Vísir - 09.05.1962, Page 2
VISIR
Miðvikudagur 9. maí 1962.
ÍSÍ-þingið næst /
/ sept.
Fundur var haldinn í sambands-
ráði Iþróttasambands íslands (ISÍ),
laugardaginn 28. apríl 1962, í fund-
arsal ÍSl að Grundarstíg 2A, Rvík.
Benedikt G. Waage forseti ISÍ
setti fundinn og stjórnaði honum.
Fundarritari var Hannes Þ. Sigurðs-
son, ritari ÍSÍ.
1 upphafi fundarins minntist for-
seti ÍSl íþróttamanna, er iátizt
höfðu frá síðasta sambandsráðs-
fundi ÍSl, Það voru þeir: Andreas
J. Bertelsen, heildsali, er lézt hér
5. marz sl. og Magnús J. Kjaran,
stórkaupmaður, sem lézt 17. apríl
sl. Rakti forseti æviferil þeirra og
íþróttastörf, og bað fundarmenn að
lokum að minnast hinna látnu, og
risu fundarmenn úr sætum í virð-
ingarskyni.
Þá var samþykkt að senda UMS-
Borgarfjarðar heillakveðju i tilefni
50 ára afmælis þess, sem haldið var
hátfðlegt um kvöldið.
Á fundinum voru fluttar skýrslur
framkvæmdastjórnar ÍSÍ og sérsam
bandanna (HSÍ, KKÍ, KSl, SKl,
SSÍ). Auk skýrslanna var lagt fram
prentað „Ágrip af þinggerð íþrótta-
þings ISÍ 1961.
Að öðru leyti voru helztu gjörð-
ir fundarins þessar:
Ráðstefnan í Strassborg
Þorsteinn Einarsson íþróttafull-
trúi flutti skýrslu um ferð sína á
ráðstefnu, sem haldin var í Strass-
borg, á vegum Evrópuráðsins, og
fjallaði meðal annars um íþrótta-
mál. Var Þorsteini þökkuð skýrslan.
F’ármál íþróttahreyfingarinnar
Stefán G. Björnsson, formaður
milliþinganefndar ISl um fjármál,
flutti skýrslu um störf nefndarinnar
Eftirfarandi tillaga var samþykkt:
Fundur haldinn í sambandsráði ISl
28. apríl 1962, þakkar milliþinga-
nefnd ISl um fjármál, fyrir grein-
argerð hennar. Jafnframt óskar
fundurinn eftir því, að nefndin haldi
áfram störfum sínum í samráði við
framkvæmdastjórn ÍSl. Þá var sam
þykkt að fjölga í nefndinni um tvo
menn, og voru kjörnir þeir Gísli
Halldórsson og Þorsteinn Einars-
son.
Kennlustyrkir
Eftirfarandi tillaga var samþykkt:
Sambandsráðsfundur ISl, haldinn
28. apríl 1962 samþykkir, að fé því,
er íþróttanefnd ríkisins úthlutar úr
íþróttasjóði 1962 til ISl (kennslu-
styrkir), verið skipt á milli aðila
á sama hátt nú og verið hefir að
undanförnu, þ, e. í réttu hlutfalli
við útreiknaðan kennslukostnað,
gerðan eftir kennsluskýrslum, og
fjáruppræð þá, er íþróttanefnd veit-
ir í þessu skyni.
Skipting á V3 hluta skatttekna ÍSl
milli sérsambandanna
Samþykkt var eftirfarandi: Sam-
bandsráðsfundur ÍSÍ, haldinn 28.
apríl 1962, samþykkir að skipta ya
af skatttekjum ISl árið 1961 á eftir
farandi hátt milli sérsambandanna:
Knattspyrnusamband
Isiands.............kr. 1.700,00
Frjálsíþróttasamband
Islands......... . >- 4.200,00
Skíðasamband íslands — 2.400.00
Sundsamband Llands — 1.900,00
Handknattleikssamband
íslands............. — 2.400,00
Golfsamband íslands — 1.700,00
Körfuknattleikssamb.
íslands............. — 1.700,00
Ú-
Samtals kr. 16.000,00
Framh. á bls. 13
Þróttur keppir við
Dundee á Dens Park
Þróttur fer með 2. deildarlið sitt
utan í haust og er ferðinni heitlð
tll Skotlands, þar sem Þróttur mun
heimsækja DUNDEE, en Dundee
vann einmitt slcozku dcildakeppn-
ina nýlega eftir harða baráttu við
Glasgow Rangers. Dundee kom
hingað til Reykjavíkur fyrir ári í
boði Þróttar og vann hér alla sína
leiki, þar á meðai Iandsliðið.
Til Skotlands munu Þróttararnir !
