Vísir - 09.05.1962, Page 9

Vísir - 09.05.1962, Page 9
■ ■ Miðvikudagur 9. maí 1962. VISIR Upphat kornaldar á íslandi — ef hætt verður að styrkja erlendan korninnflutning Það hefur verið að koma fjör- kippur f kcmrækt á íslandi að undanförnu. í nærri fjóra ára- tugi hefi.r Klemenz á Sámsstöð- um getað sýnt fram á, að korn- rækt er árviss og arðberandi á íslandi, — en ekkert annað gerð ist þar til nú fyrir þremur fjór- um árum, að bændur austur á Héraði fóru af stað meo mikla komrækt og hefur þetta siðan breiðzt út til Rangæinga, Hom- firðinga og jafnvel Þingeyinga. Og fleiri bændur í ýmsum hér- uðum sýna nú vaxandi áhuga fyrir komræktinni. Fréttamaður Vísis kom fyrir nokkru að máli við dr. Björn Sigurbjömsson og bað hann um að segja sér hvað væri á seyði í þessum efnum, en til Bjöms hafa bændur víða um land snúið sér til ráðuneytis um komrækt- ina. — Já, ég hef fengið margar fyrirspumir um komrækt frá bændum, fór norður í land sl. haust og hélt þar tvö erindi um komrækt og hef í vetur skrifað um kornrækt og flutt útvarps- erindi um hana. Ég hef reynt eftir beztu getu að vera þeim mönnum hjálplegur, sem hyggj- ast fara af stað með kornrækt, leiðbeina þeim t.d. um val á komafbrigðum, um áburðar- magn o.fl., en ég vil þó sérstak- lega taka fram, að ég er enginn ráðunautur, — það er enginn komræktarráðunautur starfandi hér á landi, kornrækt er svo Iít- ill ■■ hluti landbúnaðarins, en möguleikarnir til aukningar þó óvlða meiri. Aðalstarf mitt hjá landbúnaðardeild Atvinnudeild- ar Háskólans var að gera gras- ræktartilraunir, en síðan var því bætt á mig að framkvæma einn- ig kornræktartilraunir, sérstak- lega að þvl er varðar kynbætur. En með vaxandi áhuga hafa æ fleiri bændur leitað til mln um ráðleggingar varðandi komrækt, þó slíkt sé sem sagt ekki bein- línis I mlnum verkahring. Grundvöllurinn — Hvað veldur þessum fjör- kipp, sem nú er allt I einu kom- in:i I kornræktina? — Fyrst verðum við að virða þann grundvöll, sem Klemenz á Sámsstöðum hefur lagt. Hann hefur unnið hið mikla brautryðj andastarf, sannað- það með langri reynslu, að kornrækt er framkvæmanleg og árviss hér á landi. Síðan gerðist það fyrir nokkr- um árum, að stórbóndi á Austur- landi, Sveinn Jónsson á Egils- stöðum fékk áhuga fyrir korn- rækt og hóf akuryrkju I allstór- um stíl. Það kveikti I fleiri bænd um á Héraði og þeir hófu einnig allmikla kornrækt I samvinnu með Sveini. Og svo er það loks hinn fjár- hagslegi grundvöllur. Hann skap aðist við það, að réttu gengi var komið á, en við gengislækkan- irnar var kornverð nokkru hag- m stæðara. Þessi grundvöllur stend ur þó enn I járnum, einfaldlega vegna þess, að innflutt korn er allt selt á undirverði. Erlent korn er undanþegið öll- um tollum, sem leggjast á aðra vöru, það er flutt með lægri flutningsgjöldum en aðrar vörur. og loks er það beinlfnis greitt niður um 16%. Ég býst við, að það sé eins- dæmi, að innflutningur á vöru sé studdur þannig á kostnað inn- lendrar framleiðslu Að vísu er það rétt, að korn- ræktin er enn ekki orðin mikil, en hitt er líka augljóst, að ef niðurgreiðslan á innflutningnum væri afnumin, og eðlilegir toll- ar greiddir, þannig að kornið seldist á réttu verði, þá myndi það þegar I stað hafa þau áhrif, að innlend kornrækt myndi hektara akurlendis, sem er eðli- leg stærð, þar sem margir bændur vinna saman með einni vélaeiningu. Framleiðslukostn- aður við þá ræktun er nú um V2 milljón króna. En með núver- andi verðlagi myndu 15 tunnur á hektara gefa af sér um 525 þús. krónur á þessa hundrað hektara. Þetta stendur sem sagt alveg I járnum, já munar svo litlu að ég er hræddur um, að ef enn verður haldið áfram að greiða innflutta kornið niður um 16%, þá geti það bráðlega valdið aft- urhug og áhugaleysi í kornrækt- inni. Það væri mjög illa farið, því að það er staðreynd, að á- huginn er vaknaður, og ef inn- flutningsstyrkurinn væri afnum- inn, er ég sannfærður um að við stöndum á þröskuldi korn- aldar á Islandi. 