Vísir - 15.02.1962, Blaðsíða 3

Vísir - 15.02.1962, Blaðsíða 3
Fimmtudagur 15. febrúar 1962 VÍSIR 3 Skriða banar bömum Tvö börn biðu bana af völd- um skriðuhlaups í úthverfi Los Angeles í fyrradag. Rigningar höfðu verið þar um slóðir í samfleytt fimm daga og orsökuðu um síðir, að aur- skriða hljóp á nokkur hús og færði þau af grunni. Tvö börn voru ein heima í tveim húsanna og biðu bana. Ungfrú Irene Song var ný- lega gefin saman í hjónaband við herra Stanley Sing í Jo- hannesarborg í Suður-Afríku, A.m.k. síðasta hálftímann va'r stöðugt biðröð fyrir utan herbergi Stúdentaráðs þar sem kosning fór fram. Myndin er tekin skömmu áður en kosningu lauk. (Ljósmyndirnar tók Pétur Þorsteinsson). Magnús, Stardal, Ólafur Þórð- arson, Varmalandi og Matthías Á. Mathiesen. Þegar samþykkt höfðu verið lög fyrir fulltrúaráðið var kjör- ið í stjórn þess. Stjórnina skipa Ólafur Bjarnason, Brautarholti, formaður, Friðrik Dungal, Sel- tjarnarnesi, varaformaður, Gísli Andrésson, Hálsi, ritari, Snœ- björn Ásgeirsson, Seltjarnar- nesi og Jón M. Guðmundsson, Reykjum. í varastjórn voru kjörnir Ólafur Þórðarson, Varmalandi, Vilhjálmur Vil- hjálmsson, Seltjarnarnesi og Ólafur Á. Ólafsson, Valdastöð-. Þá fór og fram kosning fulltrúa í kjördæmisráð Sjálfstæðis- flokksins í Reykj aneskj ördæmi. Fulltrúaráð stofnað í Kjósarsýslu , Axel Kvaran, stúd. jur. ogl sjósundsmaður, gengur inn íl kjörklefann á elleftu stundu.l Hann komst ekki að kjör-l borði fyrr en kl. átta uml kvöldið og búið var að lokai kosningarherberginu. Þann 30. janúar sl. var hald- mn stofnfundur Sjálfstæðis- félaganna í Kjósarsýslu. Matt- hías Á. Mathiesen, alþigismað- ur, setti fundinn og skýrði til- efni hans. Ólafur Bjarnason, Brautarholti, var kosinn fund- arstjóri og Gísli Andrésson, Hálsi, fundarritari. Til fund- arins voru mættir kjörnir full- trúar frá sjálfstæðisfélaginu „Þorsteinn Ingólfsson“ og Sjálfstæðisfélagi Seltirninga. Þá var mættur á fundinum Þorvaldur Garðar Kristjánsson, framkvæmdastjóri Sjálfstæðis- flokksins. Hélt hann ræðu um skipulag og starfsemi Sjálf- stæðisflokksins með sérstöku tilliti til Reykjaneskjördæmis. Gerði hann og grein fyrir frum- varpi að lögum fyrir fulltrúa- ráðið. Voru síðan umræður um mál þessi og tóku til máls Ól- afur Bjarnason, Jón M. Guð- mundsson, Reykjum, Jónas Atkvæði greitt. Sveinn Gústavsson stud. oecon, greiðir atkvæði og hefur vonandi kosið „rétt“. Við enda borðsins situr formaður kjörstjórnar Sigmundur Böðvarsson og skrifar. Kosið i stúdentaráð Stúdentaráðskosningar fóru fram um síðustu helgi. Sam- kvæmt lögum skulu þær fara fram fyrir miðjan febrúar. Þátttaka var sæmileg eða um 50%. Það gekk mikið á í sumum deildum. Margir voru í framboði og sérhver átti sína harðvítuðu stuðn- ingsmenn. „Smölun“ var ó- tæpileg, segja stúdentar. Aðalkeppinautarnir höfðu sínar kosningaskrifstofur með ótal símum, bifreiðum og starfsliði. Og úrslitin urðu svo óvænt. Kosningin fór fram í her- bergi Stúdentaráðs, sem er á 2. hæð háskólabyggingar- innar. Kjörstjórn, kjörin af fráfarandi Stúdentaráði stjórnaði kosningu. Kjörnir voru 9 meðlimir Stúdenta- ráðs. Þeir munu taka við af núverandi Stúdentaráði um næstu mánaðamót.

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.