Vísir - 09.03.1962, Síða 1

Vísir - 09.03.1962, Síða 1
VISIR Síðasti sátta- fundur í kvöld Laust fyrir miðnætti í nótt er leið lauk sáttafundi Mynd þessa tók ljósmyndari Vísis í morgmi niður Við höfn, þar sem verið var að hraða aí- greiðslu togarans Skúla Magnússonar, svo að hann komist út fyrir kvöldið áður en verkfall skellur á. — hjá sáttasemjara ríkisins í kaup og kjaradeilu togara- sjómanna, sem boðað hafa verkfall á togaraflotanum er hefjast skal á miðnætti í nótt, hafi samningar ekki tekizt, en á því munu ekki horfur í dag. — Samkomu- lagsumleitanir hafa þó ekki enn strandað og fundur hefur verið boðaður hjá sáttasemjara í kvöld um klukkan 9. í morgun var verið að vinna að búa á veiðar nokkra togara hér í Reykjavíkurhöfn. Neptún- us var kominn frá Vestmanna- eyjum með slatta af síld og hætt við að senda hann til Þýzka- lands og síldin tekin til vinnslu hér. Óvíst var hvort hann kæmist út í dag. Narfi var og tilbúinn að fara á veiðar áður en verkfallið skellur á, en hann beið eftir varastykki flugleiðis að utan í dag og stóðu vonir til að því yrði komið fyrir tíman- lega og Narfi gæti farið út fyrir miðnætti. Loks var búizt við að Júpiter og Skúli Magnússon sem einnig var að losa slatta myndu komast út fyrir miðnætti í nótt. í gær seldi Askur síldarfarm í Cuxhaven. 171 tonn fyrir 59,159 mörk. Var markaðurihn svona lágur vegna mikils fram- boðs á ísaðri síld frá Danmörku, Noregi og Svíþjóð, svo og Hol- landi og írlandi. Árdegis í dag átti Maí að selja í Bretlandi, en þar hefur markaður verið óhagstæður und anfarið. ★ Á morgun selúr Þorsteinn Ingólfsson í Þýzkalandi og gert er ráð fyrir að 4 íslenzkir tog- arar selji þar í næstu viku, en enginn í Bretlandi. Ef verkfallið skellur á á mið- nætti mun það ná til 31 togara Framh. á bls. 7. Áttu drottn- ingarseðla ? Eftirfarandi tilkynningu | hefir SeSIabankinn látið frá J sér fara; Englandsbanki tilkynnir, J að allir 1 £ seðlar, sem ekki | bera mynd Englandsdrottn- J ingar, falli úr gildi sem lög-1 legur gjaldmiðill hinn 28. J maí 1962.. Er hér um að ræða J seðla, sem settir voru í um- ferð á árunum 1928—1960. J Eftir 28. maí verður ekki ] hægt að skipta þessum seðl- J um nema í afgreiðslu Eng- J landsbanka í London. Ný vandræði brezka skip- JL® * 1 ~ > 1 jf® \'9 stjorans a Siglufiroi Ekki var skipstjórinn á brezka togaranum Archcr fyrr laus úr prísund á Siglufirði eftir að hafa þolað sinn dóm ásamt nokkrum skipsmönnum, en hann lenti í nýjum lirakning- um. Hann fór úr Siglufjarðarhöfn um kl. 20 í gær. Fjórum til fimm mínútum seinna var togarinn strandaður í fjörunni hinum megin fjarðarins. Vélbáturinn Hringur frá Siglufirði fór strax til aðstoðar. Setti hann línu í togarann og ætlaði að draga hann yfir en línan slitnaði. Rak þá togarann stuttan spöl yfir á sandrif, sem kallast Sandhóll. Eftir það tókst Hring að draga togarann yfir um kl. 23 og ligg- ur hann nú 1 höfn á Siglufirði. Verður sennilega efnt til sjó- prófa út af strandinu í dag. Dómur yfir brezku sjómönuunum. Settur bæjarfógeti á Siglu- stjóranum A. F. Hilldrith og fimm skipsfélögum hans í gær. Var skipstjórinn dæmdur í 10 þúsund króna sekt en einn skips manna hans, Robert, fékk 3 þús- und króna sekt. Jafnframt var þeim gert að greiða 6000 krón- ur í skaðabætur. Geir Zoega umboðsmaður togarans setti til- skildá tryggingu. Síðan flutti Tíminn hefur gripið til! stærsta fyrirsagnaleturs síns og þyrlar upp miklu mold- viðri undir . f yrirsögninni „Hólaskóla lokað?“, þvert yfir forsíðu. Er þar sagt, að. Gtitnnar Bjarnason skóla-1 lögreglan sjómenrtina um borð og voru þeir mjög stilltir og prúðir eftir það. Skipshöfnin á brezka togaranum hélt sig öll um borð meðan réttarhöldin fóru fram yfir félögum þeirra. Varð ekki vart vandræða af þeirra hálfu. Þeir búa nú allir um borð meðan beðið er eftir sjóprófum út af strandinu í gær. stjóri á Hólum hafi í viðtali við Dag í fyrradag gefið fyllilega í skyn“ að „næst liggi fyrir að leggja Hóla- j skóla niður“ o. s. frv. Er \ greinin árás á skólastjórann Frh. á 7. s. Pallisser í Brezka eftirlitsskipið Pal- Iisser var í Reykjavíkurliöfn í morgun. Margir muna eftir nafni þessa skips, sem stóð á sínum tíma framarlega í þorskastríðinu gegn fslend- ingum. En nú eru Bretarnir orðnir friðsamlegir. Þeir koma hingað til þess að taka höfn olíu. Eru þeir á ferð til eftir- hts og aðstoðar við brezka togara. Fyrst var Pallisser við Noreg en kom hingað upp að ströndinni fyrir nokkrum döguni. Skipsmenn töldu að 40—50 brezkir togai^r væru nú á miðunum kringum land. Hólaskóla eigi lokað i i

x

Vísir

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.