Vísir - 18.04.1962, Side 9

Vísir - 18.04.1962, Side 9
Miðvikudagurinn 18.'apríl 1962. VISIR Gunnar Thoroddsen: Viðreisnin tryggir að æskan taki við betra landi MARGHÁTTAÐAR UMBÆTUR. Á þeim tveim árum, sem liðin eru síðan viðreisnin hófst, hefur verið unnið að margháttuðum umbótum á mörgum sviðum þjóðlífsins. Afkoma þjóðarinnar í heild hefur rétt við. Ár hvert, síð- an styrjöldinni lauk, hafði halli verið á þjóðarbúskapn- um og skuldum safnað, þang- að til í fyrra. Þá varð greiðslujöfnuður þjóðarbús- ins hagstæður um 200—250 milljönir. 1 beinu sambandi við af- komu þjóðarbúsins út á við er gjaldeyrisástandið. Skort- ur á erlendum gjaldeyri hef- ur lengst af verið þjóðinni þrálát plága og fjötur um fót. Nú hefur skipt um, Þegar við reisnin hófst, í lok febrúar 1960, var gjaldeyrisskuld bankanna 216 milljónir, reiknað með núverandi gengi. En nú, tveim árum seinna, er gjaldeyriseignin 704 milljónir. Bati á þessum tveim árum er því um 920 milljónir króna. Fjárhagsafkoma ríkissjóðs er einn af hyrningarsteinum efnahagslífsins. Á því eina heila ári, sem vinstri stjórnin sat, 1957, varð greiðsluhalli hjá ríkissjóði. Á þeim 2 ár- um, sem núverandi stjóm hefur haldið um stjórnarvöl- inn, hefur nokkur tekjuaf- gangur orðið bæði árin. Sparifjársöínun almennings er ómissandi hlekkur í við- reisninni. Ör vöxtur spari- fjár er undirstaða heilbrigðr- ar lánastarfsemi. Til þess að bæta úr þeim tilfinnanlega lánsfjárskorti ,sem þjakað hefur þjóðina um langan ald- ur, er fyrst og fremst nauð- synlegt að auka spariféð. Það hefur tekizt, bæði vegna hinna háu innlánsvaxta, vegna stöðugrar og mikillar atvinnu og loks vegna þess, að fólkið hefur fengið nýtt og aukið traust á fjármálum og efnahag þjóðarinnar. Sparifé í bönkum og spari-. sjóðum hefur á þessum tveim ámm, frá febrúarlokum 1960 til febrúarloka 1962, aukizt um eitt þúsund og sautján milljónir eða rúman milljarð. MIÐAÐ VIÐ FRAMTÍÐINA. Þær aðgerðir o.. umbæt- ur, sem núverandi ríkis- stjóm hefur staðið að og beitt sér fyrir, hafa vem- leg áhrif á afkomu manna á Iíðandi stund. En allar . era þær fyrst og fremst miðaðar við framtíðina, þær stefna að því að skapa æsku íslands sem bezta aðstöðu í lífsbaráttunni. Með viðreisninni er lagður heilbrigður og traustur grund völlur að framtíðarstarfi. — Með viðreisninni er reynt að tryggja, að æskan taki við betra landi og að henni verði búin betri starfsskilyrði en fyrr. Það er unnið að því, að tryggja fjárhagslegt sjálf-v ca. 2 milljónum upp í rúmar 13 milljónir. • NÁMSKOSTNAÐUR DREG- INN FRÁ SKÖTTUM. I skattafrumvarpinu nýja er það nýmæli, að draga skuli frá tekjum, áðui en skattur er á lagður, námskostnað, sem stofnað er til eftir tví- tugs aldur. Með þessu er ver- ið að létta undir með náms- mönnum, sem oft koma skuld um hlaðnir eftir langt og dýrt nám og eiga sérstaklega fyrstu árin eftir að þeir taka við starfi full erfitt með að standa undir vöxtum og af- borgunum námsskuldanna. • LÆGRI HÚSNÆÐISKOSTN- AÐUR STÆRSTA KJARA- BÓTIN. Húsnæðismálin eru eitt stærsta áhugamál æskunnar. Miklar endurbætur hafa ver- ið gerðar á þessu þingi á lög- um um Húsnæðismálastjórn og um verkamannabústaði, og lánsupphæðir hækkaðar stæði þessa lands svo að ís- lenzk æska þurfi ekki að taka við drápsklyfjum