Vísir - 18.10.1961, Blaðsíða 3
Miðvikudagur 18. október 1961
V í S I R
3
Breikka á vegi á blindum
hæðum, segja eftirlitsmenn
Aðalfundur félags íslenzkra
bifreiðaeftirlitsmanna var hald
inn í Reykjavík 7. október s.l.
— Fundinn sátu allflestir bif-
reiðaeftirlitsmenn landsins.
Á fundinum voru gerðar
ýmsar ályktanir og eru þessar
helztar:
Aðalfundur félags ísl. bif-
reiðaeftirlitsmanna haldinn í
Reykjavík 7. október 1961
þakkar vegamálastjórninni það
sem gert hefir verið í lagfær-
ingu og merkingu vega, en
beinir þeim tilmælum til vega-
málastjóra, að meira verði unn-
ið að því að breikka veginn á
blindum hæðum og bröttum
brekkum og merkja vel alla
slíka staði til öryggis fyrir alla
vegfarendur.
Þar sem slysum hefir stór-
lega fjölgað utan Reykjavíkur,
í sambandi við bifreiðar og
dráttarvélar, beinir aðalfundur
félagsins því til Slysavarnar-
félags íslands og allra aðila,
sem með þessi mál hafa að gera,
að aukin verði fræðsla almenn-
ings á þeirri stórkostlegu hættu
sem misnotkun slíkra tækja
hefir i för með sér.
Þá skorar fundurinn á alla
ökumenn að hafa öryggis- og
ljósabúnað bifreiðanna í lagi,
þar sem myrkur og vetur er að
ganga í garð og haga akstrinum
samkvæmt 49. gr. umferðalaga.
Almennt mót norrænna bif-
Fyrir ekki löngu síS-
an birti Vísir heila opnu
með myndum af íslenzku
vetrartízkunni. — Hér
koma þrjár myndir til
viðbótar og látum við
það nægja. . Guðrún
Bjarnadóttir sýnir brún-
an kjól frá Markaðn-
um, hann er raunar pils
og blússa. Pilsið er snið-
ið út á ská. Blússan er
laus, nær rétt niður fyrir
mitti. Ef myndin prent-
ast vel má sjá þver-
skurði í pilsinu, sem gefa
því skemmtilegan en þó
einfaldan svip.
Á eindálksmyndinni sýnir
frú Edda Ólafsdóttir að-
skorin ullar-jerzey-kjól frá
verzluninni Eygló, ljósdrap-
litaðan. Kjóllinn er tekin
saman um mittið með band-
belti úr sama efni og kjóll-
inn. Yfir barminn liggur
handstungið berustykki í
dekkri lit. Leðurtala í háls-
inn.
Dragtin, sem frú Edda
sýnir er frá Eygló. Hún er
úr gráu ullartweed-efni
með kanínuskinn (Light
Charcol) á jakkanum, og
þrjár stórar ibenholttölur.
reiðaeftirlitsmanna var haldð í
Helsingfors dagana 27.—30.
júlí s.l. Bifreiðaeftirlitsmenn
frá öllum Norðurlöndunum á-
samt vegamálastjórum Finn-
lands, Noregs og Svíþjóðar sátu
mótið. Á mótinu var meðal ann-
ars rætt um hin tíðu og alvar-
legu umferðaslys er oft stafa af
ógætilegum og gálausum akstri.
Stjórn félagsins skipa::
Gestur Ólafsson, formaður,
Svavar Jóhannsson, ritari,
Sverrir Samúelsson, gjaldkeri,
meðstjórnendur: Bergur Arn-
björnsson og Magnús Wium
Vilhjálmsson.
Leiðrétting.
Sú mein)ega og villandi
prentvilla varð í viðtali við dr.
Sigurð Þórarinsson um eldsum-
brotin í Öskju í Vísi í fyrradag
að breidd sprungnanna, sem
myndast hafa við jarðhræringar
voru sagðar frá 1 cm upp í 300
cm, en átti að vera 2—30 cm.