Vísir - 19.12.1961, Blaðsíða 8

Vísir - 19.12.1961, Blaðsíða 8
8 V í S I R Þriðjudag'.u 19. desember 19G1 Jólaferðir Fiugfélagsins Ástarsjansinn — Frh. af 6. síðu: arsson hefir réttilega bent á, að það sem sé sameiginlegt með gamla skáldskapnum, dróttkvæðum og rímum, og myndlist nútímans, sé form- festa, hnitmiðað form. Ég er ekki að ætlast til að öll skáld fari að yrkja drótt- kvæði og rímur. Svokallaður atómskáldskapur er skemmti legt stundarfyrirbæri og getur verið ágætur skáld- skapur, þó að mikið sé þar af leir, alveg eins og meðal rímanna og allra yrkingar- forma. Ég læt mig ekki dreyma um, að rímurnar hefjist aftur til þess vegs og valda, sem þær eitt sinn höfðu. Þó held ég, að áhugi á þeim muni enn lifa um margar ókomnar kynslóðir. Það lofar góðu, að yngra fólk er nú miklu frjálslynd- ara gagnvart rímum en eldra fólkið. Og það ótrúlega kom í Ijós, þegar ég fór að glugga í bókina Rímnavöku, að margt ungt fólk í Reykja- vík fæst við að yrkja rímur, og enn fleira hefi ég komizt á snoðir um síðan bókin kom út. Meira að segja er í Rímnavöku rímnamansöngur eftir eitt atómskáldanna reykvísku, Ara Jósefsson. (Orti hann rímuna í félagi við Halldóru Blöndal). Er ekki bezt að enda þetta tal með sýnishornum af kveð- skap þeirra félaga? EINS og um undanfarin jól og nýár munu vélar Flugfélags íslands auðvelda fólki lang- ferðirnar milli landa eða lands- hluta á Fróni. Innanlandsflugið. Þriðjudaginn 19. til Akureyr- ar tvær ferðir og Egilsstaða, Vestmannaeyjar og Sauðár- króks. Miðvikudaginn 20. des. til Vestmannaeyja, Akureyrar, Húsavíkur og ísafjarðar. Fimmtudaginn 21. des til Ak- ureyrar (tvær ferðir), Kópa- skers, Þórshafnar, Vestmanna- eyja og Egilsstaða. Föstudaginn 22. des. til Akur- eyrar (tvær ferðir), Vest- mannaeyja, ísafjárðar, Klaust- urs, Fagurhólsmýrar og Horna- fjarðar. Laugardaginn 23. des. Þor- láksmessa: Til Akureyrar (tvær ferðir). Húsavíkur, Vest- mannaeyja, ísafjarðar, Egils- staða og Sauðárkróks. Sozt a5 augjýsa i ¥SSS Sunnudag, aðfangadag jóla, er flogið til Akureyrar og Vest- mannaeyja, en ekkert á jóladag. Þriðjudag, annan jóladag, verður flogið til Vestmanna- eyja, Akureyrar og Egilsstaða. Milli jóla og nýárs verður flogið innanlands samkvæmt á- ætlun. Á gamlársdag verður flogið til Akureyrar og Vestmanna- eyja en á Nýársdag liggur allt flug niðri. Þriðjudaginn 2. janúar hefst áætlunarflug að nýju. Auk Dakotaflugvéla, sem að jafnaði eru í flugferðum innan- lands, verða Viscount flugvél- arnar „Gullfaxi“ og „Hrím- faxi“, svo og Cloudmasterflug- vélin „Skýfaxi11 í flugferðum innanlands um hátíðarnar. Allmikið hefir verið um auka- flugferðir innanlands aðallega með vörur. Farnar hafa verið vöruflutningaferðir til Horna- fjarðar, ísafjarðar og Akureyrar undanfarna daga. Millilandaflugið. Mánudaginn 18. des. og mið- vikudaginn 20. des. verður flog- ið til Glasgow og Kaupmanna- Rokkið prísa skelliskröll, skandalísera bæinn. Það eru skvísleg húllum-höll, húkkar físu gæinn. Delar barnum dragast að. Drykkir um varir streyma. Svo verður farið strax af stað. í stællegt kar að geima. Rokkar stanslaust físufans fáir dansa Óla skans. Er það vansinn okkar lanz: ástarsjansinn rokkgæans. !■■■■■! .■.V.V.V.V.V.V.V.V.V.V.V.V.V.'.V.V.V.’.V.V.VV.V.V.V.V.V.V. ER /UISST^PAP BEZIA Það er auðvelt að taka á móti gestum og gleðjast með vinum sínum ef COCA-COLA er til í ísskápnum. JólablaB Æskunitar. HIÐ gamla og virðulega barnablað Æskan, jólablaðið, er komið, efnismikið og skemmti- legt að vanda. Vígslubiskup, hinn sístarfandi kirkjuleiðtogi séra Bjarni Jónsson, skrifar jólahugvekjuna „í kirkju á jól- um“. Síðan koma Jóla-bernsku- minningar eftir Stefán frá Hvítadal. Ferðasaga frá Kaup- mannahöfn. Ýmsar fræðigrein- ar eru, m. a. um vinsælasta barn Bandaríkjanna, dóttur forsetahjónanna þar, Æskan efnir nú til ritgerðai'samkeppni í samráði við Bókaútgáfu Menn- ingarsjóðs, og er það jafnframt , spurningaþraut um líf og starf Jóns Sigurðssonar forseta. Er greint frá því hvernig sam- keppninni verði hagað. í handa-! vinnuhorninu kennir margra grasa. Sagt er frá jólaleikjum og margt fleira til skemmtuna og fróðleiks er í Æskunni. •v.v.v.v.v hafnar og til Reykjavíkur frá sömu stöðum þriðjudaginn 19. des. og fimmtudaginn 21. des. Föstudaginn 22. des. verður síðasta ferð til útlanda fyrir jól. En þann dag verða ferðir til útlanda fyrir jól. En þann dag verða ferðir til Kaupmanna- hafnar og Glasgow og til Reykja víkur aftur sama dag. Miðvikudaginn 27. des. verður aftur flogið til Glasgow og Kaupmannahafnar og heim daginn eftir. Miðvikudaginn 3. jan. verður flogið til Glasgow og Kaupmannahafnar og upp frá því verður millilandaflugið samkvæmt áætlun. (Frá Flug- félagi íslands.) \ lllllllllll Föt frá Spörtu jakkar frá Spörtu terylenebuxur frá Spörtu klæöa drenginn bezt | um jjólin Verzl. DANÍEL V^ltusundi 3 Síími 1-16-16

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.