Vísir - 19.12.1961, Blaðsíða 7

Vísir - 19.12.1961, Blaðsíða 7
Þriðjudagur 19. desember 1961 V í S I R 7 Ijéit ur Cermb&s-saMt j \ Ármann Kr. Einarsson. Önnur þeirra heitir „Ævin- j týri í borginni“, og er það; framhald af „Ævintýri í j sveitinni“, sem áður er kom- in út. Þessi bók er hin 15. í röð unglingabóka sem Ár- mann hefur skrifað. Hin bókin nefnist „Óska- steinninn hans Óla“, og er upphaf að nýjum bóka- flokki sem höfundur sendir frá sér á næstunni. Báðar þessar bækur eru skemmtilegar unglingabæk- ur, frágangur vandaður og verði er mjög í hóf stillt. Áhrifamikið verk. Albert Camus: Fallið. Loftur Guðmundsson sneri á ís- lenzku. Bókaforlag Odds Björnssonar. Akureyri 1961. Skáldsagan Fallið er áreið- anléga eitthvert einkennileg- asta verk, sem út kemur að þessu sinni. Hún er í rauninni eintal manns, sem er að segja frá og gefa skýringu á ævi sinni. Það er lögfræðingur frá Par- ís, mætur maður í sinni stétt, sem Camus lætur segja sögu þessa. Sögumaðurinn hefir ver- ið dáður af mörgum, því að hann hefir lagt sig fram um að skapa af sér fagra mynd, hann leikur hjálparhellu allra þeirra, sem eitthvað eiga um sárt að. binda eða erfiðleikar þjá. Loks gerir hann sér þess þó grein, að athafnir hans og fojýar bæSiur * frá Armanni. allar gerðir hafa stjórnazt af ást hans á sjálfum sér og engu öðru. Næmur lesandi finnur, að sögumanni er mikið niðri fyrir, hann þarf að fletta ofan af sálu sinni til að fá friðinn, sem hann hélt að hann nyti meðan hann lék hlutverk sitt sem hinn góði hjálpari smælingjanna, en hefir verið sviptur, síðan hann sá undir yfirborðið á sjálfum sér. Lesandanum kann að koma í hug maður, sem þarf að tala án afláts, til þess að heyra ekki til raddar samvizku sinnar, og enginn vafi leikur á því, að hugsandi lesandi skoðar sjálf- an sig við lestur þessa verks. Þess vegna er það vekjandi, þótt það sé ekki fyrirferðar- mikið. Loftur Guðmundsson rithöf- undur hefir íslenzkað Fallið, og gert það með miklum ágæt- um, og mun þó vera erfitt að halda hinni sérkennilegu hrynjandi f frásögninni. FRJÁLST VAL! Loksins hefur bílainnflutningurinn verið gefinn frjáls. Nú er vandinn sá að velja rétta bflfnti. En það er alltaf jafn VANDALAUST AÐ VELJA RÉTTA TRYGGINGAFÉLAGIÐ aqíslandsi Borgartúni 7 — Sími 11700 , Bókaforlag Odds Björns- ar, á Akureyri, hefur sent frá sér tvær nýjar bækur, eftir Ármann Kr. Einarsson, sem um árabil hefur verið einn vinsælasti höfundur unglingabóka hérlendis. handa eiginkonunni unnustunni dótturinni er SINDRASTÓLLINN Sindrasmiðjan Hverfisgötu 42. — Sími 24064.

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.