Vísir - 30.03.1962, Page 1
VISIF
52. árg. — Föstudagur 30. marz 1962. — 75. tbl.
FJ. íær
nú tvær
Flugfélag íslands tekur tvær
flugvélar í þjónustu sína í sum-
ar til viðbótar fyrri fiugkosti
sínum. Þessar viðbótar-flugvéi-
ar verða báðar teknar í innan-
landsflugið vegna þess að þar
er mikili hörgull á flugkosti frá
því sem nú er.
Önnur þessara flugvéla er af
Skymastergerð, en hana tekur
Flugfélagið á leigu yfir sumar-
mánuðina vestan frá Bandarfkj-
unum. Hefur áhöfn þegar verið
send vestur til að sækja vél-
ina og er búizt við að hún
komi til Reykjavíkur núna um
helgina.
í viðtali sem Vísir átti við
Örn Ó. Johnson framkvæmda-
stjóra Flugfélags Islands í gær
tjáði hann blaðinu að flugvéla-
kostur félagsins væri of lítill í
innanlandsfluginu, þannig að
baf bæta-við vélum’
einkum yfir sumarmánuðina.
Kvað hann þann kost hafa ver-
íð tekinn að taka Skymastervél
á leigu til næstkomandi hausts,
og myndi hún einkum annast
fiugferðir til hinna fjölfarnari
staða eins og Akureyrar og Eg-
ilsstaða. Hins vegar væri ekki
unnt að leysa flugþörfina við
Framh. á 10. síðu.
nyjar
vélar
í Naut-
hólsvík
ígær»
Herramanns-
matur tíndur
Á sólskinsdegi í fyrra sum-
ar fór Mrs. Pamela Sinclair,
sem gift er John J. Sinclair,
sendiráðsritara í brezka sendi-
ráðinu, suður í Nauthólsvík, á-
samt tveim íslenzkum vinkon-
unm sínum. Þar suður frá rakst
hún á kræklinga, sem erlendis
eru taldir hið mesta lostæti,
en hafa sjaldan verið notaðir
hér.
Vér héldum á fund þeirra
hjóna til að spyrja þau nánar
út í þetta. Við spyrjum fyrst
frúna hvort hún hafi vitað af
kræklingunum þegar hún fór
þangað.
„Ég hafði ekki hugsað um
það, en ég hefði átt að geta
sagt mér það sjálf, þar sem
þeir eru meðfram allri strönd
Englands. Þegar ég var barn
í Kent fórum við gjarnan nið-
ur að ströndinni, til að tina
kræklinga og jafnvel þar var
erfitt að fá þá keypta, því allir
sem rákust á þá tíndu þá.“
Nú tekur Mr. Sinclair við:
„Kræklingar eru mjög svipaðir
á bragðið og ostrur. Áður voru
þeir kallaðir ostrur fátækling-
anna, en nú er verðjð á þeim
orðið nokkurnveginn það sama.
Raunar er ekki svo langt síðan
að ostrur voru fátæklingafæða
því að Dickens segir frá þvi að
sveitarlimir hafi verið aldir á
ostrum og öli, þar sem það var
það ódýrasta sem fáanlegt
var.“
„Hvar halda þessir krækling-
ur sig?“
„Þeir sem ég fann í Nauthóis
víkinni voru í hnédjúpu vatni,
í fjöruborðinu. Þeir hanga :
þara og þangi, og þaðan verð-
ur að tína þá. Helzt þarf að
geyma þá í sjó, þangað til þeir
eru soðnir, svo að þeir halci
lífi. Áður en þeir eru soðmr
er ekki hægt að opna þá, en
þeir opnast við suðuna. Raunai
þarf ekki að sjóða þá nema í
tvær mínútur, en bezt er að
nota til þess sjó.“
Við spyrjum
Sinclair hvort að
grundvöll fyrir að
að iðnaði hér.
„Það tel ég líklegt. Hér er
víða svo mikið af kræklingi að
það má bókstaflega moka hoti
Framh. á 10. síðu.
Frú Pameia Sinclair. ^
næst Mr.
hann teiji
gera þetta
/ fjörumi af hreikrí konu
SAMNINGSStTTARFRUM VARPIB
HEFUR VERID AFHENT B.S.R.B.
Undanfarna daga hefur fjár-
málaráðherra átt viðræður við
stjóm Bandalags starfsmanna
ríkis og bæja um hið nýja frum
varp um samningsrétt opin-
berra starfsmanna, sem i und-
irbúningi er. Mun ráðherrann
hafa afhent stjórn B.S.R.B.
frumdrög að frumvarpinu til at-
hugunar og álitsgerðar, en Vís-
ir hefur fregnað að ríkisstjóm-
in hafi fullan hug á því að af-
greiða málið nú á þessu þingi.
í frumvarpinu er gert ráð
.fyrir því að opinberum starfs-
mönnum verði veittur fullur
samningsréttur um kaup og
kjör, en hingað til hefur kaup
þeirra verið ákvarðað einhliða
af ríkinu mcð launalögum. Ef
ekki nást samningar er gert ráð
fyrir því í hinu nýja frumvarpi
að niálinu verði skotið til sér-
staks kjaradóms til úrlausnar.
Er hér urn mikilvæga réttarbót
að ræða.
Stjórn B.S.R.B. mun hafa set-
ið á fundum síðdegis í gær og
i gærkvöldi til þess að ræða
samningsréttarmálið og er tal-
ið að vænta megi úrslita næstu
daga. Þótt ekki sé langt eftir
þings mun ríkisstjómin hafa
fullan hug á því að afgreiða
málið fyrir þingslit.
t morgun
»
16. s.
%