir Þórðarson. Þorsteinn Ó Thorarensen Ritstjórnarskrifstofur: Laugavegi 27. Auglýsingar og afgreiðsla; Ingólfsstrœti 3. Áskriftargjald er krónur 45.00 ó mónuði — I lausasölu krónur 3.00 eintakic Sími 1 1660 (5 línur) — Félags- prentsmiðjan h.f., Steindórsprent h.f., Edda h.f. Mikið hefur áunnizt. Það verður aldrei of oft á það bent Kve efnahagur landsins hefir tekið stórum stakkaskiptum síðustu misserin. Það er næstum því sama á hvaða þátt efna- hagslífsins er litið, hvarvetna blasa við stórar framfarir. Lítum fyrst á aukningu sparifjárins. En eins og allir vita þá er aukning sparifjár undirstaða undir auk- inni fjárfestingu. Aukin fjárfesting er aftur á móti nauðsynleg til þess að efla atvinnu og framfarir í land- inu og bæta hagsæld þjóðarinnar. Á löngum verð- bólguárum vorum við nær því hættir að spara. Fólkið í landinu hafði misst trúna á verðgildi peninganna og hinum aflaða eyri var eytt sem skjótast. En skyndilega skipuðust veður í lofti. Mánaðarleg aukning spariinnlána varð á tímabilinu apríl 1960 til júní í ár 67% meiri en á árinu 1959. Þetta er mjög gleðileg breyting. Hún sýnir að fólkið hefir aftur öðlazt trú á verðgildi krön- unnar og víst hafa hinir háu vextir átt mikinn þátt í að auka sparnaðarhneigð fólks. Gjaldeyrisforðinn segir til um það hve heilbrigð fjármálastjórnin er á hverjum tíma. 1 árslok 1959 var gjaldeyrisforðinn enginn orðinn í landinu en bank- arnir teknir að safna skuldum. Um síðast liðin áramót var gjaldeyrisforðinn aftur orðinn 112 milljónir króna og var þar miklum og góðum áfanga náð í viðreisninni. Eins og viðskiptamálaráðherra Gylfi Þ. Gíslason hefir nýlega bent á, þá er þó nauðsynlegt að gjaldeyrisforð- inn svari til a.m.k. þriggja mánaða innflutnings e^a sé um 750 millj. króna. Þessar tölur tala sínu máli. Andstöðuflokkar ríkis- stjórnarinnar hafa reynt að teþa þjóðinni trú um að ekki hafi miklir sigrar unnizt í efnahagsmálum. Tölur ( þessar eru skýr vottur um þá sigra og óræk sönnun. Þær verða ekki hraktar heldur standa til vitnis um heilbrigða og framsýna fjármálastjórn núverandi vald- hafa. Framkvæmdaáætlunin. Hinir þrír norsku hagfræðingar hafa undanfarna mánuði unnið ötullega að því að semja hina miklu fram- kvæmdaáætlun fyrir næstu fimm árin. Nú hefir störf- um við hana verið hraðað og vonir standa til að áætlun- inni verði lokið um nýjár. Það sem hér er verið að gera er hvorki meira né minna en að tryggja að framkvæmd- ir verði gerðar á sem hagkvæmastan hátt og á sem hentugustum tíma til þess að efnaleg hagsæld þjóðar- innar verði tryggð svo sem framast er unnt. Slík áætlun hefir aldrei verið fyrr gerð á Islandi og þess er að vænta að hinar skipulagsbundnu framkvæmdir samkvæmt henni muni bæta lífskjör allra stétta þjóðfélagsins. Fyrir næstum því þús- und árum sigldi ein- kennilegur floti út frá Breiðafirði. Það voru 25 hafskip eins og þau tíðk- uðust fyrir aldamótin 1000, hlaðin íslenzkum landnemum sem fluttu með sér alla búslóð og bústofn. Ferðinni var heitið til Grænlands und- ir forustu Eiríks rauða. Það má ætla að um 600 manns hafi verið í þessari fyrstu landnámsför til Græn- lands. Hún er alveg vafa- laust stærsti og fjölmenn- asti leiðangur sem fram tii þessa hefir verið gérður út til heimskautalands. Þegar íslenzka byggðin á Grænlandi stóð með mestum blóma voru þar hvorki meira né minna en 280 bændabýil. 17 kirkjur og 2 klaustur. íbúatala hefir verið misjafn- lega áætluð. sennilega hefir hún mest verið eitthað í kringum 5000 manns. íslenzka byggðín var held- ur ekkert augnabliksfyrir- bæri. Hún stóð allt frá því Eiríkur rauði nam land árið 986 og sennilega fram á 16. öld. Hún hefir því staðið i meir en 500 ár. En síðan gerðist það með einhverjum hætti, að byggð- ih eyddist og hefir það orðið að eilífu misklíðarefni meðal sagnfræðinga, sem áhuga hafa á Grænlandi, hvernig það gerðist. Fyrir nokkru voru raktar hér í blaðinu hugmyndir norska heimskautafarans Helge Ingstad um það hvern- ig sambúð Eskimóa og hinna norrænu