Vísir - 09.05.1962, Blaðsíða 8

Vísir - 09.05.1962, Blaðsíða 8
8 Miðvikudagur 9. maí 1962. Útgefandi Blaðaútgáfan VISIR Ritstjórar: Hersteinn Pálsson Gunnar G. Schram. Aðstoðarritstjóri Axel Thorsteinsson. Fréttastjóri Þorsteinn Ó. Thorarensen Ritstjórnarskrifstofur Laugavegi 178. Augiýsingar og afgreiðsla Ingólfsstræti 3. Áskriftargjald er 45 krónur á mánuði. 1 lausasölu 3 kr. eint. — Sími 11660 (5 linur). Prentsmiðja VIsis. — Edda h.f. Glæsilegur kosningafundur Fyrsti almenni kjósendafundurinn, sem Sjálfstæð- isflokkurinn efnir til hér í borg, var haldinn í fyrra- kvöld, og það dylst engum, sem þann fund sat, að flokkurinn er einhuga í baráttunni og getur hrundið öllum atlögum andstæðinganna, ef enginn sefur á verðinum. Hættan mesta er vitanlega fólgin í því, að menn segi við sjálfa sig, að ekki muni um þeirra at- kvæði, sigur flokksins sé öruggur samt, og menn gæti því setið heima, án þess að skaði verði. Fundarsókn í fyrrakvöld sýndi, að menn gera sér einmitt grein fyrir því, að þegar fjandmaðurinn sækir fastar á og beitir fleiri brögðum, verður að snúast gegn honum af aukinni einingu og einbeitni. Enginn vinnur sigur án þess að reyna nokkuð á sig, og því meira sem flokksmenn leggja sig fram, þeim mun glæsilegri getur sigurinn orðið. Og það er nauðsyn- legt að sýna andstæðingum Sjálfstæðisflokksins, sem jafnframt eru andstæðingar Reykjavíkur, að þeir sækja ekki gull í greipar hins samstillta meirihluta, sem stjórnað hefir bænum um undanfarna áratugi. Enginn þeirra flokka, sem fram býður við bæjar- stjórnarkosningamar hér að þessu sinni, hefir eins miklu mannvali á að skipa og Sjálfstæðisflokkurinn. Á sumum listunum er tætingslið úr ýmsum áttum, menn, sem skjótast milli flokka af litlu tilefni, eins og umrenningar röltu milli bæja í umkomuleysi sínu endur fyrir löngu. Af slíkum umrenningum stjóm- málanna getur enginn vænzt neins góðs, og sízt borg eins og Reykjavík, sem hefir verið stjómað af festu um langt árabil og nýtur nú forustu ungs og glæsilegs dugnaðarmanns, sem á væntanlega eftir að marka spor í sögu bæjarins á komandi tímum. Hatrömmustu andstæðingar Sjálfstæðisflokksins hafa ekki getað annað en viðurkennt, að Reykjavík sé orðin að nýtízkuborg undir stjóm hans. Það er líka alveg rétt. En menn geta líka reynt að gera sér í hug- arlund, hvernig hér væri ástatt, ef tætingsliðið hefði komizt í meirihlutaaðstöðu í bænum. Reykjavík er það, sem hún er, af því að henni hefir stjómað sam- stilltur meirihluti. Hann verður að fá að stjórna áfram. Það er skilyrðið fyrir áframhaldandi framfömm. Eins og eftir loftárásir Bæjarfulltrúi Framsóknar, sem nú er að kveðja, hefir sagt, að Reykjavík sé svo illa komin, að hún sé eins og borgir meginlandsins, sem urðu fyrir loftár- ásum á stríðsárunum. Efsti maður á Framsóknarlist- anum talar hins vegar um nýtízku höfuðborg. Hér stangast því nokkuð á, en hitt mega menn vita, að ef tætingsliðið hefði ráðið undanfarið, t. d. með Fram- sókn í broddi fylkingar, þá væri hér útlits eins og eftir loftárásir, jafnvel atómsprengjur. VISIR J. F. K. skrifar undir frumvarp. Fyrir framan hann sést grindin með pennunum. 20 EINA Ekki er talið ólíklegt að Kennedy forseti reynist verða sá forseti sem flesta penna gef- ur sem minjagripi. Til dæmis má taka er hann skrifaði undir frumvarp um stofnun sérstakrar afvopnunarstofnunar. .ithöfnin fór fram í New York og tókst Kennedy að nota tuttugu og tvo penna til að skrifa eftirfarandi orð: „Approved, 12:45 p.m., New York City — New York, John Fitzgerald Kennedy, (Carlyle Hotel)“. Til þess að þetta væri mögulegt gat hann aðeins skrif- að nokkra stafi með hverjum penna. Að undanskildum komm um og punktum eru I setning- unni 66 stafir, sem leyfir hon- um nákvæmlega þrjá stafi á hvern penna. Hver þessara penna er svo gefinn einhverjum viðstöddum. Þeir eru