Vísir - 31.03.1962, Síða 8

Vísir - 31.03.1962, Síða 8
8 — CJtgefandi: Blaðaútgáfan VlSIR Ritstjórar: Hersteinn Pálsson, Gunnar G. Schram Aðstoðarritstjóri: Axel rhorsteinsson. Fréttastjórar: Sverrir Þórðarson, Þorsteinn G. Thorarensen. Ritstjórnarskrifstofur: Laugavegi 178. Auglýsinge og afgreiðsla: IngólfSstræti 3. Áskriftargjald er 45 krónur á mánuði. í lausasölu 3 kr. eint. ■ Sfmi 11660 (5 llnur). Prentsmiðja Vísis. — Edda h.f. -----------------------------------------------------) Htæðsla kommúnista Mikill ótti og ringulreið ríkir nú í herbúðum kommúnista. Þeir sjá fram á mikið fylgishrun í bæj- ar- og sveitarstjórnarkosningunum í vor, vegna mis- taka flokksforustunnar í verkalýðsmálunum og Moskvudekursins, sem almenningur í flokknum hef- ur fyrir löngu fengið nóg af. Eina leiðin, sem flokksforustan sér, til þess'að leyna fylgistapinu svo sem verða má, er að fá Fram- sókn í kosningabandalag sem víðast í kaupstöðum og sjávarþorpum. Og svo hræddir eru kommúnistar við að bjóða fram einir, að nú ganga þeir víða eftir Fram- sókn og bjóða henni gull og græna skóga í samstarf- inu, ef hún vilji styðja þá. Hingað til hefur þetta ver- ið öfugt. Kommúnistar hafa sett Framsóknarmönnum skilyrðin og venjulega hafa þeir lítið eða ekkert feng- ið fyrir stuðninginn. Nú sér Framsókn sér leik á borði og lætur sums staðar ganga mikið á eftir sér. Hugsanlegt er líka, að ýmsir forustumenn Fram- sóknar séu nú farnir að sjá það, að samvinnan við kommúnista er ekki vel séð út um landið, og svo hitt, að fylgishrun kommúnista verður svo mikið, að stuðn- ingur Framsóknar nægir ekki til þess að tryggja þess- um flokkum sigur, nema ef til vill á örfáum stöðum. Bæri Framsóknarflokkurinn gæfu til þess, að hafna allri kosningasamvinnu við kommúnista í vor, e-r nokkurn veginn víst, að þeir mundu fá þá útreið, sem nægði til þess að gera þá áhrifalausa í bæjar- og sveitarstjórnum víðast hvar á landinu. Og vilji Fram- sóknarflokkurinn framvegis kallast lýðræðisflokkur, ber forustumönnum hans skylda til að hafna öllu samneyti við Moskvumenn nú þegar. Hin rétta stefna Árangur viðreisnarstefnunnar er orðinn öllum þorra fólks svo auðsær, að það er hætt að taka mark á áróðri stjórnarandstöðunnar. Jafnvel Tíminn kemst ekki hjá því að viðurkenna þetta stundum í öðru orð- ínu. En því fyrr sem Framsóknarflokkurinn snýr til fulls frá villu síns vegar og játár að viðreisnarstefna stjórnarflokkanna sé sú rétta, því betra. Það mun koma skýrt í ljós í kosningunum í vor, að stór meirihluti þjóðarinnar lýsir yfir trausti sínu á viðreisnarstefnunni. Hafi Framsóknarflokkurinn þá enn ekki áttað sig á því, að hann hefur verið á villi- götum, er trúlegt að hann geri það fyrir næstu Al- þingiskosningar. Að öðrum kosti má hann búast við svipuðum örlögum og kommúnistar óttast nú. Kommúnistar hafa þegar gert sér ljóst, að þeir muni tapa fylgi, en þeir ráða ekki sjálfir stefnu sinni og eiga því erfiðara með að breyta um, þótt einhverj- ir þeirra vildu. Framsókn á hins vegar að geta ráðið sinni stefnu sjálf. Hún