Vísir - 18.10.1961, Blaðsíða 2

Vísir - 18.10.1961, Blaðsíða 2
I V f S I R Miðviku.dagur 18. október 1231 =rr t Z'//////Æ Enska JLÍðítB í /. tleiltl GMjjt síttðtt þeirrtt tttka FLEST liðin í 1. deild hafa nú leikið um 12 leiki og er nú fyrsta fjórðungnum þar með lokið. Línurnar hafa nú mjög skýrst, þótt hinsvcgar sé ekki mikill munur, hvað stig snert ir. T.d. er aðcins fjögurra stiga munur á 16 liðum dcildarinnar frá 5. og upp í 19. sæti, að báð- um meðtöldum. Þó má þegar sjá, hvaða lið koma til með að berjast um 1. sætið annars vegar og fallsætið hinsvegar. Burnley hefur tekið foryst- una og það nokkuð örugglega. Áður en þeir léku við West Ham á laugardaginn höfðu þeir 4 stiga forskot. Þrátt fyrir það að tveir af leikmönnum liðsins léku með enska landsliðinu og Burnley því í lófa lagið að fresta leiknum, gerðu þeir það ekki og töpuðu leiknum fyrir vikið. Þessi ,,mikilmennska“ þeirra getur orðið dýrkeypt seinna meir. Undirritaður átti þess kost að sjá Burnley liðið leika í haust, og fékk þar staðfestingu á gengi liðsins og ástæðunni fyr- ir góðri frammistöðu þess. Lið- ið er mjög jafngott, leikur afar taktiskt, og flestir leikmennirn ir hafa þegar öðlazt mikla reynslu, bæði þar sem flestir þeirra hafa leikið í ýmsum úr- valsliðum Bretlandseyja og svo einnig úr Evrópukeppninni sem Burnley tók þátt í fyrr, en liðið sigraði deildina í hitteð- fyrra. í öðru sæti er West Ham, en það lið hefur komið mjög á ó- vart með frammistöðu sinni. West Ham notar. 4-2-4 kerfið, leikur áferðafallega knatt- spyrnu, og hefur framúrskar- andi einstaklinga s. s. Woos- nam og Leslie markvörðinn. Forstjórinn þar er Ron Green- wood, sem áður var þjálfari hjá Arsenal. Tottenham liggur í þriðja sæti í augnablikinu, en á auð- vitað eftir að láta að sér kveða i keppninni þegar stundir líða. Liðið þykir ekki leika eins vel í ár, og í fyrra, og telja margir ástæðuna fyrir því vera þá, að í þeirra herbúðum komist ekk- ert að annað en Evrópukeppn- in. Sama ástand skapaðist tið- um hjá Real Madrid, þeir sigr- uðu Evrópukeppnina glæsilega, um leið og þeir töpuðu í spænsku keppninni. Varla á nokkurt enskt lið jafn marga fylgjendur hér á landi, sem Manchester Unit ed nema ef vera skyldi Arsenal. Og það hcfur vcr- ið þeirra fylgjendum gleði- cfni í haust, að Man. Utd. hefur verið í cinu af efstu sætunum og sýnt tilþrif sem gefa vonir um mikil afrck í vctur. Það kom því sem rcið arslag er það fréttist á laug ardaginn að Man. Utd. hefði tapað fyrir neðsta liðinu, Birmingham, og það heima lijá sér. En það skal fært þcim til afsökunar, að stoðir liðsins, menn eins og Foulk cs, Setters, Viollet, Pearson og Quixall voru allir meidd- ir og þar að auki, var Charlt on ekki með þar scm hann var í enska Iandsliðinu. Everton fyllti allar stöður í liði sínu og jafnvel í varaliðinu líka, með toppstjörnum og mönnum keyptum fyrir háar fjárupphæðir. Félagið var þó óheppið í fyrra, meiðsli og ann að, og ekkert virtist ætla úr að rætast 1 fyrstu leikjunum. Nú upp á síðkastið hefur þó ten- ingurinn snúist við, og loksins virðist þeirra ,,dýra framlína11 vera komin í gang, og mín spá er sú, .að ef Everton sigrar ekki keppnina, þá verða þeir ekki fjarri því sáeti á