venjulega þingmenn sem hjálpað hafa til að koma frumvarpi í gegn um þingið. Auk þess eru þarna ýmsir sem málið stendur nærri. í þessu til- felli t. d. William C. Foster, sem verður yfirmaður hinnar nýju stofnunar. ★ Kennedy hefur þegar tekið þátt I allmörgum slíkuiji athöfn- um og hafði að vori 1961 gefið um 200 penna. Það þýðir, að ef hann heldur sama hraða, mun hafa gefa um þúsund penna áð- ur en kjörtímabili hans lýkur árið 1965. Nákvæmar tölur eru ekki til yfir gjafir þessar, en yfirmaður bókhaldsskrifstifu Hvíta húss- ins segir að Harry S. Truman eigi metið. Hann notaði 26 penna til að skrifa undir lögin um lán til Breta, árið 1946, og það án þess að hafa nokkurt millinafn til að teygja úr skrift- unum. Ekki e'r heldur vitað hver hefur fengið flesta penna að gjöf. Sumir þingmenn, sem lengi hafa verið á þingi, eiga orðið marga. Láta þeir gjarnan ramma þá inn og hengja upp á vegg, með dagsetningu og til- efni skráð við hliðina ★ Fyrsti forseti sem gerði þetta að meiri háttar athöfnum var Franklin Roosevelt. Hann hafði mjög gott lag á því að gera ein- földustu hluti gagnlega frá póli- tísku sjónarmiði. Flestir stjórn- málamenn eru til í að skríða á hnjánum til að fá tækifæri til að vera myndaðir með forsetan- um. Þess vegna er það sem þeim er raðað upp fyrir aftan forsetann, brosandi, meðan hann skrifar nokkra stafi með einum penna og tekur síðan annan. Allt er þetta ljósmyndað vel og vandlega. Nú er jafnvel farið að sjónvarpa þessu. Stærsta vandamálið er að finna nægilega mörg orð til að skrifa, til að hægt sé að nota yfir tuttugu penna. Þegar Kennedy skrifaði undir frum- varpið um afvopnunarstofnun- ina stóð hann sig svo vel að hann var búinn að nota alla pennana áður en kom að því að skrifa dagsetninguna. Hún var því stimpluð á seinna. ★ Ei^enhower forseti hafði mjög góða aðstöðu til þessara hluta. Hann skrifaði alltaf 1 at- kvæðum, með bili á milli þeirra og átti því ha»gt með að skipta um penna í miðju orði, án þess að sæist á rithöndinni. Aldrei fékkst hann þó til að skrifa seinna nafn sitt, David. Hann skrifaði alltaf „Dwight D.“. Kennedy skrifar nafn sitt yfir- leitt John F. Kennedy. En þar sem hægt er að nota þrjá til fjóra penna við að skrifa Fitz- gerald, notar hann það þegar þörf krefur. Einu sinni kom það fyrir Kennedy að hann var búinn að skrifa illt og einn penni var eftir, og það sem verra var, einn þingmaður var eftir. Hann bjargaði þá málinu með því að setja stóra skrautlega lykkju undir nafn sitt Fyrsta þekkta dæmið um að pennar væru gefnir sem minja- gripir, má rekja til Tyler for- seta. Kona hans skrifar vinkonu sinni að hún hafi 1 bandi um hálsinn, penna sem forsetinn notaði til að undirskrifa lögin um innlimun Texas f Bandarík- in. Fá önnur dæmi eru kunn um slíkar athafnir. Til dæmis er það vitað að Abraham Lincoln gaf enga fjöðurstafi við það merki- lega tækifæri þegar hann undirskrifaði lögin um afnám þrælahaldsins. ★ Þegar kom fram á daga Tru- mans var orðið svo mikið um þessar athafnir, að tekið var að panta pennana 1 hundraða- tali. Var þá tekið að nota skrif- borðspenna, sem keyptir voru á dollara stykkið. Þá var einn- ig tekið að gylla á þá áritunina „Forsetinn, Hvíta húsinu". Nú er þetta orðinn svo fastur liður f störfum forsetans, að smíðuð hefur verið sérstök grind, sem tekur milli 30 og 40 penna, sem hægt er að stilla upp fyrir framan forsetann, þegar skrifa þarf undir. Forsetinn dýfir hverjum penna í opna blekbyttu og skrifar nokkra stafi. Síðan réttir hann pennann í útrétta hönd, og heldur á- fram. Mönnum kann að þykja þetta furðulegar aðfarir, en þetta gegnir sínum tilgangi. Þetta er fyrirhafnarlftil aðferð til að koma sér vel við menn sem mik- il áhrif hafa. Þrátt fyrir sín miklu völd hefur forsetinn allta' þörf fyrir það.

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.