Vísir - 08.03.1962, Side 2
7.
V I S I R
\
Fimmtudagur 8. marz ,1962
Erlendu gestirnir eftir keppnina í gærkvöldi. Á myndinni sjást frá vinstri: Roland Lundin,
Kristina Larsson og Christer Bjarne og eru þau að kanna „prógrammið“ fyrir kvöldið í kvöld.
Sutndftióf ÍR:
Sundmót ÍR heldur áfram í
kvöld og enn má búast við
hörkukeppni, ekki sízt í 200 m.
skriðsundinu milli Guðmundar
og Bjarne, sem nú mun veita
meiri keppni, ef að líkum læt-
ur. Sama er um 200 m. bringu-
sundið að segja. Þar getur orð-
ið harka milli þeirra þriggja,
Harðar, Árna Þórs og ,Lundin,
einkum þó íslcndinganna og
erfitt að spá nokkru þar um.
Hrafnhildur og Kisse Larsson
etja saman kappi tvisvar í
kvöld, fyrst í 50 metra skrið-
sundi og síðan í hinu geysi-
erfiða 100 metra flugsundi
kvenna.
metra flugsund karla, 100 m.
bringusund drengja, 50 m.
skriðsund sveina, 50 m. bringu-
sund telpna, 200 metra ein-
staklings fjórsund karla og
200 m. bringusund kvenna.
Erlendu gestirnir taka þátt í
alls 4 af 10 greinum sem keppt
verður í.
Aðrar greinar í kvöld eru
50 metra skriðsund drengja,
50 metra skriðsund telpna, 50
ÍR-mótið heldur áfram í
Sundhöllinni í kvöld kl. 8.30.
Horskt met Bjarne í flisfsradi
©I tvö íslandsmet í briiigusundi
Fyrra kvöld sundmóts ÍR
reyndist hið skemmtilegasta,
gagnstætt því sem vcrið hefur
um sundmót í vetur. Nóg af
spennandi keppnum, fallegum
sundum og metum.
Hörður B. Finnsson vakti
mjög mikla athygli í bringu-
sundinu, synti mjög fallega,
„stakk af“ í 100 metrunum gegn
Lundin og setti nýtt glæsilegt
met á einum bezta tíma sem
náðst hefur á Norðurlöndum.
Og í 50 metrunum byrjaði
hann með því að jafna metið
um leið og hann vann Lundin
öðru sinni það kvöld, en nokkr-
um mínútum síðar var metið
fokið. Tími var tekin af Herði
í 4X50 metra bringusundi og
reyndist hann 32.9, — nýtt met.
Guðmundur átti í höggi við
Norðmanninn Bjarne. Fyrst
áttust þeir við í 100 m. skrið-
sundi, sem Guðmundur vann á
mjög þokkalegum tíma, en
Bjarne tókst ekki að, hanga í
Guðmundi og var með sekúndu
verri tíma, báðir 8/10 frá
landsmetum sínum, Guðmund-
ur á 57,8, Bjarne 58.8. Flug-
sundið aftur á móti reyndist
Norðmanninum auðunnið. Þó
var Guðmundur vel með fyrri
hluta leiðarinnar, en þá var
eins og afl hans væri þrotið og
með kraftmiklum sundtökum
jók No^ðmaðurinn bilið og
vann örugglega eftir geysigott
sund á nýju norsku meti 1.04.3,
en Guðmundur var ekki langt
frá sinu meti á 1.06.6.
Kisse Larsson og Hrafnhild-
ur vöktu athyglina í 100 m.
skriðsundi kvenna. Hrafnhildur
vann sundið og var a.m.k. lengd
sína á undan sænsku stúlkunni.
Tími Hrafnhildar er hennar
bezti og mjög góður. Eflaust á
met Ágústu frá því í fyrra
eftir að víkja áður en langt um
líður, er Hrafphildur fer að
einbeita sér að skriðsundinu.
Hrafnhildur vann einnig 50 m.
bringusundið með yfirburðum,
en Svanhildur Sigurðardóttir,
sem er mjög efnileg skagfirzk
stúlka, var ekki langt á eftir.
Örslit ein-
stakra greina
100 m. bingsund karla.
Hörður B. Finnsson, ÍR, 1.11.9.
Roland Lundin, SK RAN 1.13.5.
Árni Þ. Kristjánsson, SH, 1.15.0.
100 m. skriðsund karla.
Guðmundur Gíslason, ÍR, 57.8.
Christer Bjprne, VIKA, 58.8.
Guðm. Sigurðsson, ÍBK, 63.0.
100 m. skriðs. kvenna.
Hrafn. Guðmundsd., ÍR. 1.06.2.
Kr. Larsson, SK. RAN, 1.09.2
Margr. Óskarsd., Vestra, 1.10.6
50 m. bingusund karla.
H. B. Finnbogas., ÍR, 33.1.
Roland Lundin, SK RAN, 33.7.
Árni. Þ. Kristjánss., SH, 34,3.
50 m. bringusund kvenna.
Hrafnh. Gðmundsd., ÍR, 38.8.'
Svanh. Sigurðard, UMSS, 41.7.
Stefanía Guðjónsd., ÍBK, 43.2.
100 m. flugsund karla.
Christer Bjarne, VKA ,1.04.3.
Guðm. Gíslason, ÍR, 1.06.6.
4X50 m. bringusund kvenna.
Sveit ÍBK, 3.0L6.
Sveit Ármanns, 3.07.2.
Sveit SH, 3.09.1.
4X50 m. bringsund karla.
Sveit ÍR, 2.23.7.
Sveit Ármanns, 2.27.4.
Sveit Ægis, 2.38.6.
100 m. bringusund telpna.
Sigrún Jóhannsd., ÍA, 1.31.4.
100 m. skriðsund drengja.
Guðm. Þ. Harðars., Ægi, 1.02.?
50 m. bringusund sveina.
Kr. Guðmundss., ÍA, 41.5.
—jbp—
Ilörður Finsson, sem er á góðri leið með að bæta Norðurlanda-
metið í 100 m. bringusundi. Hann og Lundin keppa í 200 mtr.
í kvöld.