VINSÆLIR
Portúgalska liðið Bcnfica getur
ekki kvartað undan þvi að fá ckki
ferðalög. Siðan liðið vann Evrópu-
bikarkcppnina i úrslitalciknum í
Amsterdam i fyrri viku gegn Real
f.ladrid hafa tilboðin flætt inn á
ikrifstofu þeirra. Ekki færri en 32
tilboð um leiki í 17 löndum hafa
borizt. Meðal Iandanna eru Eng-
land, Skotland, Þýzkaiand, Egypta-
'and, Mexíkó og Svíþjóð, svo nokk-
ur séu nefnd.
halda 22. scptember, en þann 26.
sept. verður keppt við unglinga-
lið Dundec, en félagið hefur yfir
30 knattspyrnumenn 1 sinni þjón-
ustu. Einnig mun Þróttur leika vlð
Glasgow Celtic, sem teflir einnig
fram unglingaliði sinu, mjög
sterku, cn Þróttarar fá helming að-
gangseyrisins i þessum Ieik upp i
ferðina, en Dundee borgar uppi-
hald ailt.
Þróttur mun elnnig taka á móti
liðum í sumar, þar sem eru knatt-
spyrnulið Holbæk í Danmörku, en
Þróttur hefur haft gott samstarf
við íþróttafélög þar í borg. Koma
tveir flokkar frá Hoibæk, 2. flokk-
ur og 0. flokkur.
Lokaæfingin
fyrir
Myndimar sýna eina af síðustu
æfingum þýzka landsliðsins í
knattspymu fyrir ferðina til
Chile þar sem liðlð er eitt árenni
legasta lið keppninnar.
Þriggja dálka myndin sýnir
Sepp Herberger á tali við hina
snjöllu framlínumenn sína
Briills, Olk, Geiger, Haller og
Sturm. Sterkasta framlínumann
inn vantar þó Uwe Seeler, sem
á HM í Stokkhólmi 1958 var tal-
inn sterkastur allra miðherja
keppninnar.
Kappamir á hinni myndinni
eru markverðimir sem fara með
liðinu til Chile, en þeir em frá
hægri: Sawitzki, Fahrian, og
Tilkowski. Sá síðastnefndi er tal
inn öruggur um að verða aðal-
markvörður.
JAPANIR ÆTLA AÐ
SLÁ ÖLL FYRRIMET
Sundmót Ægis i SundhöII
Reykjavíkur kl. 8.30.
Sænski skautaleiðtoginn Loft-
man er nýkominn til Stokkhólms
frá Japan, þar sem hann skoðaði
tþróttamannvirki í sambandi við
HM á skautum 1963, sumarleika
OL 1964 og vetrarleikana, sem
e.t.v. verða haldnir f Japan.
I Japan eru nú fjórar 400 metra
skautabrautir mcð tilbúnu skauta-
svclll, cn auk þess cin mcð 330
mctra braut. I Tokyo er nú verið
að byggja skíðahöll mcð tilbúnum
snjé, en bak við þetta nýstárlega
fyrirtæki stendur auðjöfur nokkur,
árnbrautarkóngurinn Tsutsumi.
Ákveðið hefur verið að HM á
næsta ári verði haldið í borginni
Karuizawa, sem er alllangt fyrir
norðan Tokyo. Borgin er í 1000
metra hæð yfir sjávarmáli en
skautabrautin er jafnvel enn hærra,
eða í 1200 metrum. Keppnin mun
eiga að fara fram í 'lok febrúar.
Keppendur á mótinu ,sem verða frá
öllum heimshornum, munu mætast
á þrem stöðum fyrir keppnina, í
Stokkhólmi (eða Kaupmannahöfn),
San Francisco og Hong Kong, en
leggja síðan af stað til Japan 13.
febrúar og halda til Hakone, smá-
borgar nálægt Tokyo og þar fer
fram eins konar „generalprufa"
fyrir HM.
Sumarleikarnir enn glæsilegri
en í Róm.
Það er þegar greinilegt að Jap-
anir kosta kapps að gera sumar-
leika OL enn glæsilegri en hinir
glœsilegu leikar í Róm voru. Fram-
kvæmdirnar eru geysilegar og
reiknað er með að um 2 þúsund
milljónir ísl. króna fari f fram-
kvæmdir þessar. Ekki færri en 150
manns sitja sveittir við að útbúa
dagskrá fyrir hinar ýmsu fram-
kvæmdir. Stærsta vandamálið eins
og f Róm er umferðarvandamálið
í milljónaborginni og óttast menn
eina allsherjar „kaos", er áhorf-
endáskarinn fer að velli og frá,
þegar leikarnir fara fram 9.-21.
október 1964. Um það leyti er hit-
inn í Tokyo oftast um 20 gróður.
„Ég skal borga“.
Um vetrarleikana 1968 er það
að segja að ínilljónarinn Tsutsumu
hefur hálfpartinn gefið loforð um
að standast straum af kostnaði við
framkvæmdir, sem eru mjög svip-
aðar að vöxtum og þar sem Banda-
ríkjamenn héldu OL ’60 f Squaw
Valley. Verða leikarnir þá haldnir
í Naeba-fjalli 15 mílur frá Tokyo.
Þarna eru nú óbyggðir einar, en á
stuttum tfma verður fjallinu breytt
í sælustað fyrir ferðamenn.
*