Vísir - 22.02.1962, Síða 2
2
J^knmtudagur^Jj. febrúar 1962
V í S .I.R
- "1 ni ji
1
r/ v////,^v//////////'MvW////'V^kZ"///á-
sgangan
Fréttamönnum var í gæ£
greint frá fyrirhugaðri Lands-
göngu á skíðum, er fram fer
á tímabilinu 3. marz til 23.
apríl n. k. Keppnin er ætluð
öllum, er telja sig geta gengið
4 kílómetra á skíðum (í einum
áfanga) án nokkurs tillits til
tíma. Ætti það að veitast flest-
um auðvelt.
Til að örfa.
— Markmið okkar er fyrst
og fremst að örfa menn til
skíðaiðkunar, en ekki keppni,
sagði formaður Skíðasambands
ins í gaer, — verði veður okkur
í hag, nógur snjór og lygnt,
ætti þetta að geta orðið hið
skemmtilegasta fyrirtæki, bætti
formaðurinn, Einar B. Pálsson
við.
Stefán Kristjánsson, sem er
í framkvæmdanefnd Lands-
göngunnar ásamt þbim Sigur-
' geiri Guðmundssyni, fram-
kvæmdastjóra Í.B.R. og Þor-
steini Einarss., íþróttafulltrúa,
sagði að nefndin hefði kosið að
láta páskana vera nokkurs
konar endasprett fyrir göng-
una, enda væri páskahátíðin
mjög notuð til skíðaiðkana og
vænta mætti margra þátttak-
enda um það .leyti. Stefán
sagði, að framkvæmd göng-
unnar væri í hverju byggðar-
lagi falin stjórn héraðssam-
Sin RY
Frh. af 16. s.
sem er að læra að dansa og
leika. Hún bíður eftir atvinnu-
leyfi.
Hér verður Sirry í sex vikur
og mun syngja á Röðli einhvern
tíma.
Til að fyrirbyggja misskilning
mega allir vita að Sirry talar
lýtalausa íslenzku þrátt fyrir
fjarveruna.
Best að
auglýsa i
Vísi
bands eða skíðaráðs viðkom-
andi íþróttahéraðs/einnig væri
skólum heimilt að skipa trún-
aðarmann til að standa fyrir
göngu nemenda skólans.
— Við væntum þess fast-
lega, sagði Stefán, — að skól-
arnir keppi innbyrðis, sérstak-
lega skólar á líku stigi, t. d.
Menntaskólarnir saman. Sama
er um hópa starfsmanna að
segja, að keppni þeirra er bæði
æskileg og getur orðið skemmti
leg.
Keppt um verðlaun.
Verðlaun eru veitt þeim
kaupstaðnum og þeirri sýsl-
unni, sem hæstri hundraðstölu
nær í keppninni. Sýndi fram-
kvæmdanefndin blaðamönnum
verðlaunin, sem eru lítil skíði,
mjög haglega gerð, með silfur-
skjöldum áfestum. Annað skíð-
ið mun hæsti kaupstaðurinn
hreppa, en hitt hæsta sýslan.Eru
þetta hin smekklegustu verð-
daun. Einnig verður skólum
með yfir 70% þátttöku veitt
sérstök verðlaun.
Vinsældir keppninnar 1957
Svipuð keppni var haldin
árið 1957 eins og menn muna.
Vinsældir keppninnar voru
miklar, ekki hvað sízt úti á
landi. Kvað Þorsteinn Einars-
son mörg .þakkarbréf hafa
borizt eftir síðustu Landsgöngu.
Ein fjölskylda sagði t. d. að
yfirleitt færu heimamenn ekki
neitt frá heimilinu saman,
nema ef vera kynni til kirkju
og í berjamó, þar til Lands-
gangan kom til. Þá var það að
öll fjölskyldan, að kornbörnum
undanskyldum, brá sér á skíði
og lét skrá sig til keppni í þessu
allsherjar íþróttamóti lands-
manna.
23235 gengu sem svarar tvisvar
umhverfis hnöttinn.
Síðasta ganga taldi alls
23235 göngumenn, þar af um
12000 skólamenn eða rúman
helming. Sé þessi tala marg-
földuð með 4 kílómetrum sem
hver þátttakenda gekk, kemur
út 92940 kílómetrar, sem er
eitthvað í þriðja hring um-
hverfis hnöttinn um miðbaug.