Grænlendinga hafi verið háttað og komst hann að þeirri niðurstöðu. að frið- ur hefði að jafnaði verið milli þjóðanna og sú hug- mynd ekki sennileg, að Eski- móarnir hafi útrýmt Græn- lendingum í striði. Hér fer á eftir endursagð- ur annar kafli úr bók Ing- stads „Landet under Polar- stjernen“ þar sem hann ræð- ir um hina miklu gátu hvern- ig, Grænlendingarnir hurfu svo skyndilega af sjónarsvíð inu. Harðgerðir menn. Hann segir, að menn verði fyrst að skilja það að íslend- ingarnir, sem fluttu til Grænlands, hafi verið harð- gerðir og reyndir menn, sem voru vanir að bjargast við erfiðustu skilyrði. Þeir voru runnir upp úr menningar- þjóðfélagi sem studdist við sjómennsku kvikfjárrækt, dýraveiðar og fiskveiðar. Þeir komu frá landi, sem var á margan hátt líkt Græn- landi. Aðstæðurnar voru að vísu nokkuð breyttar, en þeir hljóta að hafa vanizt þeim við reynslu margra kynslóða í landinu. Aðal- breytingin er sú, að land- búnaðurinn verður minni en veiðiskapurinn þýðingar- meiri. Því hefir verið haldið fram, að Eskimóarnir hafi staðið sig betur en hvítu Tréskurðamynd eskimóa af forn-íslenzkum landnema. \ mennirnir, í baráttunni við náttúruöflin og að þeir hafi verið snjallari veiðimenn. Erfitt er að staðhæfa slíkt. Það er gömul ímyndun, að hvíti maðurinn geti aldrei jafnazt á við Eskimóa og Indíána í dýraveiðum, en eg • hefi séð hvíta veiðimenn.sem gefa Eskímóum ekki eftir. Það er fráleitt að ímynda sér, að hvítu mennirnir hafi ekki náð sömu fullkomnun í veiðiskap og Eskimóar er þeir höfðu vanizt við veiðar kynslóð eftir kynslóð. Stóðu betur að vígi en Eskimóar. íslendingarnir í Græn- landi stóðu þar að auki betur að vígi en Eskimóarnir. Ef veiðin brást höfðu þeir sitt eigið kvikfé. Það höfðu Eski- móarnir ekki. Ýmsir hafa talið veð- srfarsbreytinogar orsökina, að veðurfar hafi kólnað svo að af því hafi stafað mat,- vælaskortur og Grænlend- ingarnir soltið til bana. í þessu sambandi verður athuga það, að viss hluti dýralífsins í Grænlandi myndi aukast í kuldatið. Ýmis veiðidýr í Norður Grænlandi myndu þá koma suður á bóginn. Hvað fisk- veiðum viðvíkur virðist það Ijóst af mörgum heimildum, að nóg fiskveiði hafi verið við Grænland, svo að það er ótrúleg ástæða. Enn hefir sú hugmynd komið upp, að ræktar- og beitilönd hafi eyðilagzt vegna kólnandi veðráttu, en það verður að fara varlega í að staðhæfa nokkuð um það, því að gróðurland er yfirdrifið í Eystribyggð. Nú eru þar um 20 þúsund fjár og áætluð beitilönd fyrir fjórfaldan þann stofn. Grasmaðkur eða fárviðri. Enn fleiri hugmyndir, hafa komið fram sem eiga að styð.ia hungursneyðar-hug- myndina. Ein er sú, að feikileg gras- maðkaplága hafi komið upp í landinu og hafi maðkurinn verið eins og engisprettu- plága, étið gersamlega allan gróður. Er bess getið að slík- ár grasmaðksplágúr komi enn fyrir í Grænlandi. Enn ein hugmyndin er sú, að bústofninn hafi farizt í fár- viðrum og er á það bent að 10 þúsund fjár hafi farizt í hríð veturinn 1948—49. En svona óhöpp eru ekk- ert einstök fvrir Grænland og ekkert af þessu er líklegt að hafi orðið svo mikið áfal1 fyrir byggðina að fólkið hafi dáið út. Farsóttir eða úrkynjun. Það er auðvitað, að far- sóttir hafa borizt til Græn- lands með skipum frá öðrum löndum. Á einum stað við nunnuklaustrið í Siglufirði heíur fundizt fjöldagröf sem bendir til farsóttar. f sögun- um er greint frá þremur far- sóttum í Grænlandi um alda- mótin 1000. Engin þeirra hafði nein úrslitaáhrif. Á ár- unum 1284—1404er vitað um fimmtán drepsóttir er gengu yfir ísland og mest af þeim var Svartidauði sem herjaði á árunum 1402—04. Vafa- laust hafa þessar pestir einn- ig borizt til Grænlands og gert par usia líklega bæði meðal Grænlendinga og Eskimóa. En drepsótt hefði sennilega orðið miklu hættu- legri fyrir Eskimóana en Grænlendingana og þó hafa þeir lifað af. Enn koma hugmyndir um, að hinn norræni kynstofn hafi verið orðinn úrkynjaður vegna sífelldr? sammægða.

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.