getur hvenær sem er hætt að sækja „línuna“ upp á ritstjórnarskrifstofu Þjóðviljans. VÍSIR Laugardagurirm 3i. marz 1962. Djúpskipið Trieste, sem Piccard og sonur hans notuðu HANN KANNAÐI HÁ- LOFT OG HAFDJÚP Hinn frægi svissneski vis- indamaður, Auguste Piccard, sem frægur er fyrir rannsókn ir sínar á hafdjúpunum og háloftunum, Iést af hjarta- slagi á heimili sínu í Laus- anne, þann 24. febrúarl^S ára aldri. Piccard var á sínum tíma, sá maður, sem hæst hafði komist í loft upp og dýpst í sjó niður. Varð hann af þessu mjög frægur og var við lát sitt, einn af þeklctustu vísindamönnum okkar tíma. Fursti háloftanna. „Draumur minn, um að verða Columbus háloftanna, hefur ræzt“, skrifaði Piccard, árið 1931, eftir að honum og aðstoðarmanni hans hafði tek ist að komast í 51.775 feta hæð, yfir Tyrol. Þetta var það hæsta sem nokkur maður hafði komist og á svipstundu varð nafn hins óþekkta verlt- fræðings kunnugt um allan heim. Piccard var skyndilega kallaður „fursti háloftanna” og „hetja aldarinnar". Auguste Piccard fæddist 28. janúar, 1884 í Basel. Var hann tvíburi, en einnig átti fyrir bróður hans að liggja að ná frama á sviði flugmála. Faðir þeirra var prófessor í efnafræði, við háskólann þar í borg. Piccard tók próf í vélfræði árið 1907 og varð síðar doktor í náttúruvísind- um. I ioftbelg um álfuna. Árið 1913 fór Piccard í sína fyrstu ferð í loftbelg. Flaug hann þá, ásamt bróður sínum, frá Zurich, yfir Þýzkaland og til Frakklands. Tilgangurinn Auguste Piccard. með ferðinni var að rannsaka þrýsting og hita innan í loft- belgnum. Allir vinir hans reyndu að telja hann af fleiri loftferðum, en hann skeytti því engu og-hélt áfram. Fræg astur varð hann fyrir ferð þá er fyrr getur, þegar hann fór í 51.775 feta hæð. Til sam anburðar má geta þess að Mount Evrest er 29.140 fet og þáverandi hæðarmet í flugvéi var 43.166 fet, svo að ekki var um neitt smáræðis afrek að ræða. Piccard fann sjálfur upp loftþéttan aluminium klefa, sem hann notaði til ferðarinn ar. Var honum haldið. uppi af belg fylltum vatnsefni. Flugið. Ári seinna sló Piccard sitt eigið met og fór í 55.000 feta hæð. Komu þessi flug hans af stað algjöru flugbrjálæði og gat nú fólk ekki hugsað sér neitt meira spennandi en að svífa um háloftin. Fáir komust þó langt, enda tæki flestra harla léleg. Þegar komið var fram á ár- ið 1937 hafði Piccard flogið 27 sinnum og endað síðasta flugið með því að belgurinn féll Iogandi til jarðar. Fór hann aðeins eina flugferð eftir það. Var hún farin að beiðni Alberts Einstein, og tókst með henni að sanna ýmis atriði afstæðiskenning- ar hans. Lét þá Piccard af flugferðum fyrir bænastað konu sinnar. t hafdjúpin. 1946 sneri Piccard sér að fullu frá háloftunum að haf- djúpunum. Þegar hann var stúdent í Zurich hafði hann dreymt um að fara dýpra i hafið en nokkur maður hafði áður farið. Þessi draumur rættist, eftir tveggja ára til- raunir, árið 1948. Þann 30. september 1948 Framh. á 11. síðu. Auguste Piccard látinn

x

Vísir

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.