Vísir


Vísir - 15.02.1962, Qupperneq 9

Vísir - 15.02.1962, Qupperneq 9
V t S 1 R d Fimmtudagur 15. febrúar 1962 í Seattle í annað sinn á 30 árum eru Bandaríkjamenn að und- irbúa heimssýningu — í þetta sinn í Seattle, höfuð- borg Washingtonfylkis. Kennedy forseti opnar sýn- inguna 21. apríl n. k. Menn leggja nótt við dag, til þess að geta lokið við allt, áður en hliðunum verður lokið upp. Kjörorð sýningarinnar er að sýna manninum í dag heiminn eins og hann verður árið 2100. Sýningunni hefur verið valinn staður í mjög falleg- um hluta Bandaríkjanna, sem mun verða eitt aðal- ferðamannasvæðið í fram- tíðinni. Seattle liggur um 90 mílur frá Kyrrahafs- ströndinni og um 50 mílur frá kanadísku landamærun- um. íbúafjöldinn með út- hverfum er um ein milljón manna. Tákn sýningarinnar er „geimnál“ sem teygir sig 600 fet upp í loftið. Efst uppi er pallur, sem hefur að geyma veitingastað og þar fyrir ofan útsýnispall. Efst er gasljós, sem nær um 10 metra í loft upp og logar, meðan sýningin er opin. Pallurinn snýst í 360 gráður á klukkustund, þannig að- fólk sem fær sér hressingu á veitingastaðnum sér yfir alla borgina og umhverfi hennar. Sýningarsvæðið sjálft, sem er í hjarta borgarinnar, er tengt með einteinungum, sem flytja alla gesti út og inn á svæðið. Hver einsta'klingur flytur farþegana rúma mílu á 95 sekúndum. Þannig verða 10.000 gestir fluttir inn á svæði á klukkustund og sami fjöldi út. Búizt er við að milljónum manna frá öllum hlutum heims og þegar orðið svo til ómögulegt að fá herbergi í hótelum. Sýningin verður opin frá 21. apríl til 21. októ- ber. Um fjörutíu þjóðir taka þátt í sýningunni á einn eða annan hátt, Á sýningarsvæð- inu * verða yísindahallir, skemmtigarðar, veitingahús, leikhús, listahallir, verzlan- ir, iðnsýningar og margt fleira. Alls mun heimssýn- ingin kosta um 80 milljónir dollara. Geimnálin. Geimnálin, sem ég nefndi hér að framan, er hæsta bygging fyrir vestan Missi- sippi. Þessi himinhái skýja- klúlur gnæfir yfir borgina og efst á honum er logandi gasljós, sem teygir sig rúma Þrátt fyrir allt þetta er aðalfurðuverkið eftir, en það er ferðin upp. Tvær lyft- ur fara utan á mið-stólpanum upp og niður, 800 fet á mín- útu með 29 farþega í ferð. Þeir, sem vilja ganga upp, eiga kost á 832 þrepa stiga. Nálin er eins og þrífótur í laginu og hafa 11 milljónir punda af stáli og steinsteypu farið í verkið. „Einteinungurinn“. Þetta er að vísu ekki fyrsti einteinungurinn (monorail), sem tekinn hefur verið í notkun til fólksflutninga. Skemmtigarður„Walt Disney land“, í Los Angeles hefur haft slíka lest í tvö ár. Þessi tegund af lest hefur verið Hér getur að líta járnbraut, sem gengur á aðeins einum tein. Þessi lest mun flytja farþega frá borginni að sýningar- svæðinu. tíu metra í loft upp. Veit- ingastaðurinn tekur 250 manns í sæti og þeir, sem bíða eftir borðum, geta farið upp á efri pallinn og notið útsýnisins. Á einni klukku- stund snýst pallurinn, eða þessar tvær hæðir, í 360 gr. þ. e. heilhring. Loftmynd, tekin á móts við efsta hluta turnsins. reynd í Þýzkalandi og um- ferðarsérfræðingar segja þetta vera framtíðarlausn í fólksflutningum í stærri borgum. Einteiningurinn fer eftir spori, 15 til 20 metra yfir jörðu, með 60 mílna hraða á klukkustund. Verk- færið er hljóðlaust, þar sem það gengur á gúmíhjólum. Uppistöðurnar eru eins og stórt T í lögun. Farþegar fara inn í lestiná á hreyfan- legri