erlendra skulda og stynja undir þeim allt sitt líf. Það er reynt að skapa fjárhagslegt jafnvægi í stað verðbólgu, öruggan at- vinnugrundvöll, svo að at- vinnuleysi hefji aldrei fram- ar innreið sína í þetta land. © BÚIÐ 1 HAGINN FYRIR NÁMSMENN. Það hefur verið búið í hag- inn fyrir íslenzka námsmenn á marga lund. Áður fyrr var það oft örðugleikum bundið fyrir námsmenn að fá á rétt- um tíma nauðsynlegan gjald- eyri vegna gjaldeyrisskorts. Nú eru þeir erfiðleikar úr sögunni. Mikið hefur verið gert til þess að létta undir með námsmönnum með aukn um framlögum til styrkja og lána. Ný löggjöf verið sett um Iánasjóð íslenzkra náms- manna. Árið 1958 voru fram- lög í fjárlögum til styrkja og lána til námsmanna samtals tæpar tvær milljónir króna. í gildandi fjárlögum eru þau rúmar átta milljónir. Þegar með er talið eigið fé 'lána- sjóðs og þau bankalán, sem hann hefur fengið til útlána, hefur fé til námslána og styrkja hækkað á 4 árum úr Kaflar úr úfvarpsræðu G.Th. i eldhúsumræðunum verulegar. Lánsfjárskorturinn hefur háð og háir mjög hús- byggingum, ekki síður unga fólksins en annarra. En með hinni öru sparifjáraukningu, sem er ein afleiðing viðreisn- arinnar, mun bráðlega breytt til batnaðar í þessu efni, svo að auðveldara verður en áður að fá byggingarlán. En eitt mikilvægasta verkefnið er að lækka byggingarkostnað og gera húsnæðið þannig ódýr- ara. Lægri byggingar- og húsnæðiskostnaður mundi vera ein stærsta kjarabót fyr- ir æskulýð þessa lands, — og að því verður að vinna. © FRJÁLSLYND OG VÍÐSÝN UMBÓT ASTEFNA. Stefna viðskipta- og at- hafnafrelsis, stefna frjáls- lyndis og víðsýni skapar æsk- unni aukið svigrúm og holl- ara andrúmsloft. Hver sá æskumaður, sem hefur orku og áræði, krafta í kögglum, eld í æðum, fær nú fleiri tækifæri, margfalda mögu- leika, til þess að afla sér fjár og frama, ryðja nýjar brautir, þjóðinni allri, sér og sínum til farsældar. íslenzk þjóð verður að fylgja frjálslyndri og víð- sýnni umbótastefnu, til þess að vel fari. 9 Ádolf Björnsson bankafulltrúi Adólf Björnsson, bankafulltrúi í Útvegsbanka íslands, verður fimm tugur í dag. Hann er fæddur í Hafnarfirði 18. apríl 1912, sonur hjónanna Ragnhildar Helgadóttur og Björns Helgasonar, skipstjóra. Adólf lauk prófi frá Verzlunarskól- anum 1933, en hafði áður stundað nám í Flensborg í Hafnarfirði og Menntaskólanum á Akureyri. Að loknu námi erlendis um sex mánaða skeið réðist Adolf 1. júní 1934 til Útvegsbanka íslands og Adolf Bjömsson. hefur því starfað þar i nálega 28 ár, lengst af í aðalbankanum í Reykjavík. Auk starfa sinna í Útvegsbank- anum, hafa Adólf verið falin fjöl- mörg önnur trúnaðarstörf. Þannig var hann fulltrúi Alþýðuflokksins í Viðskiptanefnd, hefur átt sæti í niðurjöfnunarnefnd Hafnarfjarðar- kaupstaðar, verið form. útgerðar- ráðs Bæjarútgerðar Hafnarfjarðar, og er þá aðeins það helzta upp- talið, þar sem hann hefur auk þess átt sæti í stjórnum ýmissa félaga, bæði hér í Reykjavík og Hafnarfirði. Hæst ber þó störf Adólfs að fé- lagsmálum bankamanna. Hann hef- ur um langt skeið verið forystu- maður í starfsmannafélagi Útvegs- bankans og innt af hendþ geysi- mikið starf í þágu starfsfólksins þar. Því miður brestur mig kunnug leik til að greina nánar frá því, en hitt veit ég, að hann nýtur ótak- markaðra vinsælda samverkafólks síns í Útvegsbankanum. Adólf hefur verið í stjóm Sam- bands íslenzkra bankamanna í fjöldamörg ár. Hann var formaður sambandsins 1951 —1953 og aftur 1957 — 1958, og nú er hann vara- formaður þess. Hann hefur átt sæti f stjórn Norræna banka- mannasambandsins og sótt fundi þess erlendis á vegum S.