töflunni. Hvernig á annað að vera, þeg- ar litið er á framlínuna, Bing- ham, Vernon, Young, Collins, Lill. Ipswich vann sig upp í fyrstu deild í fyrra, og hefur skemmti lega komið á óvart. Leikur á- eikaflokkur íerðttst ttttt t heili ttr„ • Með Loftleiðavélinni, sem kom frá Kaupmannahöfn í gær- kvöldi, og liafði viðkomu á Keflavíkurflugvelli á Ieið sinni til New York var meðal annarra farþega allstór og merkilegur hópur íþróttamanna. Nærri 40 manna flokkur danskra fim- leikamanna og kvenna var að hefja fyrsta áfangann í árslöngu ferðalngi sínu um þver og endi- löng Bandaríkin. Það hlýtur að vekja athygli hvarvetna, þegar svo stór hóp- ur íþróttafólks heldur í jafn langt og umfangsmikið ferða- lag sem þetta. Fimleikafólkið eru 16 stúlk- ur og 16 piltar á aldrinum 17 til 25 ára. Flestir eru þó um 20 ára. Þetta er fólk úr öllum stéttum, sem tekið hefir sér ársfrí frá störfum sínum svo því hafi verið kleift að komast í för þessa. Tilgangur þess er tvöfaldur Fyrst og fremst að leggja m skerf fram í því að kynna og sýna þá líkamsmennt og uppbyggingu sem Danir benta, og svo í öðru lagi að kynnast þeim hlutum sem seinna meir geti komið þeim að haldi í lífinu. Þetta er úrvalsflokkur val- inn úr hinum ýmsu fimleika- félögum Danmerkur. Stjórn- andi stúlknanna er ungfrú Rósa Nielsen frá Kaupmannahöfn, sem er bæði þekktur og viður- kenndur leikfimiskennari í heimalandi sínu sem og annars staðar. Hér á landi munu marg- ir kannast við hann eða hafa heyrt hennar getið. Stjórnandi piltanna heitir Gunnar Michael Andersen, til- tölulega nýr maður á sviði danskra fimleika, sem hefir á stuttum tíma getið sér orðstír sem snjall og hæfur leikfimis- kennari. Hópurinn dvaldist um mánaðar tíma í æfingabúðum og hefir auk þess lagt leið sína til Grikklands í sýningaför. í Bandaríkjunum munu Dan- irnir fyrst sýna i Pennsylvaníu og halda síðan áfram með aust- urströndinni til Washington. Þar er áætlað að vera um ára- mótin, en þaðan verður farið áfram til Flórída og Mexico, svo eins og sjá má munu flest ríki Bandaríkjana verða heim- sótt. Gera Danir ráð fyrir, að för þeirra muni vekja mjög mikla athygli þar vestra og áætlað er að um 3—5000 leikfimis- kennarar, allt frá barnaskólum upp í herinn muni kynna sér aðferðir og æfingar Dananna. vallt skemmtilega kappleiki og fjöruga, og er eina liðið fyrir utan West Ham sem hefur sigr. að Burnley. Það munaði ekki um það 6:2. . Lið eins og Fulham, Notting ham Forest, Manchester City, Cardiff, Blackburn og Aston Villa hafa ekki mikinn ljóma yfir sér þessa dagana, en standa þó ætið fyrir sínu og ekkert þeirra er líklegt til stórræða eða falls. Aftur á móti, þegar maður rekst á nöfn eins og Arsenal og Wolves í neðri hluta töflunnar þá rekur maður upp stór augu. Arsenal hefur ekki unnið til neinna verðlauna í alltof lang- an tíma. verið neðarlegar en jafnvel andstæðingar þeirra geta sætt sig við og gera»að því er virðist árangurslausar til- raunir til að rétta hlut sinn og sína forna frægð. Stjörnur eru seldar og stjörnur eru keyptar allt án árangurs. Charles, East- ham, Kelsey og McLeod hafa ekki verið taldir neinir aukvis- ar, en kannske ná þeir ekki saman, eða kannske eru of margir slakir menn með þeim — hitt