Vísir


Vísir - 15.02.1962, Qupperneq 16

Vísir - 15.02.1962, Qupperneq 16
Fjailið Fimmtudagur 15. febrú^r 1962 ófært Nýir tann- læknar Hinn 9. febrúar s.l. fóru nokkrir tannlæknanemar við Iláskólann ásamt einum kennara sínxim, í kynnis- ferð til Keflavíkurflugvallar í boði upplýsingaþjónustu Bandaríkjanna. í ferðinni skoðuðu þeir m.a. tannlækn- ingastofu sjóhersins, sjúkra- hús flugvallarins, þar sem snæddur var liádegi^verður, sjónvarps- og útvarpsstöðina o. fl. Að sjálfsögðu beindist athygli gestanna mest að tannlækningastofunum, sem eru hinir vistlegustu vinnu- staðir og vel búnar tækjum. Var ferðin öll fróðleg og mn anægjulegasta. — Meo- fylgjandi mynd var tekin í sjónvarpsstöðinni á flugvcll- inum af Jóhanni Finns- syni docent. (annar frá vinstri) ásamt nemenda- hópnurn. !■■■■■! Varðberg í Keflavík Samkvæmt upplýsingum, sem blaðið fékk í morgun mun færð á helztu vegum vera sem hér segir: Krýsuvíkurleiðin er fær, en Hellisheiði er ófær^ þótt stórir bílar, þ. á. m. mjólkur- bílar brytust yfir hana í morgun við illan leik. Hval- fjarðarleið er fær og fært er norður yfir Holtavörðuheiði og eins um Bröttubrekku vestur í Dali. Kerlingarskarð og Fróðárheiði á Snæfells- nesi voru lokuð og sama gegnir um Öxnadalsheiði á Akureyrarleið. VÍSIR Deilurnar í Cold- water til umræðu í kvöld efnir Varðberg, fé- lag ungra áhugamanna um vestræna samvinnu til almenns umræðufundar í Ungmennafé- lagshúsinu í Keflavík. Fund- arefnið er hið sama og á öðrum fundum Varðbergs: „ísland og vestræn samvinna.“ Framsögumenn verða frá þremur lýðræðisflokkunum: Þeir eru: Bjarni Beinteinsson, Jón Rafn Guðmundsson og Unnar Stefánsson. Að loknum ræðum frummælenda verða frjálsar umræður. Fundurinn hefst kl. 8.30 og verður væntanlega jafn ,fjöl- mennur sem aðrir fundir Varð- bergs. Á aukafundi Sölumiðstöðvar- innar, sem hófst í gær í Sjálf- stæðishúsinu var allmikið rætt um rekstur fyrirtækisins Cold- water í Bandaríkjunum og þann ágreining, sem upp kom milli starfsmanna SH vestan- hafs. Véku þeir báðir að þessu máli í ræðum sínum þeir Elías Þorsteinson stjórnarformaður SH og Jón Gunnarsson fram- kvæmdastjóri. Á fundinum, sem heldur áfram í dag munu hinir brottreknu tvímenningar Árni Ólafsson og Pálmi Ingv- arsson fá tækifæri til að koma fram og gera grein fyrir máli sínu. Elías Þorsteinsson, formaður SH tók það fram í ræðu sinni í gær, að fyrirtækið Coldwater hefði sína stjórn og fram- kvæmdastjóra, sem yrði að ráða því, hvernig starfseminni væri háttað og hvaða menn væru í þjónustu fyrirtækisins. Jón Gunnarsson framkv.stj. vék einnig að þessu máli í ræðu sinni. Hann sagði m. a., að fisk- verksmiðja SH í Nanticoke í Bandaríkjunum væri ein sú stærsta og fullkomnasta ' í Bandaríkijunum. Hann sagði, að hún gæti framleitt um 23 þús- und tonn af tilbúnum fiski á ári. Ræðumaður sagði að rekstur verksmiðjijnnar hefcji ekki gengið eins vel á sl. ári og æski- legt hefði verið, en gerðar hefðu verið breytingar á rekstrinum, sem ættu að tryggja betri rekst- ur. Jón Gunnarsson sagði, að til uppbyggingar þessarar verk- smiðju hefði ekkert af andvirði fisksins farið til fjárfestingar í henni, verksmiðjan væri rekin sem sjálfstætt fyrirtæki, að hún væri byggð upp með eigin af- rakstri og eðlilegum lánum. Ufilegumennirn- ir í Háskólabíó Leikritið Utilegumenn- irnir (sem síðar fékk nafnið Skugga-Sveinn í breyttri gerð) var frumsýnt í Reykja- vík fyrir 100 árum. Nú hafa nemendur Menntaskólans í Reykjjavík æft leikritið í fyrstu gerð og frumsýna það annað kvöld í samkomuhúsi Háskólans, til að heiðra skáldið, sem eitt sinn var nemandi skólans. Það eru tvö félög í skólanum, Lista- félagið og málfundafélagið Framtíðin, sem efna til þess- arar sýningar, sem aðallega verður fyrir boðsgeti. — Nemendur hafa æft leikinn í Háskólabíóinu í viku frá miðnætti til morguns undir stjórn Baldvins Halldórsson- ar leikara, en leiktjöld hefur nemandi í 3. bekk, Magnús Þór Jónsson, málað eftir fyr- •irsögn Magnúsar Pálssonar listmálara. Sýningin fer fram við kertaljós eins og fyrir 100 árum. Myndin var tekin á æfingu í nótt af Skugga-Sveini og Katli skræk. Sveinka leik- ur Böðvar Guðmundsson (skálds Böðvarssonar) en í hlutverki Ketils er Ólafur Gíslason.

x

Vísir

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.