Vísir - 28.05.1962, Blaðsíða 2
VISIR
Mánudagur 28. maí 1962.
V///áMmZáM!Z?////£
ta
Akranes- Valur 1:1
í rigningarleik
Fram vann á mun
betra úthaMi
Akurnesinga., sem fyrir rúinum
mánuði voru sagðir vera búnir að
glata tilverunni, krcektu sér í stig
strax í fyrsta leik sínum í úrhellis-
rigningu á heimavelli sínum á
Langancsi við Akranes. Það voru
Valsmenn sem sóttu Akurnesinga
heim og varð jafntefli 1:1.
Ríkharður með.
Fyrri hálfleikurinn var jafn en
síðari hálfleikinn voru Valsmenn í
nokkurri sókn að marki ÍA, eða
þar til síðustu 10 — 15 mínúturnar
að þeim tókst að ná nokkurri
„pressu“ á Valsmarkið.
Það vakti mikla athygli að Rík-
harður Jónsson lék nú aftur með
liði sínu og enda þótt hann hreyfði
sig ekki mikið var hann liðinu ó-
metanlegur stuðningur „móralskt"
auk þess sem hann átti sinn þátt
í góðu spili.
Akurnesingar urðu fyrri til að
skora í fyrri hálfleiknum og var
það beint úr hornspyrnu að Ingvar
Elísson, miðherji Akraness, skall-
aði laglega í mark, 1:0 fyrir ÍA.
Valsmenn svöruðu ekki nema
nokkrum mfnútum síðar með
marki Bergsteins úr vítaspyrnu.
Hafði Valsmaður verið kominn
inn fyrir vörn Akraness, en varn-
armaður beitt hann ólöglegum
brögðum.
10 áhorfendur stóðu
Er leikurinn á Akranesi fór fram
var ausandi rigning og leiðinda-
veður til keppni. Voru t .d. aðeins
10 manns, sem stóð í rigningunni
á áhorfendapöllunum, en margir
voru í bifreiðum utan vallar.
Leikmenn áttu engir nema sæmi-
lega frammistöðu, og ekki umtals-
verðir, en lið Akurnesinga stendur
sig mun betur en vænta mátti,
Hannes Þ. Sigurðsson, Fram,
dæmdi leikinn, og fórst það vel úr
hendi.
KR skoraði eftir
80 mínútna leik
Það tók KR 80 mínútur að skora
hjá frískum, fljótum og ákveðnum
ísfirðingum á laugardaginn. KR
átti heldur meira í leiknum en yfir-
leitt komu ísfirðingar á óvart með
getu sinni í leiknum.
Garðar skoraði.
Það var Garðar Árnason, sem
skoraði fyrra mark KR-Iiðsins, en
það var þrumuskot úr aukaspyrnu
efst í markhornið á 35 mín. síðari
hálfleiks. Síðara markið skoraði
Halldór Kjartansson úr þvögu, sem
myndaðist við mark ísafjarðar er
3 mínútur voru eftir af leik_
Unnu KR-ingar þannig 2:0, sem
má telja sanngjörn úrslit.
Áhorfendur voru margir á Isa-
firði eða um 700 og skilyrði allgóð,
þurrt veður en allsterkur hliðar-
vindur á völlinn. Völlurinn hefur
Nóg af góðum mönnum, en
enginn völlur til uð æfo
eða keppa á fyrir norðan
- senir Reynir Karlsson
Resynir Karlsson, íþrótta-
kénnari, er nýlega farinn norð-
ur til Akureyrar þar sem hann
mun dveljast í sumar með fjöl-
skyldu sína og þjálfa 1. deild-
arlið Akureyrar. Við hittum
Reyni inn á Laugardalsvelli á
Iaugardaginn, en hann kom
hingað með liðinu til keppni
við Fram.
Sagði Reynir okkur m. a. að
aðstæðurnar á Akureyri hefðu
aldrei verið jafn slæmar og ein-
mitt nú í sumar. Hinn glæsilegi
grasvöllur væri gjörsamlega
dauður af kali og líkle^a yrði
ekki hægt að keppa eða æfa á
honum fyrr en um miðjan júlí
mánuð. Á Akureyri er ekki í
annað hús að venda, þar eð
malarvöllur fyrirfinnst ekki
lengur þar í bæ. Hefði hann
orðið að fara með piltana nokk-
uð út fyrir Akureyri í svonefnt
Grafarholt þar sem þeir hafa
æft af miklum áhuga milli
þúfnakollanna á allt of litlum
velli, en með mörkum þó.