Í.B. Adólf var um árabil í ritnefnd Banka- blaðsins og ritstjóri þess 1943 — 1946. Þessi upptalning sannar bezt, hvert traust íslenzkir bankamenn hafa borið til Adólfs Björnssonar, og hann hefur að sínu leyti reynzt þessu trausti fullkomlega verðug- ur með þróttmiklu og sívakandi starfi í þágu samtaka bankamanna. Óskandi er, að íslenzkir banka- menn fái enn f fjölmörg ár að njóta starfskrafta hans í félagsmálum þeirra, víðsýni hans og lipurð. Ad- ólf er einkar vinsæll maður og — fimmtugur senda vinir hans honum í dag hug- heilar árnaðaróskir. Ól. S. Valdimarsson. iizta hátíð krístninnar — Framh. af 8. síðu. ingartíma um píslir Krists. Há- marki náði föstutíminn í dymbil- vikunni, og þá sérstaklega á þrem síðustu dögum hennar, triduum sacrum, en þá skyldu kirkjuklukkur þegja unz Gloria in excelsis væri sungin í messu á aðfaranótt páskadags. í Gallfu var skírdagur snemma nefndur natalis calicis, fæðingardagur kaieiksins, en hlutverk þess dags hefir alltaf verið fyrst og fremst minning um coena Domini, máltfð drottins. Hátíðaliald föstudags- ins langa náði hámarki upp úr 1000, er farið var að sýna greftr un Krists á táknrænan hátt. Var þá annað hvort vígð obláta eða kross lagt niður og byrgt, greftrað, með táknlegum hætti. Púskamir hófust svo sem fyrr segir með páskavökunni. Þeirri vöku tengdust brátt ýmsir tákn- rænir siðir, eins og t.d. tendr- un og vígsla eldsins, páska- ijóssins, sem táknaði hinn upp- risna Krist, vígsla skírnarvatns- ins og jafnvel vígsla fæðuteg- unda, til marks um að nú var fastan á enda. Þá var einnig oblátan eða krossinn, tekin úr gröf sinni. Mjög snemma var hyllzt til þess að framkvæma skímarat- hafnir um páskana. Skfrnir trú- nemanna fóru oft fram f fyrstu á aðfaranótt páskanna, páska- vökunni, en seinna tengist sá siður meir vikunni eftir pásk- ana, sem þá var kölluð HIN HVÍTA VIKA, og dregur hún nafn sitt af hinum hvitu klæð- um skírnþeganna, hvítaváðun- um. Þannig verður þessi æva- gamla hátíð að kristinni hátíð, þar sem þungamiðjan er upprisa Krists og sigur hans yfir dauð- anum og valdi hins illa. Þetta er líka og verður þungamiðja kristindómsins, eða eins og Páil postuli orðar það: „Ef Kristur er ekki upprisinn, þá er ónýt prédikun vor, ónýt Ifka trú yð- ar“. Samkvæmt fornum og nýjum kristnum skilningi er Kristur hið rétta páskalamb, og dauði hans hin eina fullkomna fóm. Á sama hátt er upprisa hans hinn fullkomni sigur. Innan fárra daga munu kirkju klukkur um allan hinn kristna heim hringja inn enn einu sinni þessa hátíð hátíðanna. Boðskap ur páskanna er æ hinn sami: „KRISTUR ER UPPRISINN“. Og svar hinna kristnu safnaða er og verður æ hið sama: „KRISTUR ER SANNARLEGA UPPRISINN“. Mætti allur hinn kristni heim ur rísa upp með Kristi, kon- ungi sínum og Iausnara, til nýs Iífs, til friðar og bróðurkær- leika, til nýrrar hlýðni við lög Guðs föður.

x

Vísir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.