Vísir - 08.03.1962, Page 10

Vísir - 08.03.1962, Page 10
10 Fimmtudagur 8. marz 1962 V I S I K F ramtíðarf lugvöílur f’ramh af 9 síðu. öðrum stað er fullnægi ströngustu kröfum. Þess vegna er álitið, að endurbygging Reykjavíkur- flugvallar sé ekki ákjósan- legasta úi’ræðaleiðin, sér- staklega ef annað flugvallar- stæði er tiltækilegt. Fhigvöllur á Bessastaðanesi. Álftanes eða Bessastaða- nes er einn af þeim stöðum, sem frá öndverðu hefir verið bent á sem hugsanlegt flug- vallarstæði. Helztu kostir þess eru: góð lega við þéttbýlisssvæð- inu Reykjavík—Hafnarfjörð- ur, hallalítið landssvæði, góð aðflugs- og flugtaksskil- yrði, flugtak út yfir sjó af þremur brautarendum, virð- ist uppfylla öll skilyrði um óhindrað loftrými. Helztu annmargar: Búast má við, að undirstaða sé miður góð á köflum svo ef til vill þurfi jarðvegsskipti undir einhverjum hluta brautarinnar. Sennilega þarf að gera ráðstafanir vegna hugsanlegs landsbrots af sjó- gangi. Landið er að mestu í einkaeign og nokkur byggð sem þyrfti að fjar- lægja. Flugvöllur í Garðahrauni. Helztu kostir þessa flug- vallarstæðis eru: Allgóð lega 1 við þéttbýli Reykjavíkur— Hafnarfjarðar. Góð undir- staða á meginhluta vallarins, þó eigi vitað um það svæði er liggur undir sjó. Góð að- flugsskilyrði úr þremur átt- um. Helztu annmarkar; Stað- setning full nærri byggð, nú- verandi og komandi. Lands- lag mishæðótt á stæði aðal- brautar. Ekki útilokuð hætta á landbroti við vesturenda þverbrautar. Flugvallar- stæðið uppfyllir ekki öll skilyrði um óhindrað loft- rými. Mikill hluti landsins í einkaeign og leggja þyi’fti niður nokkra byggð. Flugvrllur í Kapelluhrauni. Helztu kostir þessa flug- vallarstæðis: Mjög góð und- irstaða brauta. Vallarsvæðið algerlega óbyggt og óhæft til ræktunar. Helztu annmarkar: Að- flugsskillyrði aðeins góð úr tveim áttum. Veðurskilyrði e. t. v. ekkí ákjósanleg m. a. vegna náiæ?ðar Lönguhlíðar- fjalla. Flugvallartæðið upp- fyllir engan eginn skilyrði um óhindrað loftrými. Land- inu hallar mikið. KeflavíkuríIugvöíJur. Sú staðreynd, að til er stór fúllkominn flugvöllur í þó ekki meiri fjarlægð en tæpa 50 km. frá höfuðstaðn- um,vekur þá spurninguhvort eða að hve miklu leyti væri unnt að tengja hann fram- tíðarlausn á flugvallarmál- um Reykjavíkur. Tveir möguleikar kæmu þar til greina og fylgja hér á eftir álit flugvallarnefndar á þeim. 1. Að flytja alla flugstarf semi frá Reykjavík til Kefla víkurflugvallar og gera hann að miðstöð íslenzkrar flug- starfsemi. Þetta telur nefndin að sé fjarri öllum raunhæfum möguleikum. Allt innanlands flug yrði stórlamað með því, flutningskostnaður til og frá höfuðstaðnum stóraukinn, póstsamgöngur innanlandsog utan tafðar og loks sköpuð stórkostleg óþægindi og aukinn kostnaður bæði fyrir flugfarþeea og starfslið. Enn má benda á örðugleika í vondri færð. Þessi leið er því ófullnægjandi og felur enga framtíðaT-lausn í sér. 2. Að nota Keflavíkur- flugvöll fyrir utanlandsflug en Reykjavíkurflugvöll á- fram fyrir