Vísir - 14.02.1962, Page 15

Vísir - 14.02.1962, Page 15
Miðvikudagur 14. febr. 1962 VISIR 15 >*K>2>K>Í>K>S>K>£> Rauðhærða hjúkrunarkonan um í Aþenu í stofnun nokk- urri og mundi hann fara þangað með frúnni, skips- lækninum og Edna Blake. Stjóm stofnunarinnar hafði undirbúið skemmtunina og frú Peterson ætlaði að borga brúsann. Mathew Carson sagði Jane, að eftir aðalhátíðahöldin yrði sýnd kvikmynd, sem Edna Blake og læknirinn ætluðu að sýna, „en á meðan ætlum við Lydia að skoða Akropolis.“ Og Matthew Carson brosti góðlátlega. — Jane varð allt í einu miklu léttari í lund en hún hafði áður verið — næst- um eins og kvöldið áður en komið var til Alexandríu. Og hún varð enn glaðari, er hún leit í áttina til Sky Dawsons, og hún sá hann brosa til sín. Og það var eins og öll hin hyrfu — hún sá engan nema hann. Og Jane skemmti sér hið bezta. Henni var það mikið undrunarefni hversu dugleg- ir hljóðfæraleikarar sumir farþegarnir voru, en mesta undrun hennar vakti, er Pet- er uNgent lék á sítar gömul þjóðlög við almenna aðdáun. Og Sky Dawson lék á banjo af mikilli leikni! Og til þess að kóróna allt sungu þeir tví- söng hann og Sky og urðu að endurtaka mörg lögin. Seinna um kvöldið kenndi Edna grískan hópdans með 12 pör- um, — og Jane varð fyrir vali Sky sem dansfélagi. — Þú ert alveg yndisleg í kvöld, hvíslaði hann einu sinni í dansinum. — Ég er viss um, að þú segir þetta við þær allar, svar aði hún. — Ég hef aldrei sagt það við neina nema þig. — .Jæja, þú. hefur vitanlega skoðanafrelsi. Það var ekki fyrr en þau gengu aftur að borðinu, sem hann veitti athygli armband- inu. Hann virtist þekkja það, þótt hún minntist þess ekki að hafa séð frú Peterson bera það. — Þetta er sérlega falleg- ur gripur, sagði hann, — frú Peterson er vissulega einhver rausnarlegasta og gjafmild- asta kona, sem ég hef kynnzt. — Já, ég held það sé falleg- asti gripurinn, sem ég hef nokkum tíma eignast — og mér finnst hann fallegri en þegar ég valdi hann úr öllum hinum — og af skartgripum ætluðum til hversdagsnota er hann vissulega óvanalega fagur og vel gerður. Jane varð allundrandi er hún sá, að Sky lyfti brúnum eins og hann ætlaði að fara að spyrja einhvers. Hann virt ist ætla að segja eitthvað, en virtist hafa hætt við það, því að hann sagði: — Þakka þér fyrir dans- inn, Jane. Við hittumst á morgun — í Aþenu. XII. kapituli. Tíminn leið — allt of fljótt. Jane fannst það að minnsta kosti stundum. „Madrigal" sigldi nú meðfram ströndum ,,hælsins“ á Italíuskaga. Dvöl in í Aþenu var þegar skráð í bók minninganna — og vissu- lega mundi Jane aldrei gleyma þessari dásamlegu borg. Hún lifði í endurminn- ingunni um fornar rústir, fom listaverk, kaffistofurnar og fólkið, vingjarnlegt, gest- risið og glaðlynt. Hún hafði lært að segja nokkur orð á grísku — til þess að geta þakkað fyrir sig — og þessi orð voru eins og lykill að hjörtum fólksins. Hún hafði klifið Akropolis. Hún hafði litið Partheon í tunglsljósi. Hún hafði farið í marmara- kapellu og beðist fyrir. Þrjá daga lá skipið í Piræus, hafn- arbæ Aþenu, og tíminn leið fljótt, allt of fljótt. Og Jane fannst, að öðrum hlyti að hafa fundist slíkt hið sama. — Korfu var líka skráð í bók minninganna, en hana hafðí hún aðeins séð af skipsfjöl. Og svo spratt það upp úr þessum hugléiðingum, að skip inu væri nú siglt í vesturátt. Þau vom á heimleið. Og inn- an tíðar yrði allt þetta og ferðin öll skráð í bók minn- inganna. Og nú fannst Jane dálítið dapurlegt um þetta að hugsa, — henni var orðið hlýtt til margra