Vísir - 22.02.1962, Qupperneq 9
Fimmtudagur 22. febrúar 1962
V f S I R
9
i i
I
í
Hringarnir eiga ekkí ah vera
einu viðskiptavinir íslendinga
Öflun neytendamark-
aða er hin eina örugga
leið í markaðsmálum
hraðfrystihúsanna, sagði
Jón Gunnarsson fram-
kvæmdastjóri Sölumið-
stöðvar hraðfrystihús-
anna, Jregar fréttamaður
Vísis kom að máli við
hann skömmu eftir aZ
aukafundi SH lauk fyrir
helgi.
Og til þess að geta aflað
neytendamarkaða, sagði
hann að styrkja yrði samtök
framleiðendanna og skipu-
leggja útflutninginn þannig
að neytendamarkaðurinn
yrði fyrst af öllu tryggður.
Alstaðar eru
útflutningssamtök.
— Þetta er í rauninni auð-
skilið mál, sagði Jón. —
Framleiðendur hraðfrysts
fisks í öðrum löndum láta
einskis ófreistað til að ná
neytendamörkuðum, því að
fyrr eru þeir ekki öruggii
um stöðugt verð og öruggan
markað. Þeir mynda því ahs
staðar samtök og víða er
ekki nema um einn útflyti-
anda að ræða.
— Er þó ekki sums staða:
meira frjálsræði í þessu
hvað segið þér t. d. um það
í Englandi? spurði fréttamað
ur Vísis.
— Já, hvernig skipuleggja
Bretar sinn útflutning á
frystum fiski. Eg skal segja
yður það. Þeir hafa haft sam-
steypu margra félaga í
nokkur ár til að annast út-
flutning á freðfiski, en samt
voru nokkrir framleiðendur
fyrir utan þessa samsteypu
og buðu fiskinn beint til
sölu.
En á sl. ári sáu Bretar að
með þessu var stefnt í óefni
og nú hefir það gerzt, að all-
ir brezkir útflytjendur á
hraðfrystum fiski hafa sam-
einazt í fiskmarkaðssam-
steypunni BritishAFish.
— Selja þeir til sömu
markaða og við?
— Já, þeir selja til Rúss-
lands og Tékkóslóvakíu og
þeir selja til Bandaríkjanna.
Hætta á upplausn
og truflunum.
Og Jón Gunnarsson held-
ur enn áfram:
— Á sama tíma og brezkir
útflytjendur eru þannig að
sameinast gerist það í mark-
aðsmálum íslendinga, að
sjávarútvegsmálaráðherra
leyfir nýjum aðila sölu á
freðfiski til Bretlands og lík-
lega til annarra landa. Gætu
íslendingar lært af reynzlu
Breta í þessu efni.
freðfisk í Bandaríkjunum,
það er Frionor, sem er sam-
tök útvegsmanna með líkum
hætti og SH. Hið öfluga Fin-
dus-félag fær ekki einu
verður að taka tillit til þess,
að stóru norsku útflutnings-
fyrirtækin njóta öflugs
stuðnings norska ríkisins í
samkeppninni um neytenda-
markaðinn, sem okkar sam-
tök njóta ekki og má t. d.
benda á stórlán sem norsk
yfirvöld veittu til að koma
upp risastórri fiskverk-
smiðju í Grimsby. sem er
undirstaða þess að vinna
neytendamarkað í Bretlandi.
Aðferðir
hringanna.
— Hvaða kostur er fyrir
höndum, ef framleiðendur
vinna ekki neytendamark-
aði?
— Það er að selja til er-
lendra fiskinnflytjenda, oft-
ast nær til stórra fisksölu-
"'l
Jón Gunnarsson framkvæmdastjóri S.H.
— Þér teljið þá, að það
væri ekki til ávinnings að
leysa upp útflutningssam-
tökin og koma á algeru frjáls
ræði í útflutningsverzlun
með freðfisk?
— Auðvitað ekki, slíkt
myndi horfa til hreinnar
upplausnar, stórskaða þjóð-
ina og lífsafkoma hennar
versna.
— Og álit yðar á freðfisks-
útflutningi Atlantor h.f.?
— Stefnir í öfuga átt og
hefir þegar valdið truflun-
um í sölu á íslenzkum fiski
í Bretlandi.
Sölusamtök
Norðmanna.
— En segið mér þá annað
Jón, -— ein helzta sam-
keppnisþjóð okkar á fisk-
mörkuðum er eins og allir
vita, Norðmenn, — hvernig
er freðfiskverzlun þe irra
háttað, er hún ekki nokkru
frjálsari?
