Vísir - 28.05.1962, Blaðsíða 8
8
VISIR
Mánudagur 28. maí 1962.
Qtgefandi Blaðaútgáfan VISIR
Ritstjórar: Hersteinr, Pálsson Gunnar G. Schram.
Aðstoðarritstjóri Axel Thorsteinsson
Fréttastjóri Porsteinn Ó. Thorarensen
Ritstjórnarskrifstofur Laugavegi 178.
Auglýsingar og afgreiðsla ingólfsstræti 3.
Áskriftargjald er 45 krónur á mánuði.
í lausasölu 3 kr. eint. — Simi 11660 (5 linur).
Prentsmiðja Vísis. — Edda h.f.
>■--------------------------------------------------t
Sigur í Reykjavík
Sigur Sjálfstæðisflokksins í borgarstjórnarkosn-
ingunum hér í Reykjavík var meiri en flestir bjugg-
ust við. Kjör hreins meirihluta og eins fulltrúa að
auki sýnir að borgarbúar treysta Sjálfstæðisflokkn-
um bezt allra flokka til þess að halda skynsamlega
á málum borgarinnar næstu fjögur árin. Reykjavík
er enn á ný tryggð einhuga og samhent stjórn borg-
armála. Tryggt er að þeim framfaramálum, sem á döf-
inni eru verður haldið áfram án tafar. Áfram verður
unnið að því að búa sem bezt í haginn fyrir borgar-
ana og stórmálum, eins og hitaveitunni og gatnagerð-
inni hraðað. Nú er öruggt að í Reykjavík verður ekki
stöðnun á næstunni, heldur blómlegt athafnaskeið.
Andstæðingar Sjálfstæðisflokksins bjuggust við
miklu tapi flokksins í þessum kosningum, þótt þeir
létu sem hann væri öruggur um sigur. Þeir hafa orðið
fyrir miklum vonbrigðum. Atkvæðamagn Sjálfstæðis-
flokksins er aðeins um 800 atkvæðum minna nú en
í kosningunum 1958, þegar það var óvenju mikið og
flokkurinn hefir unnið tæp 3.000 atkvæði hér í borg-
inni frá síðustu alþingiskosningum. Slík fjölgun sýnir
ótvírætt að straumurinn liggur til Sjálfstæðisflokksins.
Óskir andstæðinganna um ósigur Sjálfstæðis-
flokksins hafa því ekki reynzt á rökum reistar. Þvert
á móti hafa nær 3000 Reykvíkingar ljáð flokknum
atkvæði sitt frá síðustu kosningum, tryggt ríflegan
meirihluta flokksins og farsæla stjórn borgarmála
næstu árin.
En úrslitin hér í Reykjavík eru ekki aðeins sigur
fyrir Sjálfstæðisflokkinn og stefnu hans í borgarmál-
um. Þau sýna einnig að kjósendur meta réttilega þann
mikla árangur, sem náðst hefir í viðreisn efnahags
þjóðarinnar.
Þangað liggur straumurinn
Nokkrar breytingar urðu á atkvæðamagni flokk-
anna úti á landi. Sums staðar unnu Sjálfstæðismenn
a Annars staðar töpuðu þeir eins og í Hveragerði og
Keflavík. Úrslitin í tveimur bæjarfélögum í nágrenni
Reykjavíkur vekja þó mesta athygli, í Hafnarfirði og
Kópavogi. í Hafnarfirði bætti flokkurinn við sig tæp-
um 200 atkvæðum frá síðustu bæjarstjórnarkosning-
um og er það góður sigur.
í Kópavogi biðu kommúnistar hinn mesta ósigur
og töpuðu meirihlutanum. Er atkvæði voru talin kom
í ljós að Sjálfstæðisflokkurinn hafði mjög aukið fylgi
sitt í þessum uppvaxandi bæ — alls um 278 atkvæði.