farþeganna og skipverja. Og Sky — hún reyndi að bægja burt tilhugs- uninni um það, er hún yrði að kveðja hann — reyndi að við- j urkenna fyrir sjálfri sér, að hún hefði orðið ástfangin í j honum, manni, sem kannske var ekkert nema daðrari og J fjárhættuspilari. Þegar hún kom inn til lækn isins síðdegis, sá hún, að hann var eitthvað að byrja að búa sig undir ferðalok, því að hann var að pakka niður á- K V I 3 T Leyfið mér að taka mynd af yður. Gleðjið fjölskylduna með fallegri fegrandi mynd í litum til að hengja upp á stofuvegginn. ^K>Z>K>£>i>«>K>£>K>S>K>£>K>S>K>£>K>*>K>£>K>2>K>£>K>£>K>«>K>S>K>«: höld, sem hann hafði aldrei þurft á að halda. Þegar Jane horfði á hann spurnaraugum brosti hann: — Hraustasti hópur, sem ég hef fyrir hitt á ferðalagi. Mér mundi finnast, ef þetta hefði ekki komið fyrir með frú Carter-Peterson, að við hefðum blátt áfram ekkert haft að gera. — En var við öðru að bú- azt? Þetta er allt efnað fólk, sem vafalaust hefur undir- gengizt stranga skoðun lækna sinna, áður en það lagði upp í þessa 40 daga ferð — þótt skemmtiferð væri við beztu skilyrði. — Föðurbróðir minn sagði, að maður yrði alltaf að vera við öllu búinn, einnig á svona ferðalagi, — og hann hefur reynsluna. Og ég ætla ekki að hrósa happi of snemma, — við eigum eftir að koma í f jór ar hafnir, Napoli, Cannes, Barcelona og Lissabon. Hvað sem er gæti gerzt, en við skul- um vona það bezta. — Já, vitanlega, sagði Jane og krosslagði finguma eins Barnasagan Kalli kafteinn -^C FELJÓTAND! EYJAIM 27 „Bíflugu?“ endurtók stýri- maðurinn. „Ha, til hvers?“ — „Hugsaðu þig nú vel um, hvað hefur þú lsert i skólanum um bíflugurnar og litlu blómin ?“ Stebbi stýrimaður rembdist við að hugsa og hugsa, en ár- angurslaust. „Bíflugur stinga", sagði hann, um leið og hinir snéru til baka. Ein bífluga", endurtók Stebbi, „ég vildi held- ur láta hengja mig, en að veiða bíflugur handa Kalla ... ég segi bara í kvöld, að hér hafi ekki verið neinar bíflugur." í sama bili suðaði stór og mynd- arleg bífluga við eyrað á stýri- manninum. „Burt með þig“, hvæsti stýrimaðurinn og sló frá sérNmeð hendinni, ,,þú átt ekk- ert erindi hingað. Bíflugan sett ist á blóm og fór að sjúga hun- ang úr því og stýrimanninum gafst timi til að hugsa sig um. Eiginlega var það að ganga á bak skyldu sinnar að neita að handsama bífluguna, eða að gera ekki að minnsta kosti til- raun til þess. Hann sótti í sig veðrið og réðist gegn biflug- unni, sem var skjótari í snún- ingum og smaug niður í skjól. og Clayton læknir hafði gert. — Þetta var nú samt góð reynsla, o gég sé ekki eftir að hafa farið þessa ferð. Og nú er mér sama þótt ég segi þér, að ég sleppi starfinu aftur glaður í hendur Williams frærida. Það er smábær ofar- lega í New York ríki, þar sem ég hefi hugsað mér að opna lækningastofu. Það er fæðing arbær minn, og meðal ann- arra orða — raunar líka fæð- ingarbær Ednu Bjake. Hann þagnaði skyndilega og var dálítið vandræðalegur eftir játninguna, svo að Jane flýtti sér að breyta um um- ræðuefni: — Lenti föðurbróðir þinn aldrei í neinum erfiðleikum, er hann var skipslæknir ? Jerry Clayton glotti og sagði, að sér hefði nú alltaf fundizt að föðurbróðirinn hefði viljað gera heldur of mikið en lítið úr hve þetta væri erfitt, en annars væri gamli maðurinn ekki að LOGFRÆÐINGAR GÚSTAF ÓIAFSSDN hæstaréttarlögmaður Austurstræti 17. — Síml 13354 Sigurgeir Sigurjónsson hæstaréttarlögmaður Málflutningsskrifstofa Austurstr. 10A. Sími 11043

x

Vísir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.