Vísir - 09.04.1962, Síða 1
Sá furðulegi atburður gerðist
á Eyjafirði s. I. föstudagskvöld
að árekstur varð milli strand-
ferðaskipsins Heklu og smábáts,
Pálma frá Litla Árskógssandi og
sökk sá síðamefndi. Mannbjörg
varð þó.
Þetta gerðist í blíðu og björtu
veðri kl. 8,30 um kvöldið. 1.
stýrimaður á Heklu Magnús
Einarsson er var á siglingavakt
sá bátinn löngu áður og formað-
urinn á Pálma Gunnlaugur Sig-
urðsson sá Heklu einnig löngu
áður. Samt gátu þetr ekkhftortnO
árekstri.
Siglingalína skerst.
Sjópróf út af þessu stóðu yfir
á laugardaginn. Kom það fram í
þeim, að Hekla var að koma að
norðan og hélt inn eftir Eyja-
firði venjulega siglingaleið fyrir
vestan Hrísey. Vélbáturinn
Pálmi var að koma úr róðri
austanvert við Hrísey með
stefnu á Litla Árskógssand og
þýðir það, að siglingalínur þeirra
skerast rétt fyrir sunnan Hrís-
ey.
52. árg. — Mánudagur 9. apríl 1962. — 83. tbl.
stúka
bógur Heklu snerti skut Pálma,
braut hástokk, skansklæðningu
og styttu þannig að sjór flæddi
inn í bátinn.
Teflt á tæpt vað.
Formaðurinn á Pálma, Gunn-
laugur Sigurðsson segist strax
er hann sá Heklu hafa talið að
með óbreyttri stefnu og gang-
^ hraða beggja skipa ætti ekki að
koma til áreksturs og því hafi
I hann haldið stefnunni óbreyttri.
Er Gunnlaugur leit síðast út
um hliðarglugga á stýrishúsinu
1 stjórnborðsmegin kvaðst hann
I hafa séð aftur eftir stjórnborðs-
; hlið Heklu og talið sig þá kom-
inn framhjá stefni hennar og ekk
ert litið meira út fyrr en árekst-
urinn varð.
Framhald á jIs 5.
Tóbaks
í Siglufirði hefur nú verið
itofnað tóbaksbindindisfélag
drengja og er þetta m. a. af*
eiðing af því að mönnum er
ú að verða ljósara, hve skað-
'legt tóbakið er. 1 febrúar s. 1.
’var haldinn undirbúnings-
stofnfundur. I síðustu viku
var félagið svo stofnað og
eru í því 55 drengir á aldrin-
um 12—21 árs.
Tilgangur félagsins er a£
'orða unglingum frá neyzlu
tóbaks vinna að útrýmingu
ess og skipuleggja fræðslu á
kaðvænlegum áhrifum þess.
;En talsvert hefur borið á reyk
ingum unglinga á Siglufirði
ð undanförnu.
Á undirbúningsfundinum
febrúar töluðu séra Ragnar
Fjalar Lárusson sóknarprest-
ur, Sævar Halldórsson héraðs
læknir og Gísli Sigurðsson
bókavörður. Á stofnfundinum
töluðu Gunnar Sigurðsson
cand theol, og Þórir Guðbergs
son kennari, báðir úr Reykja-
vík, en staddir á Siglufirði.
Gæzlumaðúr stúkunnar er
Stefán Friðriksson lögreglu-
þjónn, en í stjórn auk hans
Björn Sigurbjörnsson vara-
formaður, Jónas Ragnarsson
ritari, Stefán Jóhannsson
gjaldkeri og Hersteinn Karls-
son skrásetjari.
r / r
&5iglo
Þessa mynd tók ljósmyndari Vísis á Akureyri á laugardagsnóttina, þegar komið var þangað
með svindlarana þrjá. Sjást þeir hér skjótast inn í lögreglubíinn.
Aðfaranótt laugardagsins
kom strandferðaskipið Hekla
til Akureyrar og með henni
þremenningar þeir, sem höfðu
tveim dögum áður farið um
verzlanir Akureyrar og gefið
út falskar ávísanir á ósvífinn
og ævintýralegan hátt.
Þremenningarnir sem heita
Eggert Sigurðsson frá Akra-
nesi, Sigurður Kristinsson,
Ásvallagötu 35 í Rvík, og
Stefán Guðmundsson Strand-
götu 27, Hafnarfirði voru
voru mjög snyrtilega til fara,
enda höfðu þeir fatað sig upp
hjá Jóni klæðskera á Akur-
eyri með fölskum ávísunum.
