Vísir - 10.01.1962, Page 1
VISIR
52. ári
Útsölurnar byrjaðar.
Þótt jólin séu hjá liðin er
enn mikil verzlun í búðiun
bæjarins. Eru það þó fyrst og
fremst útsölurnar mörgu,
sem setja svip sinn á verzlun-
arlífið í janúar og febrúar.
Útsölurnar eru nú þegar
að hefjast í mörgum búðxun
og virðast skósölurnar ætla
að verða fyrstar af stað, en
vefnaðarvöru-útsölur hefjast
ekki fyrr en síðar í mánuðin-
um.
Myndina sem hér birtist
tók ljósmyndari Vísis I. M. í
gær á skóútsölu í verzluninni
Ríma í Austustræti. Var þar
úr miklu að moða eins og
myndin sýnir.
Lenti næstum
i
Frá fréttaritara Vísis. —
Akureyri í morgun.
Minnstu munaði að bifreið
yrði fyrir snjóflóði í Ljósa-
vatnsskarði í gærkveldi, en
ökumaðurinn sá til skriðunnar
í tæka tíð og slapp.
Bifreið þessi var á leið úr
Fnjóskadal að Laugaskóla. En
þegar hún var komin á milli
bæjanna Kross og Litlu-Tjarnar
hljóp snjóskriða úr fjallinu og
á veginn fyrir framan bílinn.
Við það snéri ökumaðurinn til
baka og heim til sín. Hafa öku-
menn og aðrir vegfarendur nú
verið varaðir við snjóflóðahættu
í Ljósavatnsskarði.
Þá er og talinn mikil hætta
á snjóflóðum í mynni Fnjóska-
dals á leiðinni milli Þverár og
Litlagerðis, en hættulegasti
staðurinn þar er Græðisgil.
Hafa menn verið einnig varaðir
við hættu þarna og umferð
lagzt niður eins og sakir standa.
Mjólkurbifreið úr Fnjóska-
dalnum gerði tilraun til að
brjótast yfir Vaðlaheiði í gær.en
sat föst á heiðinni og varð að
bíða hjálpar. Talstöð var í bíln-
um og í gegnum hana gat öku-
maðurinn beðið um aðstoð ýtu.
Ruddi hún veginn og komst
rm. á bis. s.
Sigurður Sigurðsson
landlæknir hefur skýrt
Vísi svo frá, að Alþjóða-
heilbrigSismálastofnunin
hafi sent út tilkynningar
um að vart hefði orðið
4 bólusóttartilfella í Ev-
rópu. Þrjú þessara til-
fella voru að heimili
Jacobs verkfræðings í
Dússeldorf, sem kunn-
ugt er af fréttum, en það
Fjórða til-
fellið í
Svisslandi.
var þessi þýzki maður,
sem bar veikina frá
Afríku. Auk hans hafa
kona hans og barn
veikzt.
FTamh á bls. 5.
í síldarleit.
Verður úti um óákveðinn tíma.
VarðskipiíJ Ægir lét úr höfn
í gærkvöldi, og verður það við
síldarleit fyrst um sinn.
Jakob Jakobsson fiskifræð-
ingur mun stjórna rannsóknum
þeim, sem framkvæmdar
munu verða. Síldveiðisjómönn-
um mun verða leiðbeint, eins
og Fanney hefir gert að undan-
fömu, en hún kemur inn til
þess að fara í hreinsun, sem
tekur nokkurn tíma. Þegar
hreinsuninni verður lokið, mun
Fanney væntanlega verða send
aftur til sinna fyrri starfa við
að leiðbeina síldveiðiflotanum,
ef afli helzt eitthvað áfram.
Óvíst er, hversu lengi Ægir
verður í þessum leiðangri, en
það mun að sjálfsögðu fara
nokkuð eftir þeim árangri, sem
fæst af rannsóknunum, en fyr- 1
irhugað er, að athafnasvæði
skipsins verði hér við suðvest-
anvert landið, svo og vestur af
Snæfellsnesi, þar sem síldar-
aflinn hefir orðið mestur.
Már Elísson.
Efnahagsbanda-
lagið og fsland.
Hér á landi er Efnahags-
bandalagið að verða mál
málanna, ekki síður en í
öðrum Evrópulöndum. Vísir
hefir fengið Má Elísson
hagfræðing til þess að rita
tvær greinar um Efnahags-
bandalagið og ísland. Mun
fyrri greinin fjalla um
bandalagið sjálft, tilgang
þess og eðli, en hin seinni
sérstaklega um afstöðu ís-
lands.
Birtist fyrri greinin hér í
blaðinu á morgun og sú síð-
ari á föstudag. Er ekki að
efa að marga muni fýsa að
kynna sér þau sjónarmið,
sem þar koma fram.