Vísir - 10.01.1962, Síða 3
I
:
Miðvikudagur 10. janúar 1962
sí,-gyrr.
Tónar í kirkjuhvelfingu
Það var hátíðleg stund í
Landakotskirkjunni um síð-
ustu helgi, þegar tveir kórar
bundust samtökum um að
flytja jólatónleika þar. Voru
það Kvennakór Slysavarnar-
félagsins og Karlakór Kefla-
víkur, sem höfðu samvinnu
um þetta. Um fyrri helgi
höfðu samskonar kirkjutón-
leikar farið fram í Keflavík-
urkirkju.
Kórarnir sungu bæði ein-
ir sér og sameinaðir. Stjóra-
andi var Hribercek, en ein-
söngvarar Snæbjörg Snæ-
bjarnardóttir, Eygló Viktors-
dóttir og Sverrir Olsen. Páll
ísólfsson lék með kórunum
og ennfremur lék hann ein-
leik.
Söngskráin var mjög fjöl-
breytt, bæði innlend og er-
lend lög, en stærsta og erfið-
asta verkið var „Guð er
minn hirðir“ eftir Schubert.
Myndsjá Vísis í dag birtir
tvær svipmyndir frá þessum
tónleikum. Á efri myndinni
sjást þeir stjórnandinn Hri-
bercek og Páll ísólfsson á-
samt hluta af kórnum, en á
neðri myndinni er stemn-
ingsmynd úr hinni kaþólsku
Kristskirkju. Var mikil að-
sókn að tónleikunum og
urðu margir að standa eins
og myndin sýnir.
sem er sjúklega háð föður sín-
um. David Niven sýnir skýrt
hinn útlifaða heimsmann, sem
er að tapa baráttunni við aldur-
inn og getur ekki orðið ánægð-
ur með neitt, þar sem hann veit
ekki eftir hverju hann sækist.
Deþorah Kerr er þó þeirra bezt
og er frábær þar sem hún kem-
ur að unnustanum í fanginu á
annari konu.
Það sem mynd þessi sýnir
ljósast er að auður án andlegs
lífs er engu síður bölvun en
blessun. Ó. S.
Áskrrftasími Vísis
er 1-16-60
Sumarást
(Bonjour
Tristesse) er
jólamynd
Btjörnubíós í
ár. Hún er
gerð eftir bók
Francoise Sag-
an, sem mikið
selst, en fengið misjafna
dóma. Myndin fjallar um
föður (David Niven) og dóttir
hans (Jean Seberg), sem búa í
velsæld á Rivierunni og
um ekkert annað að hugsa
en aá skemmta sér. Hann hefur
ástmeyjar, en aldrei þá sömu
lengi. Svo fer þó að vinkona
látinnar konu hans (Deborah
Kerr) kemur í heimsókn og á-
kveða þau að giftast. Dóttur-
inni þykir þetta draga athygli
föðurins um of frá sér og tekst
að koma í veg fyrir giftinguna
með óhugnanlegum ráðum.
Mynd þessi er ákaflega vönd-
uð og vel gerð. Aðalleikarar
fara allir vel með hlutverk sín.
Jean Seberg leikur mjög vel
hina frísklegu ungu stúlku,