— Því skal eg svara í
stuttu máli. Norðménn leyfa
aðeins einum aðila að selja
sinni að selja fisk til Banda-
ríkjanna. Fyrir bragðið er
mjög fullkomið skipulag á
fisksölum Norðmanna þang-
að. Eg hefi lengi haldið því
fram, að við eigum að hafa
hringa. Stærsti kaupandinn
sem íslendingar skipta við,
eru Sovétríkin, því að þar
er aðeins einn kaupandi. Og
hvernig hafa viðskiptin við
þau verið? Þau voru stór
Samtal við Jön Gumarsson
frkvstj. S.H. iri viðhorfin
í freðfiskútflutningi
sama háttinn á, SH og SÍS
eiga að sameinast á Ameríku
markaðnum. Það á aðeins að
vera einn aðili, hitt er skipu
lagsleysi, riðlun, sem verður
mjög kostnaðarsöm.
En svo við höldum áfram
með Norðmenn, þá er nokk-
uð annar háttur á hjá þeim
í freðfisksölu tii Bretlands.
Þar selja bæði risafyrirtæk-
in Findus og Frionor og
og þar að auki geta einstök
frystihús í Noregi flutt sinn
fisk út til Bretlands. En hér
kaupandi á freðfiski á fyrstu
árum eftir stríð, en svo
hættu þau skyndilega kaup-
unum 1948 og byrjuðu ekki
aftur fyrr en 1953. Síðan
liðu 7 ár svo að ekki var
hægt að hreyfa við söluverð-
inu til þeirra þótt freðfisk-
verðið á frjálsum markaði
hækkaði á sama tíma um
30—40%.
Þegar svo er treyst á
viðskipti við allsráðandi
aðila, hvort sem er rík-
isverzlun eða stórir fisk-
hringar á Vesturlönd-
um, þá komumst við fljótt að
raun um það, að hringarnir
kaupa aðeins þegar hag-
kvæmt er fyrir þá og þaðan
sem það er hagkvæmast í
hvert skipti, svo aldrei er
að vita, hvort maður hefir
áframhaldandi markað við
þá, nema maður sé reiðubú-
inn að samþykkja þeirra
verðhugmyndir sem oft eru
ekki í neinu samræmi við
markaðsverðið á hverjum
tíma. Afsetning á vörunni
verður ekki trygg og verðið
ákveðið af einum eða fáum
innflutningsaðilum, sem nær
ætíð hafa samráð sín á milli.
Sé varan aftur á móti seld
inn á neytendamarkað undir
eigin merkjum er afsetning
á vissu magni tryggð og
verðið sem fæst er í sam-
ræmi við markaðsverð í
landinu eins og það er á
hverjum tíma. Við meiru
má framleiðandinn heldur
ekki búast.
Hvað þarf til að vinna
neytendamarkað?
— En er ekki erfitt og
kostnaðarsamt að komast inn
á neytendamarkaðinn?
— Að vísu er það erfitt.
Framleiðandinn þarf að hafa
mikið úrval að bjóða til að
stunda neytendamarkaðinn.
Við þurfum að skipuleggja
sölukerfi um landið. búa
fiskinn út í glæsilegar um-
búðir undir vörumerki fram-
leiðenda, auglýsa hann eins
mikið og fjármagn leyfir, en
umfram allt — hafa hann
ætið á boðstólum. f því fel-
ast aðalerfiðleikarnir, vönt-
un á lánsfé þar sem það tek-
ur lengri tíma að fá fiskinn
greiddan þegar honum er
fylgt eftir alla leið til neyt-
andans.
— Og eru fiskverksmiðj-
urnar svo ekki einnig liður
í þessu sölukerfi?
— Jú, í Bandaríkjunum
og Bretlandi vex mjög ört
sala á matreiddum fiski og
urðu íslendingar því að fara
út í framleiðslu á matreidd-
um fiski, ef þess ætti að vera
nokkur kostur að stunda
neytendamarkaðinn í sam-
keppni við aðra.
— Teljið þér að SH hafi
unnið sér öruggan neytenda-
markað erlendis?
— Já, neytendamarkaður
okkar í Bandaríkjunum er
alveg öruggur og verðsveifl-
urnar eru orðnar mjög litlar.
Fylgir það stundun neytenda-
markaðs að verðsveiflurnar
verða mikið minni heldur en
Frh. á 10 síðu
".V.V,
lAV.%%Vi,«V«V.ViV.V.,,iV.V.V.,.V.,.V.V.V.V.V.V.*.V.V.V.V.V.V.V.,.V.i