Vísir - 18.05.1962, Blaðsíða 10

Vísir - 18.05.1962, Blaðsíða 10
IU VlSIR Föstudagur 18. maí 1^857 Nú er gangurinn orðinn full- ur af nemendum, úr andlitum mátti sjá hvernig gengið hefði, sumir vorú skælbrosandi og á- nægðir aðrir voru súrir á svip og mæðulegir. Það fyrsta sem allir gerðu þegar fram kom var að ná í dönskubókina og að- gæta svörin. Ljóshærð stúlka tyllti sér í gluggakistuna og bölvaði einhverjum undantekn- ingum í sand og ösku, einnig mátti heyra upphrópanir svo sem: Ji, hvað ég get verið þunn. Fari það í sjóðandi helv... Ó guð hvað þetta er allt hræði legt o.s.frv. — p.sv. — Alveg ljómandi, segir Helga og brosir ánægð, ekkert of vel bætir Katrín við. — Eruð þið ekkert hræddar um að falla? — Blessaður vertu alveg skít hræddar. — Hafið þið lesið mikið und anfarið? — Já, þó nokkuð mikið, en þetta er svo vitlaust skipulagt, við fáum tuttugu og fimm daga upplestrarfrí, og.svo skella próf in öll yfir í einu, finnst okkur að það mætti láta prófin byrja fyrr og hafa fjóra daga til upp lestrar fyrir hvert próf. : ' ::: ý-;: Flestir grúfðu sig niður í borðin og skrifuðu í gríð og eirg. (Ljósm. Bragi Guðmundsson). Landspróf er hafið Nú er um að gera að vanda sig. Landsprófið er hafið og þessa dagana sitja um átta hundruð unglingar um land allt með sveittan skallann yfir námsbók unum. Okkur fannst ekki vera hægt að birta æskulýðssíðu að vori til án þess að minnast ekki á prófin, og skruppum því s.l. mánudagsmorgunn niður í Vonarstræti þar sem gagn- fræðaskólinn er til húsa og báð um skólastjórann um leyfi til að fá að kíkja inn og smella af nokkrum myndum, sem hann veitti góðfúslega. Það stóð yfir próf í dönsku og mikil spenna virtist ríkja í stofunni. Kennararnir gengu um gólf og fylgdust með hverri hreyfingu nemendanna, allir voru þeir ,,uppdubbaðir“ og þeir virðulegustu voru með þverslaufu. — Nemendurnir grúfðu sig flestir niður í borð- in og skrifuðu í gríð og erg, en þess á milli góndu þeir upp í loftið, nöguðu blýantana eða stungu puttunum upp í sig og var ótrúlegt hvað sumir komu mörgum fyrir I einu. Þegar líða fór á tímann fór meiri óró að færast yfir og kennararnir voru farnir að ræskja sig og sussa á nemendurna. Margir voru hættir að skrifa og horfðu, ■ út í loftið og settu upp alls kyns vísdómshrukkur og.grett- ur. Brátt fór að líða að því, að þeir fyrstu skiluðu úrlausnar- blöðunum og fóru út. Fyrstar voru tvær stúlkur, Helga Ágústsdóttir og Katrín Fjeldsted og við spurðum þær hvernig þeim hafi gengið. Katrín og Helga hafa lesið mikið fyrir prófið. Tómstundahornið Svindlað í prófi Hvaða strák skyidi ekki Ianga til að eignast fallegan Kanó? Piltamir á myndinni heita: Atli Smári ívarsson, Magnús Helgason og Össur Kristinsson hafa eytt frí- stundum sínum að undan- fömu í að smíða þennan rennilega Kanó, og það á ekki að nema staðar þegar þess- um er lokið, heldur ráðast í smíði á örðum. Kanónamir eru mjög léttir, vega aðeins um 40 kíló, svo það er auð- veldlega hægt að flytja þá milli staða án mikillar fyrir- hafnar. Teikninguna fengu þeir í danskri tómstundabók. Hvernig er bezt að svindia í prófi, er spurning sem marg- ur nemandinn hefur velt fyrir sér í upplestrarleyfinu, og margir hafa eytt stórum hluta þess í það eitt að gera svindl, eins og það er venjulega kallað. Öllum er það Ijóst að það er enginn leikur að svindla f prófi, þar sem augu kennarans fylgj- ast með hverri hreyfingu, og eí upp kemst þá má nemandinn eiga það á hættu að vera vísað út samstundis. Nýlega skrapp ég inn í eihn af gagnfræðaskólum bæjarins, þeirra erinda einna að fá svar við ofan greindri spurningu. Svo heppilega vildi til að próf- ið var langt komið og fyrstu nemendurnir voru farnir að tín- ast út. Fyrst snéri ég mér að dökk- hærðum myndarlegum strák og spurði hann hvort honum hefði tekist að svindla. — Ha, svindla, nei, maður leggur nú ekki út í svoleiðis fyr irtæki, það tekur svo langan tíma að útbúa svindl, en þú ættir að tala við hann Kalla, ef þig vantar uppskriftir, hann stúderar þetta. Ég þurfti ekki að bíða lengi eftir Kalla og strax þegar ég sá hann skýrði ég frá erindinu og bað um uppskriftir. — Blessaður vertu, þetta er nú ekki mikill vandi, það er um að gera að hafa það nógu ein- falt, þá fatta kennararnir það ekki, sjáðu, sagði hann og fór úr jakkanum og stóð á hvítri skyrtu með uppbrettar ermar. Brjóttu upp skyrtuermarnar áð ur en þú ferð í prófið og stingdu inn í uppbrotið hvítum svindlmiðum, farðu úr jakkan- um í prófinu. svo geturðu þótzi þurfa að laga uppbrotið og um leið lesið af miðanum. Framh. á 13. síðu.

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.