Má segja að sína aðferðina hafi
hver þjóð við að fara þann sí-
gilda hring, Glenn fór þrjá
hringi í fyrradag í geimhylki
sínu „Vináttu 7“ á fjórum og
hálfum tíma, en við tökum hins
vegar höndum saman og förum
hringina á skíðum.
11000 merki seldust.
Hver sá er lokið hefur göng-
unni er skráður, og fær auk
þess miða, sem gildir sem ávís-
un á einkar laglegt merki, er
útbúið hefur verið í þessu til-
felli. Er verði merkisins stillt
mjög í hóf, kostar 10 krónur.
Síðast seldust 11000 merki
og hafðist aldrei undan að
framleiða þau.
Öll gögn og upplýsingar í
sambandi við gönguna er hægt
að fá á Fræðslumálaskrifstof-
unni (sími 18340).
Nánar verður sagt frá tilhög-
un göngunnar er hún hefst.
J.b.p.
Jón Þ. 1,78 m.
I hástökki án atrennu
Jón Þ. Ólafsson, Í.R. stökk
í gær 1,78 m. í hástökki án
atrennu. Er það 3 sm. betra en
heimsmet Vilhjálms Einars-
sonar, sem hann setti fyrr í
vetur.
Frétzt hefur að fyrrverandi
heimsmethafi, Johan Chr. Ev-.
ant, Noregi muni sækja innan-
húss íþróttamót Í.R. 10. og 11.
marz n. k., og mun meiningin
hafa verið að hápunktur móts-
ins yrði hástökkseinvígi hans
og Vilhjálms. Nú bætist þriðji
maðurinn í hópinn og virðist
ekki áíður sigurstranglegur.
Afrek Jóns verður þó hvorki
viðurkennt né skráð sem heims-
met. Innanhússárangrar eru
aldrei viðurkenndir sem met,
og afrekið í gær var unnið á
æfingu og fær því ekki heldur
skráriingu, en gaman verður
að fylgjast með keppni Jóns,
Vilhjálms og Evants.
f
nemen
Vísir fékk nýlega senda
frá Rauða krossinum þá sér-
kennilegu mynd sem birtist
hér fyrir ofan. Hún mætti
heita „Kennarar og nemend-
ur á námskciði Rauða kross-
ins.“ Þegar teknar eru hóp-
myndir af ýmsum fundum
og samkvæmum verða þær
sjaldnast annað en dauf upp-
stilling á fólki, — en hér í
þessari hópmynd hefur létt
gamansemi fengið að ráða,
því að ekki vantar á myndina
þann kennarann, sem hefur
gefið þátttakendunum mesta
þekkingu um líkamsbygg-
ingu mannsins.
Hér var um að ræða nám-
skeið í hjálp í viðlögum. Var
aðalkennari Páll Sigurðsson
læknir, en Jón Oddgeir Jóns-
son aðstoðarkennari. Sóttu
það 18 manns víðsvegar að
af landinu.
Þátttakendur og kennarar,
sem sjást á myndinni eru:
Aftasta röð, talið frá
vinstri: Garðar Pálsson, Rvk,
Páll Zophoníasson Rvlt., Haf-
steinn Þorvaldsson, Selfossi,
Jón I. Guðmundsson, Sel-
fossi, og Guðmundur G. Pét-
ursson, Rvk. Miðröð: Garð-
ar Viborg, Rvk., Hafsteinn
Bergmann, Patrcksfirði, Lár-
us Þorsteinsson, Rvk., Ás-
vogi, Ólafur Steingrímsson,
Rvk., Jón Jónsson, Rvk.,
Helgi S. Jónsson, Keflavík,
mundur Guðmundsson, Kópa
Börkur Thoroddsen, Rvk, Vil
hjálmur Pálsson, Húsavík, og
Sig. Gunnar Sigurðsson, Rvk
Sitjandi: Skcinborg Jónsdótt
ir, Rvk., Jón Oddgeir Jóns
son, aðstoðarkennari á nám
skeiðinu, Sigríður Valgeirs
dóttir, Silfurtúni, Páll Sig
urðsson, læknir, aðalkennari
námskeiðsins og Jóna Han-
sen, Rvk.