Vísir - 19.12.1961, Page 1

Vísir - 19.12.1961, Page 1
VISIR 51. árg;-Þí?iðj«dagur 1Ö, desembcr 1-&61. — "231, tbl. Á si. sumri vtti' ttltlur» Sjfórötttttfttr Srú því að sitilltlttrvt»rli Margarei Mitcheil httttt t 'tí. Tíu miilfónir eintaka af 11 \ hverfanda hveli •11 jþann 8. júlí sendi Macmill- an-íorlagið í New York út 25 ára afmælisútgáfu af skáldsögunni „Á hverfanda hveli“ eftir Margaret Mit- chell, og var þar með haldið upp á mesta og furðanlegasta útgáfuævintýr, sem enn hef- ir gerzt á vorum dögum. Ó- nætt mun að segja, að „Á hverfanda hveli“ muni um langa framtíð verða talin dæmið um ótrúlegan og snögglegan stórsigur skáld- sögu. Margaret Mitchell var 35 ára, þegar sagan hennar kom út. Hún var lengi í vafa um, hvort hún ætti að láta þetta ,,afkvæmi“ sitt frá sér fara, og þegar hún loks sendi þessa 1037 bls. skáldsögu á markaðinn, varð hún fræg á einni nóttu. Daginn eftir út- komuna var hún útnefnd „bók mánaðarins" og þrem vikum síðar var upplagið orðið 176,000 eintök. Þegar ár var liðið, var eintaka- fjöldinn orðinn 1,383,000. Síðan hefir skáldsagan verið þýdd á 25 þjóðtungur —- þar á meðal á japönsku, kínversku, persnesku og arabísku, hún hefir verið tekin á smáfilmur, prentuð með blindraletri, lesin á grammófónplötur og tekin á kvikmynd, sem nú er á leið umhverfis jörðina í fimmta sinn. Alls hafa nú selzt af henni um 10 milljónir ein- taka um heim allan, þar af 5,5 millj. í Bandaríkjunum einum, og nú er verið að ræða um að byggja söngleik á henni. J^Jargaret Mitchell er skil- getið barn Suðurríkj- anna. Foreldrar hennar báð- ir voru af Suðurríkjaættum, og sjálf fæddist ,hún í At- lanta í Georgiu-fylki, hlaut þar menntun sína, giftist þar og skrifaði „Á hverfanda hveli“ þar. í æsku heyrði hún sífelt rætt um borgara- stríðið, en „eg var orðin tíu ára, þegar mér varð ljóst, að Lee hafði ekki sigrað. Það var mér mikið áfall,“ hefir hún sagt. Hún virðist í rauninni „ó- sköp venjuleg kona“. Hún var ár í menntaskóla, en hætti við andlát móður sinn- ar og tók við hússtjórn fyrir föður sinn og giftist síðan, en skildi fljótlega. Árið í922 varð hún blaðamaður við Atlanta Journal, og 1925 giftist hún á ný, að þessu sinni John R. Marsh — einnig Atlantabúa — og ári síðar hætti hún blaða- mennskunni og hófst handa um að skrifa skáldsöguna sína. gin af vinkonum hennar, Lois Dwight Cole, hefir komizt svo að orði, að Marga- ret hefði frábæra frásagnar- gáfu, svo að enginn undrað- ist, er það spurðist, að hún ynni að skáldsögu. Margar vinkvenna hennar vissu nokkurn Veginn, um hvað hún fjallaði, því hún kvart- aði sáran yfir því, að gömlu blaðaheftin, sem hún fengi að láni í Carnegie-bóksafninu væru svo þung, að hún yrði að liggja á gólfinu, þegar hún væri að lesa í þeim. Það tók tímann sinn að skrifa skáldsöguna. Árið 1933, þegar frú Cole var flutzt til New York, þar sem hún starfaði fyrir Macmillan-forlagið, skrifaði hún vinkonu sinni, að for- lagsstjórinn vildi gjarnan fá að lesa handritið „annað hvort fullgert eða í núver- andi mynd“. Margaret Mit- chell svaraði, að bókin væri ófullgerð og hún efaðist um að hún lyki henni nokkru sinni — og loks gerði hún ekki ráð fyrir, að hún mundi þykja nokkurs virði, þótt henni yrði lokið — en Mac- millan skyldi fá hana fyrst, ef hún tæki einhvern tíma ákvörðun um, að sýna for- leggjara hana. Jnn liðu tvö ár, og þá var aðalritstjóri Macmillans, Ilarold Latham, staddur í Atlanta á leið í hvíldardvöl suður í landi. Hann hitti Margaret Mitchell, sem sagði tvívegis, að hún hefði ekkert handrit að sýna hon- um. en allt í einu birtist hún svo í gistihúsherbergi hans með stærsta handrit, sem hann hafði nokkru sinni séð. „Arkahlaðinn náði henni í öxl“, sagði hann. Um leið og hún fékk honum handritið, sagði hún: „Takið það strax, áður en ég sé mig um hönd.“ Morguninn eftir Svefnherbergisatriði úr kvikmyndinni. Það er Scarlett O’Hara, leikin af Vivian Leigh, sem stendur til vintri og lítur á sofandi stúlkurnar. Litla myndin að ofan er af Margaret Mitchell xun þær mundir, þegar skáldsaga hennar kom út fyrir aldarfjórðungi. — keypti Latham ferðatösku til að geyma handritið í. Þegar hann var kominn til New Orleans, fékk hann svohljóð- andi skeyti: ENDURSEND- IÐ HANDRITIÐ. HEFI SÉÐ MIG UM HÖND. En Latham sendi útgáfusamning í stað handritsins. Það hafði nefnilega verið of stórt til þess að hann vildi hafa það með á ferðalaginu, svo að hann hafði sent það til New York, þar sem frú Cole fékk loks að lesa það eftir átta ára bið. Hún komst svo að orði, að það, hefði ver- ið versta handrit, sem hún hefði nokkru sinni athugað. Fyrsta kafla vantaði — Margaret hafði gert sex eða sjö uppköst en fleygt öllum — og svo komu tveir kaflar ágætlega vélritaðir. Þá komu kaflar, sem ýmist voru hrip- aðir með blýanti eða bleki og margar útgáfur af sum- um. Á sumum stöðum vant- aði í söguna og þar fram eftir götunum. En samt leizt frú Cole vel á söguna og sama máli gegndi um prófessor Everitt við Kolumbíuháskóla, sem var ráðunautur hjá Macmillan. 7 ♦ ' Jkáldsagan var, er hér var komið, orðin að þjóðsögu- efni í Atlanta. Allir vissu, að Margaret Mitchell hafði skrifað langa skáldsögu, en enginn hafði fengið að lesa hana — nema maður henn- ar. Samt fóru „vinkonur“ hennar ekki dult með skoðun sína á henni, og um þær mundir var margt rithöfunda í Atlanta. Ein þeirra komst svo að orði; „Satt að segja held ég ekki, að þú sért sú „týpa“, sem getur skrifað almenni- lega bók. Ég held, að þú lít- ir ekki nægilega alvarlegum augum á lífið, til að verða skáld. Og þú hefir ekki held- ur fengið hana aftur í haus- inn frá forleggjara? Það er einkennilegt! Ég hefi fengið mína endursenda frá öllum beztu útgefendunum. En Framh á 3 síðu.

x

Vísir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.