Sagði Reynir að lið sitt hefði
aðeins 6 — 8 æfingar að baki og
Reynir Karlsson Framh. í bls. 5
verið lagaður talsvert frá því í
fyrra, stækkað(ií!llög,',énddH}teYtur
og er hinn sæmilegasti af malar-
velli að vera, en nokkuð láus í sér.
ísfirðingar vöktu athygli fyrir
frískleika, spretthörku og gott út-
hald og eru taldir geta staðið sig
í sumar í 1. deildinni, en eflaust
verður baráttan hörð hjá þeim að
halda sér frá botninum.
Fram vann fyrsta sigurinn á 51.
íslandsmótinu í knattspymu, sem
hófst á Laugardalsvelli kl. 4 á
laugardagseftirmiðdaginn. Það
varð þó Iangt frá því að vera
léttur sigur fyrir Fram yfir æfinga-
litlu liði Akureyringa, sem voru
mjög harðir í horn að taka meðan
þeim entist úthald, en 2:0 sigur
þeirra var þó mjög sanngjarn.
Akureyringar voru
hættulegri í byrjun.
Akureyringar sóttu fast að
marki Framara fyrstu mínúturnar
og hraðar sóknir þeirra ógnuðu
hvað .eftir annað og átti Halldór
Lúðvíksson í mestu vandræðum
með Steingrím, sem ásamt Kára
og Páli Jónssyni voru hættulegustu
menn Akureyrarsóknarinnar. Fram
tókst þó að ná tökunum á leiknum
eftir 15 — 20 mínútur. Framarar
áttu góð tilþrif og mark, er Guð-
mundur Óskarsson skoraði á 22.
mínútu var mjög fallegt, en var
dæmt réttilega rangstaða, en vörn
Akureyrar hafði gott lag á að leika
framlínu Fram rangstæða og mörg
tækifærin voru á þann hátt eyði-
lögð fyrir þeim. Eina markið £
fyrri hálfleik skoraði svo Guð-
mundur Óskarsson laglega af
stuttu færi á 33. mínútu.
Fram átti síðari
hálfleikinn.
Síðari hálfleikinn átti Fram að
mestu enda þótt það gæfi aðeins
É dag
Kl. 8.30 fer fram leikur í 2. deild
íslandsmótsins I knattspyrnu og
leika þá á Melavelli Þróttur —
Breiðablik.
eitt mark. Mark þetta kom
snemma í síðari hálfleik, er Guð-
mundur Óskarsson gaf fyrir til
Grétars Sigurðssonar, sem skoraði
örugglega.
Framarar verða
hættulegir í sumar,
Ekki er nokkur minnsti efi á að
Framarar eru nú eitt af þeim lið-
um, sem gerir hvað mesta kröfu
til hins nýja íslandsbikars, enda
er liðið að breytast til mikilla
muna og er að eignast einhverja
hættulegustu og beztu framlínu,
sem sézt hefur lengi. Leikur lið-
anna nú er ekki mikill mælikvarði
vegna hinna óhagstæðu vallarskil-
yrða, sem Laugardalsvöllurinn í
rigningu býður upp á. Hjá Fram
átti beztan leik Geir í markinu, og
má þakka honum að ekki kom
mark, bæði fyrir ágætar staðsetn-
ingar og grip á hálum boltanum.
Framlínan var og ágæt og menn
nokkuð jafnir, en Grétar og Guð-
mundur þó mest afgerandi í mörk-
unum.
Akureyringarnir voru of út-
haldslitlir en eru mjög lofandi. Er
það slæmt að leikirnir nú I íslands-
mótinu skulu vera hálfgerðir æf-
ingaleikir fyrir þá eins og Reykja-
víkurmótið er liðunum hér I
Reykjavík. Steingrímur, Kári og
Páll voru hættulegastir í framlínu
liðsins, en framverðirnir Magnús
Jónatansson og Guðmundur Jóns-
son eru báðir mjög góðir og Sig-
urður Víglundsson, bakvörður,
sterkur og traustur. Öllum er þess-
um mönnum eitt þó sameiginlegt
að hafa ekki nema hálft úthald í
90 mínútna leik. Einari Helgasyni,
aldursforseta liðsins má þakka að.
ekki varð stærra tap, þvf víst
„pressuðu" Framarar nokkuð fast
£ si'ðari hálfleik og þá varði Einar
mjög vel og lék skynsamlega með
Framh. á bls. 5
Frá fyrsta leik deildarkeppninnar sunnanlands sl. laugardag. Fram og Akureyri áttust þá
við. Reykjavíkurliðið sigraði 2:0.