Þeir voru í glæsilegum ullar-
frökkum, í hvítum skyrtum,
nýjum skóm og einn með
týrólahatt af nýjustu tízku.
Á lögreglustöðina.
Lögreglan var á bryggjunni
til að taka á móti þeim og
var þeim ekið upp á lögreglu-
stöðina, þar sem yfirheyrslur
hófust að nýju yfir þeim eftir
yfirheyrslurnar á Siglufirði.
Svo mikill mannfjöldi hafði
safnast saman að engu var
líkara en frægir menn væru
að koma í heimsókn til bæj-
arins.
Á lögreglustöðinni voru
herrarnir færðir úr sínum
nýju glæsilegu -fötum en
klæddu sig aftur í sín eldri
og slitnu föt, sem þeir höfðu
skilið eftir í herbergi sínu á
Hótel KEA.
Það upplýstist við þessi
réttarhöld, að svikaferillinn
Framhald á bls 5
Hvarf undir bakka hom.
Nú segist 1. stýrimaður á
Heklu Magnús Einarsson hafa
séð bát koma vestur og inn fjörð
inn, en hann kvaðst hafa gert-ráð
fyrir að hann myndi á hverri
stundu víkja samkvæmt siglinga
reglum, þar sem hann kom á
bakborð.
Skipin nálguðust nú óðum og
kvaðst stýrimaðurinn loks hafa
séð bátinn hverfa undir bakka
horn á Heklu bakborðsmegin.
Kvaðst hann þá ekki hafa séð
önnur ráð til að forða árekstri
að beygja snöggt til stjóm-
borðs og gefa stutt hljóðmerki.
En þá virðist sem bilið hafi verið
of lítið þannig, að stjómborðs-
VÍSIR
fWWWWWWVWWW
Saka hvor-
ir aðra
um mistök
DC GAULLC VANN STÓKSICUR
De Gaulle sigraði í þjóðarat-
kvæðinu um Alsír — um % kjós-
enda svöruðu játandi spurning-
unni um það hvort þeir vildu
samþykkja vopnahléð, sem gert
var I Evian og að veita De Gaulle
fuljt vald til hverra þeirra að-
gerða, sem hann teldi nauðsynleg-
ar, þar til hið nýja Alsír væri
komið til sögunnar.
Kjósendur voru nærri 27 mill-
jónir. Af þeim greiddu 17%.mill-
jón atkvæði með De Gaulle, 1
milljón og 375.000 sögðu nei, ein
milljón kjósenda eyðilagði kjör-
seðla sína, en 6l/2 milljón greiddi
ekki atkvæði.
Kosningarnar fóru yfirleitt frið-
samlega fram. Það er talið hafa
haft mikil áhrif í þá átt, að úr-
slitin urðu þau, að De Gaulle sigr-
aði með svo miklum atkvæðamun,
að kommúnistar studdu hann þrátt
fyrir, að þeir væru mótfallnir ein-
ræðisvaidi honum til handa.
Úrslitunum er sem vænta mátti
allmisjafnlega tekið. Fyigismenn
De Gaulle og fleiri, sem þrá frið
bæði Frakklands og Alsírs vegna,
fagna þeim að sjálfsögðu mjög og
raunar fleiri, en leiðtogi MRP
flokksins í öldungadeildinni segir,
að De Gaulle megi ekki skilja úr-
slitin svo, að franska þjóðin vilji,
að einum manni sé fengið það
vald f hendur, sem hann hafi nú
fengið, og leiðtogi radikala segir
það sýna hve ótryggar menn telji
horfumar, að milljón manna eyði-
lagði kjörseðla sína og yfir 6
milljónir sátu heima. Leiðtogar
hægri öfgamanna segja, að úrslitin
séu markleysa vegna þess, að
franskt fólk í Alsír fékk ekki að
kjósa.
Ekkert lát á
ódæðisverkum.
1 Alsír var ekkert lát á ódæðis-
verkum og 26 menn drepnir, en
miklu fleiri særðust. í Oran var
háður bardagi um opinbera bygg-
ingu í fulla klukkustund, og létu
OAS-menn undan síga, er Frakkar
sendu brynvarða hervagna fram til
árása. OAS gerði árásir á margar
opinberar byggingar í Oran og Al-
geirsborg. OAS-menn skutu af
handahófi úr bifreiðum á fólk á
götunum. — Fjölmennt franskt
herlið var á verði. Yfir 15 spreng-
ingar urðu í Algeirsborg einni og
eigi færri í Oran og öðrum borg-
um.
Framhald ár bls. 5.