30% aukning ræktarlands. — Hvað er korn nú ræktað á stóru svæði hér innanlands? — Eins og ég sagði áðan er kornræktin enn sára lítill hluti af landbúnaðinum. í ár verður líklega sáð I 7 — 800 hektara, — en ræktað land er nú alls um 70 þúsund hektara. Akurlendið tekur þannig yfir aðeins um 1% ræktarlandinu. En ef allur fóðurbætir væri ræktaður hérlendis þá myndi þurfa til þess 12 —15 þús. hekt- ara og enn þarf að bæta nokkru við vegna sáðskiptaræktunar, svo að við ræktarlandið þyrfti þannig að bætast 20 — 30 þús. hektarar, það er um 30% aukn- ing. — Yrði það ekki of mikil vinna fyrir bændur að bæta þessu við sig? — Nei, þetta er tímabundin leitt ekki að nota gamaldags tæki þótt þau geti stundum átt við. Menn eiga að' fá sér ný- tízku vélar. Aðalvélin er skurð- þreskitæki, sem slær kornið og skilar þvi þresktu I poka eða geyma. Einnig þarf þurrkara. Fleiri vélar þarf svo sem sáð- vél. Verð þessara tækja er eitt- hvað yfir 300 þús. krónur. Enn- fremur þyrftu menn ef vel á að vera að þyggja hentugar korn- skemmur, kaupa flokkunarvélar og ýmis akuryrkjuverkfæri og myndi stofnkostnaður með þvl komast yfir hálfa milljón króna. En þess eru dæmi að kaupfélög sjái um að þurrka kornið og vel gæti komið til greina að rækt- unarsambönd keyptu dýrustu vélarnar. Hagkvæmtast er að hver minnsta, nýtlzku vélaein- ing vinni um 100 hektara akurs. Helztu ræktunarsvæðin. Næst rakti Björn Sigurbjörns- son fyrir mér, að I fyrra hefði verið stofnað ríkisfyrirtæki, Fóður og fræ, sem hefði staðið fyrir allmikiili kornrækt 1 Gunnarsholti. Félagi þessu er ætlað að reyna nýjar aðferðir við fóðurframleiðslu bæði á korni og heykögglum svo og að framleiða gras og kornfræ. 1 fyrra ’ar sáð I 100 hektara og nú I vor ,er sáð þar í 165 hektara. Austur á Héraði er nú sáð I yfir 100 hektara og þing- eysku bændurnir sem nú eru að fara af stað munu nú sá 1 60 hektara (voru búnir að sá í 40 hektara fyrir 1. maí). Austur I Hornafirði var I fyrra sáð f 20 hektara og verður nú um 60 hektarar. Undir Eyjafjöllum hafa 5 bændur byrjað kornrækt á Skógasandi á um 20 hektur- um, Ilafrafell h.f. sáir I 70 hekt- Dr. Björn Sigurbjömsson með tvíraða byggið herta, sem mest er ræktað hér á landi. Samtal við dr. Björn Sigurbjörnsson spretta upp um allt land, full- komlega samkeppnisfær við inn- flutninginn og þar með yrði framkvæmd á skömmum tíma stórfelld framleiðsluaukning meðal bænda og fyrir þjóðina í heild, byggð á heilbrigðum fjár- hagsgrundvelli. Jafnframt yrði létt af kostnaði við hinar óeðli- legu niðurgreiðslur, sem leggst nú á aðra þætti atvinnulífsins. Sem stendur er árlegur innflutn ingur á fóðurvörum um 20 þús. tonn. Langmestan hluta þessa magns, allt fóðurkornið, getum við auðveldlega ræktað innan- lands. 15 tonn á hektara — Geturðu skýrt okkur frá því I stórum dráttum, hvernig fjárhagsgrundvöllur kornræktar innar er núna? — Það má miða við að lf. turnur af byggi eða höfrum fáist að meðaltali á hektara samkvæmt reynslu Klemenz á Sámsstöðum en hún verður oft yfir 20 tunnur og jafnvel upp f 30 tunnur á hektara. Nú skulum við miða við 100 vinna og vélvæðing I sveitunum er orðin svo mikil, að þeir geta auðveldlega bætt þessu við sig. Vélvæðing við kornræktina er einnig mikil og þar sem vel er að búið má segja að manns- höndin komi hvergi nærri nema við að stjórna vélunum. I lang- flestum tilfellum yrði hér um algera nýrækt að ræða, sandar og óræktaðir móar teknir undir akurinn og þannig kæmi þetta sem viðbót við núverandi rækt- arland. Með kornræktinni skap- ast möguleikar á vexti I öðrum búgreinum, ræktun 1 sáðskipta- Iöndum svo og I hæsnarækt og svínarækt víða um land. Allir vita og að meðal bústærðin þarf að vaxa og ágætt tækifæri til að auka hana er að taka upp kornræktun. Stórbændur geta sjálfir keypt þau kornyrkju- tæki, sem til þarf, en nauðsyn- legt er fyrir smábændur að standa saman um kaup á þeim. Stofnkostnaður. — Hvað er stofnkostnaður við akuryrkjutækin mikill? — Ég ráðlegg mönnum yfir- ara á Geitaskarði, Grasmjöls- verksmiðjan í um 140 hektara á Hvolsvelli. Auk þess munu ýmsir aðrir stunda kornrækt I sumar I smærri stíl. — Útvegið þið á Atvinnu- deildinni þessum mönnum sáð- korn? — Nei, við aðeins leiðbeinum þeim sem þess óska um það, hvaða afbrigði séu bezt og hvaða áburðarmagn hentugast. Það er ekki heppilegt að bænd- ur reyni sjálfir af framleiða sáð- korn, til þess vantar þá tæki og aðstöðu. En I Gunnarsholti er- um við að byrja stofnrækt á einu norsku afbrigði og mein- ingin er að þar verði framleitt sáðkorn I framtíðinni. Lang- mest sáðkorn er innflutt, en því miður er innflutningurinn ekki I nógu góðu lagi. Kornið kemur oft á síðustu stundu eða of seint og stundum ekki það af- brigði sem pantað var. Það yrði þó að komast I Iag strax og kornræktin ykist. Framh. á 10. síðu.

x

Vísir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.