Vísir - 14.04.1962, Síða 1

Vísir - 14.04.1962, Síða 1
VISIR 52. árg. — Laugardagur 14. apríl 1962. — 88. tbl. viðreisnarinnar Síðari hluti cldhússdagsum- ræðnanna á Alþingi fór fram í gærkvöldi. Hafa þá stjómmála- flokkamir lagt spilin á borðið, og fór ekki á milli mála, að stjómarflokkamir unnu glæsileg an sigur. Af hálfu Sjálfstæðis- flokksins töluðu Ingólfur Jóns- son landhúnaðarráðherra, Jó- hann Hafstein fyrrv. ráðherra og Bjami Benediktsson dómsmála- ráðherra. Með tölum og dæmum af- sönnuðu þeir fullyrðingar stjóm arandstæðinga um kreppustefnu og óbærilegt dýrtíðarástand. Þeir minntu á hin mörgu og stóru hagsmuna- og velferðar- mál, sem núverandi Alþingi hef- ur fjallað um fyrir forgöngu rík- isstjómarinnar og stuðnings- Frá útvarps- umræðunum i gærkveldi I gærmorgun strandaði vélbát urinn Þorlákur AR-5 austur í Þorlák'sKöfn og var þessi mynd tekin af honum í klöppunum i gærdag. Þarna lauk ferli mikils happa- og aflaskips. Hann var kenndur við heilagan Þorlák og því ekki furða þótt hann hafi fært í land á undanförnum ár- um þúsundir tonna af spriklandi fiski, sem veiddur var rétt fyrir utan þessa nýju höfn. Við at- hugun í gær kom það í íjós að helmingurinn af kili bátsins var rekinn í land og þýðir það að hann stendur í klöppinni með botninn úr og verður ekki bjarg að, enda var hann orðinn nærri hálfrar aldar gamall. Skipverium verður refsuð Togarinn Karlsefni er enn í Cuxhaven en búizt við að hann leggi af stað heimleiðis um helg- ina og verði þá kominn til Reykjavíkur rétt fyriij' páska. Jón Sigurðsson formaður Sjó- mannasambandsins sagði Vísi í gær ,að samtökin litu mjög al- varlegum augum á verknað þeirra Karlsefnis-manna. Hér væri um hreint verkfallsbrot að Skríða Hellisheiðarvegurinn, sem lok- aðist skyndilega í hríðarveðri í fyrrinótt, var ruddur eftir hádeg ið í gær og varð þá strax fær öllum bílum að nýju. Vestur á Snæfellsnesi féll skriða á Búlandshöfðaveg, á leið inni milli Grundarfjarðar og Ól- afsvíkur, þannig að hann lokað- ist og var unnið að því í gær að ryðja hann. Var búizt við, að það tæki ekki langan tíma. Þá er Norðurlandsvegur, milli Akureyrar og Reykjavíkur, fær stórum bílum frá og með deg- inum í dag að telja. Vegurinn verður ruddur, þar sem helzt gerist þörf, ef heldur áfram að hlána. ræða og yrði gripið til harðra gagnráðstafana til að gefa sjó- mönnum það fordæmi að slíkt hendi ekki oftar. ★ Það er tvennt, sem kemur til greina, sagði Jón, — að víkja mönnunum úr Sjómannafélaginu vissan tíma, svo að þeir geti hvergi fengið vinnu, eða þeir fái inngöngu í neitt annað verka- lýðsfélag. í öðru lagi er hægt að grípa til sektarákvæða ,en slíkt hefur | ekki verið gert í 30 ár. Þegar Karlsefni kemur í höfn munum i við þegar í stað fara út í skipið jog ræða við sjómennina. segir Jón Sigurðsson Vísir sneri sér einnig til Ragn- ars Thorsteinssonar útgerðar- stjóra Karlsefnis og spurði hann hvað hann segði um hótanir ráð- herra Emils Jónssonar um að útgerð Karlsefnis yrði sótt að lögum til þyngstu refsingar fyr- ir brot á útflutningslöggjöfinni. Ragnar svaraði því til, að hann teldi slíka málsókn ekki koma til greina vegna þess, að neitun deildar ráðuneytisins á útflutningsleyfi hefði verið gef- in á algerlega röngum forsend- um. Það væri tilgangur laganna með útflutningsleyfum þessum, að tryggja það að fisksölur færu fram á þjóðhagslega hagkvæm- an hátt. í þessu tilfelli hefði ekki verið hægt að efast um að fisksalan hefði efnahagslega ver ið mjög hagkvæm fyrir þjóðar- búið því að tryggt hefði verið gott verð í hörðum gjaldeyri. ★ Það var á allt öðrum forsend- um, sagði Ragnar, sem ráðherra fyrirskipaði útflutningsdeildinni að neita um útflutningsleyfi, það var gert til að taka afstöðu í kjaradeilu milli tveggja aðilja. Ragnar Thorsteinsson: Það var auðvitað ekki hlutverk útflutningsdeildar ráðuneytisins Framh. á bls. 12 manna hennar. Stuttum lánum sjávarútregsins og landbúnaðar- ins skal breytt í löng lán og þar með létt af þessum höfuðat- vinnuvegum þungum byrðum, sem safnazt höfðu á þá hallær- isárum vínstri stjómarinnar. — Iðnaðurinn hefur einnig fengið mikilsverða aðstoð. Unnið er að 5 ára áætlunum, framkvæmdir í landinu, kannaðir möguleikar á stóriðju, launamálum opinberra starfsmanna komið í viðunandi horf o. s. frv. Árangurinn af viðreisnar- stefnunni birtist í aukinni fram- leiðslu, meiri sparifjármyndun en nokkru sinni áður, og hlut- fallslega meiri útlánum bank- anna. Atvinna hefur verið stöð- ug og framkvæmdir stórfeiidar. Greiðslujöfnuður við útlönd hef- ur í fyrsta sinn síðan heim- styrjöldinni síðari lauk, orðið hagstæður og innanlands er kom ið jafnvægi á peningamarkaðinn. Metveiði Aðfaranótt s.l. föstudags fékk j v.b. Höfrungur II. frá Akranesi einhvem mesta síldarafla, sem um getur á einni nóttu, eða 2484 tunnur. Þenna afla fékk Höfrungur II. í tveim köstum og kom með hann til Akraness á föstudags-1 morguninn til löndunar. Eigandi j bátsins er Haraldur Böðvarsson útgerðarmaður, en skipstjóri Garðar Finnsson. Garðar er hin mesta aflakló og hefur veitt sam tals 33 þúsund tunnur síldar frá því vertíð hófst í haust, þrátt fyrir ótíð og slæmar gæft- ír. MARIA A FORSÍÐU s/ó Myndsjá rungt

x

Vísir

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.