Vísir - 09.12.1961, Blaðsíða 4
V I S I R
Laugardagur 9. desember ?IM1'
Þessar tvœr teikningar úr bókinni Náttúra íslands gefa hugmynd um það hvernig
móbergið myndaðist. Það hefur orðið við eldgos undir jökli. Vinstra megin sést hvernig
hraunefnin hlaðast upp undir ísnum. Hægra megin er jökulinn horfinn og eftir stendur
móbergssstappinn.
Náttúra íslands.
Náttúra íslands. 14 rit-
gerðir um íslenzka nátt-
úrufræði. Útg. Almenna
bókafélagið. Kr. 252,00.
Til félagsmanna kr.
195,00.
Þorvaldur Thoroddsen var
og verður alltaf hinn mikli
landkönnuður íslands. Afrek
hans voru fólgin í því að
hann ferðaðist um gervallt
landið, byggðir og óbyggðir.
Hann var stórlega afkasta-
mikill rithöfundur, sem lagði
megináherzlu á að fræða
þjóð sína og aðrar þjóðir um
landið, með ferðabókum sín-
um, íslandslýsingum og með
urmul einstakra ritgerða og
fyrirlestra.
★
Síðan Þorvaldur féll frá
hafa náttúruvísindi eins og
flest önnur vísindi tekið ó-
trúlegum framförum.
Hann var á sínum tíma
eini lærði íslenzki náttúru-
fræðingurinn. Nú hefur risið
upp í landinu stór stétt nátt-
úrufræðinga á öllum sviðum,
með nýjustu vísindalegum að
ferðum og einbeitir sér að á-
kveðnum takmörkuðum við-
fangsefnum. Það er því eng-
in furða þótt margt nýtt hafi
komið í ljós og að hinar skjót
dregnu ályktanir Thorodd-
sens hafi reynzt rangar á
mörgum stöðum, eða megi
kallast úreltar.
Á hinn bóginn hefur það
vakið nokkra undrun hve
hin stóra stétt náttúrufræð-
inga hefur gert lítið að því
að fræða almenning um þær
miklu uppgötvanir sínar,
helzta samband þeirra við
„umheiminn“ hefur verið
tímaritið Náttúrufræðingur-
inn, en þar fyrir utan fátt
eitt nema óaðgengilegar sér-
fræðiritgerðir. Það verður t.
d. að kallast dæmalaus
I skussaháttur, að ekkert skuli
enn hafa orðið úr áætlunum
um að gefa út nýja íslands-
lýsingu. Ekki má þó gleyma
hinum miklu dýrafræðiritum
Bjama Sæmundssonar.
En því rek eg þessa sögu
alla, að nú fyrir nokkru hef-
ir Almenna bókafélagið gef-
ið út bókina „Náttúra ís-
lands“, sem er í rauninni
fyrsta tilraunin, sem er nokk-
urs virði, síðan á dögum
Thoroddsens til að gefa ís-
lenzkum almenningi heild-
armynd af sköpunarsögu og
náttúru landsins.
Bók þessi er um 320 síður,
er samsafn 14 ritgerða eftir
13 íslenzka náttúrufræðinga.
Hún fjallar m. a., um jarð-
fræði, veðurfræði, jökla-
fræði, hafrannsóknir, dýra-
fræði og plöntufærði.
Hér í þessari stuttu grein
er ekki kostur að telja upp
allar ritgerðirnar eða höf.
þeirra, en það leikur enginn
vafi á því, að meginefni og
uppistaða bókarinnar eru
nokkrar ritgerðir um jarð-
fræði íslands. Þær eru með-
al þess fróðlegasta og
skemmtilegasta, sem eg hefi
lesið um íslenzka náttúru-
fræði.
Þeir skipta þannig með sér
verkum, að Trausti Einars-
son skrifar um upphaf ís-
lands og blágrýtismýndun-
ina, Guðmundur Kjartans-
son um móbergs- og grágrýt-
ismyndunina. Jóhannes Ás-
'kelsson (sem nú er látinn)
um steingervinga, Sigurður
Þórarinsson um eldstöðvar,
þ. e. jarðmyndun eftir ís-
öld, Jón Jónsson um jarðhit-
ann og Tómas Tryggvason
um hagnýt jarðefni.
Allar þessar jarðfræði-
greinar eru hver annarri bet-
ur samdar, enda hefir það
allt frá dögum Jónasar verið
höfuðkrafa til íslenzkra nátt-
úrufræðinga að þeir séu
góðir stílistar. Tvær ritgerð-
anna finnast mér þó fremst-
ar, þær eftir Guðmur.d Kjart-
ansson og Sigurð Þórarins-
son.
★
Af því að eg hefi lengi haft
áhuga á náttúrufræði hefi eg
að vísu haft hugmynd
af þeim molum, sem af borði
hafa fallið, um margt af því
sem þarna kemur fram, en
eg spyr: — Hefir almenn-
ingur haft t. d. hugmynd um
það, hvernig móbergið mynd
ast. Skoðanir á því eru nú
orðnar ærið frábrugðnar því
sem var á dögum Þorvaldar
Thoroddsens, en gömlu kenn-
ingarnar hafa þó ríkt í
kennslubók í jarðfræði. Eða
hafa menn gert sér grein
fyrir því, að um þriðjungur
af öllu hrauni, sem komið
hefir upp úr jörðinni síðan
á ísöld hefir runnið á íslandi.
Hin merkilegu nýju fróð-
leiksatriði í „Náttúru ís-
lands“ eru óteljandi og er
hér e. t. v. um að ræða
fremstu bók sem komið hefir
út um íslenzka náttúrufræði.
Bókin er prentuð í prent-
smiðjunni Eddu og er frá-
gangur góður, fjöldi vel
gerðra mynda er settur á
smekklegan hátt inn í text-
ann, en maður rekst á prent-
villur t. d. ún í staðinn fyrir
nú og „af þjóðveginum milli
Heklu (á að vera Hellu) og
Hvolsvallar.
Þorsteinn Thorarensen.
Skipstjórinn —
Framh. af 1. síðu.
ir og hvítir eins og englar.
Lister skipstjóri segist ekki
hafa vitað af fyrr en varðskip-
ið Albert hafi farið að skjóta
fallbyssuskotum að honum án
allrar viðvörunar. Segir hann
að þeir á Albert hafi skotið 12
sinnum, þar af sex sinnum
kúluskotum og hafi sú kúlan,,
sem næst fór lent um 20 metra
frá togara hans. Hann viður-.
kennir að hafa hótað að sigla.
á Albert, enda var það tekið
upp á segulband en haxui hafi
aldrei gert tilraun til þess. Er,
allt annað eftir þessu.
Afgreiðslutími verzlana
næstu laugardaga verður sem hér segir:-
1 dag 9. des. til kl. 18.
16 des til kl. 22.
Á Þorláksmessu 23. des. til kl. 24.
Kaupfélag Reykjavíkur og nágrennis.
Kaupmannasamtök Islands.
Samband íslenzkra samvinnufélaga.
Verzlunarráð Islands.
HEMCO
Brauðristar
margar gerðir.
Verð frá kr. 337,00.
Armstrong-strauvélar
Hinar viðurkenndu
fyrirliggjandi.
Verð kr. 4.952,00
Margra ára reynzla
sannar ágæti vélanna.
HELGI MAGNUSSON & Co.
Hafnarstræti 19. Símar: 13184 og 17227.