er vízt að sigrarnir koma ekki of oft. Úlfarnir cr annað lið sem ekki hefur náð sér á strik í haust, og það vekur raunar meiri athygli en crfiðleikar Arsenal. Wolvcrhampton Wanderes hafa staðið í bar- áttunni um efsta sætið nær undantekningarlaust allt frá stríðslokum, sigrað keppn- ina þrisvar sinnum og „Cup- inn“ tvisvar. I hin skiptin hafa þeir vart farið niður fyrir fjórða sæti. En núna skyndilega sitja þeir í 14. sæti. Astæðan mun vera framlínan, sem ekki hefur verið svipur hiá sjón ; haust. Cullis keypti Lazarus frá Q. P. R., kröftugan útherja, en hann hefur ek.ki leyst vand- ann. Hrap Úlfanna hefur vakið menn til umhugsunar um hvort sú leikaðferð sem Úlfarnir byggja' leik sinn á, þessi beina kröftuga knatt- spyrna, sem liingað ti! hef.ur verið kennd við England, sé orðin úrelt. Varla mun Stan Cullis og hans ágæta lið við- urkenna það fyrr cn : fulla hnefana, og með menn eins og Broadbcnt, Slater og Flowers, verður þetta Iið vart lengi í neðri hlutanum. W. B. A. og Blackpool hafa undanfarin ár, háð harða bar- áttu fyrir tilveru sinni í fyrstu deild og svo er enn nú. Það virðist aðeins tímaspursmal hvenær að fallinu kemur, Birmingham er í augnablik- inu næst neðst o'g þykir ekki leika betur en það, að verð- skulda það sæti. Neðst er svo gamla, góða Chelsea. Allt virð- ist vera í upplausn hjá félag- inu síðan Greaves var seldur til Ítalíu. Forstjórinn hinn frægi Ted Drake, hefur sagt upp og liðið er eins og höfuðlaús her, ungir piltar eru reyndir í tíma og ótíma, og efnin öll sem Chelsea hefur morandi í yngri liðum sínum falla hvert um annað þvert, þegar í fyrsta liðið er komið. Ástandið er þannig, að ef ekki verður gripið til rót- tækra ráðstafana, er fallið stóra óumflýjanlegt. — e.b.s. Nýtt mút Fyrir tveim til þrem árum síðan var í það ráðizt að efna til móta og leikja fyrir yngri drengi en þá, sem tækir voru í IV.'flokks lið, aldurs vegna og getu. Aldurstakmörkunum flokk- anna var bréytt og stofnaður var V. flokkur fyrir 12 ára drengi og yngri. Var hér vissu- lega í nokkuð stórt ráðizt fyrir knattspyrnufélögin, því þetta þýddi eðlilega fleiri þjálfara, meiri vinnu og meiri útgjöld ekki sízt peningalega. Fyrst var aðeins teflt fram einu liði í þessum flokki, en ekki leið á löngu, þar til B-lið komu fram á sjónarsviðið. Og nú í haust hélt þróunin áfram, stofnað var til móts fyrir C-lið. 11 fleiri strákar klæddust peysum félags síns, og þótt knattspyrnan sé ekki ó eins háu stigi í V. flokki eins og i eldri flokkum, þá er áhuginn og alvaran engu minni. Þessu fyrsta V. fl. C-móti lauk nú um helgina. Sigurveg- arar urðu KR-ingar, þeir sigr- uðu Víking í úrslitaleik 1—9. Öll reykvísku félögin nema Þróttur tóku þátt í mótinu. Og nú er aðeins spurningin: Hvað tekur næst við? SÍÐASTI knattspyrnuleikurinn sem háður verður á þessu ári á Akureyri fór fram í fyrradag og léku Þór og KA. Fóru leik- ar svo að Þór sigraði 3:1. Dregið í A-flokki. í gær var dregið í A-flokki Happdrættisláns ríkissjóðs. Hæstu vinningarnir komu á eftirtalin númer: 75.000 kr. - Nr. 133289. 40.000 kr. Nr. 83189. I 15.000 kr. Nr. 59551. 10.000 kr. Nr. 43518, 122764, 135915. (Birt án ábyrgðar).

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.