innanlandsflug. í sambapdi við þetta bend- ir flugvallarnefnd á að flug- tök í innanlands- og iftan- landsflugi hafa skipazt þann- ig að meðalt. síðustu 5 ár, að lendingar og flugtök í innan landsflugi hafa verið 5112, efi í utanlandsflugi 2019. Gefur auga leið, að mikið óhagræði leiddi af því að skipta ísJenzkri flugstarf- semi svo í tvo staði. Verður að álíta, að þetta væri engin framtíðarlausn. Áskriftasími Vísis er 1-16-60 Jóhannes Zoega. Óánægja í Póllas^5 Enn er landbúnaðarfrajn- leiðsla Póllands svo lítil, að 1 Pólverjar verða að leiía vestur um haf. Hefur enn verið gerður samn- ingur um sölu á bandarískum afurðum og er það hinn fimmti. Pólverjar fá á næsta ári banda- rískt korn og fleira fyrir 45 milljónir dollara, sem þeir endurgreiða með zlotys. Síðan 1957 hafa Bandaríkjamenn látið Pólverjum í té landbúnað- arafurðir af umfram birgðum, sem nemur 375 milljónum dollara, og hafa Pólverjar ekki síður verið hjálparþurfi hin síðustu árin en áður, og segja þó frá framförum á ýmsum sviðum eins og siður er í ríkjum kommúnista. Nýr hitaveitustjóri Jóhannes Zoega tekur við, en Helgi Sigurðsson ver$ur verkfræðilegur ráðgjafi Uin næstu mánaðamót tekur nýr hitaveitustjóri við starfi í Reykjavík, Jóhannes Zoega verkfræðingur, sem verið hefir forstjóri Lands- smiðjunnar í mörg ár, en nýtt embætti verður stofnað, verkfræðilegur ráðgjafi hitaveitunnar, og fyrsti mað- urinn í því starfi verður Helgi Sigurðsson verkfræð- ingur, fráfarandi hitaveitu- stjóri. i Ákvörðun um þetta var tekin á fundi borgarr. í gær, og lagt til við borgarstjórn að gerðar yrðu skipulags- bi’eytingar í sambandi við framkvæmdir í hitaveitu- málum, sem framundan eru, og að skipta embætti hita- veitustjóra svo sem áður segir. Fundurinn samþykkti að mæla með Helga Sigurðs- syni í hið nýja embætti, en borgarstjórinn flutti tillögu, er samþykkt var, um að mæla með Jóhannesi Zoega í starf hitaveitustjói’a. Enn- fremur samþykkt að leggja til við borgarstjórn, að Helgi Sigurðsson verði kosinn í hitaveitunefnd í stað Jó- hannesar Zoega, er verður sjálfkjörinn í hana sem hita- veitustjóri. Powers fær fulla uppreisn Njósnaflugmaðurinn Francis Gary Powers hefir nú fengið fulla uppreisn æru, fyrst hjá sjálfum forseta landsins og Leyniþjónustu Bandaríkjanna að undangengnum miklum yfir- heyrzlum og athugunum — nú hjá þjóðþinginu, en hann mætti á fundi þingnefndar í gær og skýrði skilmerkilega frá öllu sem gerðist. Powers sagði svo frá, að þeg- ar hann nálgaðist Sverdlovsk á njósnafluginu, hafi hann heyrt eins og hvir. eða dyrik og rauðleitum bjarma hafi brugð- ið fyrir. Er talið, að þetta hafi stafað frá flugskeyti Rússa, sem hafi sprungið nálægt flug- vélinni án þess að hæfa hana. hann sveif til jarðar í fallhlíf, en bæði stél og vængir höfðu brotnað af flugvélinni. Powers sagði fyrir þingnefnd- inni. að hann hefði gert skvldu sína sem Bandaríkjamaður. Hann kvaðst haf.? verið yfir- heyrður til þrautar í Sovétríkj- unum, en aldrei beitt við sig þvingunum. Að utan — i Framh. a) 8 síðu Giovanini úrslitakosti til ítölsku blaðamannanna. Stóð í þeim, að ítalirnir yrðu vægðarlaust skotnir ef þeir yrðu ekki tafarlaust á brott úr landinu. OAS-rnenn héldu því fram, að engir hefðu skrifáð eins illa um hreyfingu þeirra og .foringja Salan hershöfðingja eins og ítölsku blaðamenn- irnir. Bentu þeir á greinar úr ítölskum blöðum og um- sagnir ítalskra útvarps- stöðva þar sem Salan var kallaður morðingi. Síðdegis á laugardag urðu fleiri ítalskir blaðamenn fyrir áreitni. Einum var haldið sem gísli í 3 klst. og seint um kvöldið hafði hópur OAS-manna ruðzt inn á bar hótelsins, þar sem ítalirnir voru og héldu uppi hótunum við þá. Lögreglumönnum skipað brott. Rétt í því komu tveir franskir lögreglumenn inn i barinn og sáu þeir atferli ill- ræðismannanna. En foringi OAS-mannanna gekk að lög- regluþjónunum og skipaði þeim að hverfa á braut. Þessu hlýddu lögreglumenn- irnir. Á sunnudaginn flugu svo eJlefu hinna ítölsku blaða- Dauf vertíð BARÐI BARÐASON, tal- stöðvarmaður við Granda- radíó hér í Reykjavík, sagði blaðinu í morgun, að það væri ósköp dauft yfir ver- tíðinni, hvergi nein kraft- veiði, og sjómenn væru nú komnir á þá skoðun að fiskur hefði ekki fylgt loðn- unni í göngu hennar á miðin. Það er sama hvert leitað er frétta, sagði Barði, það er alls staðar dauft yfir. , Komnir eru hingað inn tveir bátar með 15 og 17 tonna afla: Rifsnes og Pétur Sigurðsson. Þeir höfðu verið með netin út af Skaga, en gátu ekki dregið netin og er það þriggja nátta fiskur sem þeir eru með. Þetta getur ekki talizt góður afli. Við Vestmannaeyjar hefir einn og einn síldarbátur feng ið dálítið af síld og komizt upp í 500 tunnur á sólar- hring. En yfir síldveiðinni er líka dauft, eins og sjá má. í Vestmannaeyjum eru togar- ar, sem taka þessa síld jafn- óðum og hún berst að. manna á brott frá Algeirs- borg. Einn þeirra ákvað þó að verða eftir og ætlaði að láta hótanir OAS-manna eins og vind um eyru þjóta. Hann heitir Nieola Carciolo ættað- ur frá Napoli, en blaðamað- ur við II Giorno í Milano. Hann lýsti því yfir að hann neitaði að hverfa af hólmi og gaf þessa skýringu: — Eg er af gömlum ítölskum aðalsættum. Ættmenn mínir flýja aldrei hætturnar. Hundeltur. Þrátt fyrir það féllst hann á að fylgja vissum varúðar- reglum, svo sem því að sofa aldrei nema eina nótt í hverju herbergi. OAS-menn voru á stúfunum eftir honum og var jafnvel talið að þeir ætluðu að gefa öðrum viðvör- un með því að taka hann af lífii Þeir komu á hótelið að næturlagi og leituðu að hon- um í mörgum herbergjum, en íundu þó ekki. Það var þó loksins á þriðju- daginn, sem blað þessa djarfa blaðamanns sendi honum fyr- irmæli um að snúa tafarlaúst heim þar sem hann var tal- inn í svo bráðri lífshættu. Er hann nú kominn heim. Ekki er hann þó tálinn úr allri hættu enn bví að OAS hefur sent honum boð um að er- indrekar féJassins muni * „refsa“ honum á næstunni, hvar sem þeir finna hann. i

x

Vísir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.