Vísir - 18.05.1962, Page 3
Föstudagur 18. maí 1962.
VISIR
3
f
Cíðustu árin hefir Reykjavík
^ tekið miklum stakkaskipt-
um. Borgin hefir verið í mjög
örri uppbyggingu að undan-
fömu, svo eðlilega hafa úthverf
in borið þess svip. En ötullega
hefir verið að því unnið að
fegra borgina, opna nýja skrúð
garða og almenningssvæði og
þess hefir verið kostur. Öli
kunnum við að meta starf garð
yrkjumanna borgarinnar. Þeir
hafa sett annan og fríðari svip
á hin opnu svæði og er fram
líða stundir mun Reykjavík
ekki standa að baki öðrum borg
um á þessu sviði.
TC’f við lítum til baka þrjú
fjögur ár þá minnumst við
þess að Tjarnargarðurinn hefur
verið endurskipulagður og tek-
ið miklum stakkaskiptum. Trjá
garðurinn £ Laugardal hefir ver
ið opnaður ahnenningi og þar
hafin ræktun jurtasafngarðs.
Þvottalaugasvæðið hefir verið
girt af og þar komið fyrir
„Þvottakonu“ Ásmundar Sveins
sonar. Laugarnar gömlu hafa
verið hlaðnar upp og þar geta
unglingar borgarinnar séð
hvemig þvottahúsið hennar
ömmu og langömmu leit út. Við
Tjömina hafa bakkarnir verið
hlaðnir upp meðfram Tjamar-
götunni og þeir klæddir gróðri.
Og nýr garður, 4,500 fermetrar
að stærð, hefir verið tekinn f
notkun f Bústaðahverfi og nefn
ist hann „Garðaflöt“.
Tjetta eru aðeins nokkur dæmi
af mörgum um hið mark-
vissa starf við fegrun Reykja-
víkur. Eftir því sem görðum
og útivistarsvæðum fjölgar
verður borgin iíka heilnæmari
og unnendur jurta og gróðurs
geta nú gengið á hnotskóg inn-
an endimarka borgarinnar
sjálfrar. Á næstu ámm er nauð
Mikið átak hefur verið unnið á sviði byggingarmála í Reykjavík. Háar kröfur um gæði
bygginga og fegrandi skipulag hafa ætíð verið gerðar. Þar leggjast allir á eitt, borgaramir
og húsameistaramir.
í gær birtum við mynd af æskunni að leik í Hljómskálagarð-
inum. Hér er önnur úr þeim vaxandi garði, sem sýnir bömin
að leika sér í garðinum. Öllum, sem þykir vænt um borg-
ina, þykir hún gerð fyrir æskuna, og því ekki gleymt, þegar
skrúðgarðar borgarinnar em skipulagðir af færustu mönnum.
í Reykjavík hefur mikið verið gert til að prýða borgina með fögrum grasreitum og trjá- og blómagróðri. Þessi mynd var
tekin í einum af nýrri gróðurreitum borgarinnar við Snorrabraut.
Fegurrí horg
synlegt að halda því áfram að
byggja garða og rækta blóm á
opnum svæðum.
Listaverkum hefir þegar ver
ið komið fyrir á ýmsum stöð-
um í borginr.i og munu borgar-
amir kunna vel að meta það,
þótt ekki séu allir á einu máli
um listfengi þeirra, eins og
gengur. En skoðanaágreiningur
er ekki nema heilbrigður og
þvf mun stefnt að því að bæta
við fleiri Iistaverkum á al-
mannafæri á næstu árum.