gangstétt, til hægðar- auka. „Vísindahöllin“. Bandaríska vísindahöllin er í rauninni fimm hallir, byggðar í hnapp. Fyrir utan hana eru fimm spírur eða turnar, sem tákna eiga end' lausa leit mannsins að menntun og þekkingu. Bandaríkjastjórn hefur lagt 10 milljónir dollara í vísinda- höllina og útbúnað. Er tak- markið að geta sýnt gestum notkun vísinda í þágu friðar- ins. Meðal annars verður þarna sýnt, hvernig maður- inn býr sig undir ævintýra- ferðir út í geiminn, hvernig hann stjórnar veðrinu, of- fjölgun mannkyns og öðru slíku. Einn hluti þessarar ógn- stóru vísindahallar nefnist „Boeing Spacerium“. Hér geta sýningargestir tekið sér smáferð út í geiminn. Menn geta séð með eigin augum allt, sem vitað er um Marz, Júpiter og Venus, einnig rannsakað og kynnt sér stjörnur og önnur sólkerfi, þegar þetta rennur framhjá geimskipinu á þessari hring- ferð. Allt þetta verður í lit- um og er sýnt með nýrri gerð þrívíddarsýningarvéla. sem hefur aðeins eina linsu. sem sýnir í 180 gráður. Sem sagt — á 10 mínútum fær maður kost á að fara 10 milljarða ljósára út í geim- inn. Vísindahöllin verður ef- laust einn af aðalstöðum sýn- ingarinnar, ekki af því, sem þar verður til sýnis, hefur áður verið sýnt almenningi. 21sta öldin. Washingtonfylki sjálft hefur reist 11 hæða höll á sýningarsvæðinu, sem nefn- ist „21sta öldin“ og er undir risastóru þaki, sem nefnist á ensku „hyperbolic-para- boloid“. Hér getur maður tekið sér ferð inn í tuttug- ustu og fyrstu öldina og ferð- ast menn saman í hópum. f hverjum verða 100 manns. Hin komandi öld er sýnd af ýmsum stórfyrirtækjum hér í landi, sem þegar eru farin að undirbúa og reyna tæki þau, sem framleiða skal innan tíðar. Hundruðum þúsunda hefur verið eytt í þessa risastóru höll, svo að gestir geti notið þess að sjá aðbúnað þann, sem afkorn- endur þeirra eiga eftir að búa við. Meðal annars ferðast menn inn í borg framtíðarinnar, sjá íbúðarhús, sem snúast með sólarljósinu, vegi, þar sem umferðin er sundurskil- in, fyrir gangandi og akandi. Síðan heldur ferðin áfram, og næst er sýnt, hvernig mað- urinn stjórnar veðrinu og náttúrunni, þannig að hægt verður að fá fjórar uppsker- ur í stað einnar á ári, og akr- ar með mismunandi upp- skeru eru ræktaðir hlið við hlið allt árið um kring. „Hnappa“-iðnaðurinn (push- button) er þá næstur, hér sjá menn hvernig maður get- ur stjórnað verksmiðju með fáeinum hnöppum eða tökk- um. Síðan verður heimsókn til sjávarbóndans, sem miðar Hinn frægi turn. — Hann er jafnframt tákn sýningar- innar. alla framleiðslu sína við sjó- inn og framleiðir matvæli, sem hafa aldrei áður verið á borð borin. Síðan verður sýning á hlutum eins og sjónvarps- síma, sem menn hafa á úln- lið, eins og hvert annað úr. Einnig geta menn fengið að sjá, hvemig menn stytta sér stundir og skemmta sér ár- ið 2100. Hvílík ferð, á aðeins 21 mínútu — skyldi nokkur maður trúa því, sem fyrir augun ber? Lista- og skemmtihallir. Þá býður heimssýningin gestum upp á listasýningar, þar sem frægustu listaverk- um veraldarinnar hefur ver- ið safnað saman, eða eins og menn segja hér — „aldrei áður og aldrei aftur“ sýning á fjársjóðum listarinnar. Þarna má sjá verk eftir Renoir, E1 Greco, Titian, Goya, Rembrandt, Bracque. Verk eftir bandaríska lista- menn eins og t. d. Mark Tobey, Ben Shan, Hans Hof- mann, Mórris Graves, S. Frh. á 10 síðu

x

Vísir

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.