Dómur fólksins í þessum tveimur stóru kaupstöð-
um er ótvíræður. Borgararnir hafa fylgzt með hinni
öru þróun sem átt hefir sér stað í Reykjavík og kosn-
ingaúrslitin sýna að þeim er Ijóst í höndum hvaða
flokks forsjá bæjarmála þeirra er bezt komið.
ana
Brezki kvikmyndastjórinn A1
fred Hitchcock, sem hefur get-
ið sér mikillar frægðar, fyrir
hinar óvenjulegu leynilögreglu-
og hryllingsmyndir er nú að
ljúka við nýja kvlkmynd, sem
álitið er að taki öllum fyrri
myndum hans fram og er þá
mikið sagt.
Kvikmynd þessi heitir fugl-
arnir og er einstök f sinni röð
m.a. í þvf að aðalleikararnir eru
mörg hundruð fuglar af öllum
möguiegum tegundum.
Sagan hefst á þvf, að bóndi
finnst dauður úti á túni sínu
og hafa augun verið kroppuð
úr honum. Næst gerist það að
fuglahópur ræðst á skólabörn
sem eru á leiðinni heim úr
skóla sínum. Smámsaman fer
mannfólkið að skilja það, að
fuglarnir hafa lýst yfir styrjöld
við mannkynið. Finnst fuglun-
um nóg af þvf komið að mann-
fólkið ofsæki þá, skjóti og
steiki, nú ætla þeir að snúa hlut
unum við.
☆
Bráðlega koma herskarar
dökkra fugiasveita þjótandi nið
ur úr himnunum og ráðast hvar
vetna a mennina, einkum á
veika og lasburða. Þetta eru
vængjaðar hersveitir hrafna,
fálka, svartbaka, arna og spör-
fugla. Fuglarnir ryðjast meira
að segja niður um reykháfa og
brjóta rúður til að komast inn
í húsin og ráðast að fóiki i
svefni. Allstaðar er fjaðrafok
og vængjasláttur. Hvergi geta
menn falið sig né verið örugg-
ir.
Þessi furðukvikmýnd Hitch-
cocks er byggð á sögu eftir
ensku skáldkonuna Daphne du
Maurier. Hitchcock segir að
þetta hafi verið ein erfiðasta
myndataka sem hann man eft-
ir. Hann fékk sér 700 fugla i
búrum og hefur ásamt starfs-
mönnum sínum varið feikileg-
um tíma í að temja þá, það
hefur verið leikskóli fyrir fugla.
Auk þess hefur ýmsum brögð
um verið beitt til að skapa hin
ægilegu atriði, þar sem fuglar
ráðast á mannfólk, stundum
hefur tveimur eða þremur film
um verið blandað saman og 1
nærmyndum eru einstaka sinn'
um notaðir gerfifuglar og gerfi-
goggar, sem höggva í fólkið.
Atriðið þar sem fuglahópur
ræðst ó skólabörnin er gerður
þannig, að flokkur taminna
fugla hefur verið æfður í að
fljúga rétt hjá börnunum. Síð-
Hitchock með eftirlætishrafninn sinn.
an kemur nærsviðið, þar sem
gervigoggar höggva í börnin.
★
Eitt sterkasta atriðið gerist
I kvöldrökkri þar sem fugla-
flokkur ræðst á unga stúlku
Tippi Hedren. Hún reynir að
berja þá frá sér með vasaljósi
og eru notaðir við þetta atriði
bæði tamdir lifandi fuglar og
brúðufuglar.
Það er í rauninni ekkert und-
arlegt, þó fuglarnir vilji nú
hefna fyrir margra alda ofsókn-
ir manna, segir Hitchcock. Ég
veit ennfremur, segir hann, að
ótrúlega mörgu fólki er illa
við fugla, hefur innibyrgða ó-
beit á þeim. Þegar kvikmyndin
mín verður sýnd býst ég við
að kattavinum muni fjölga.
★
Aðai-dýratemjari Hitchcocks
heitir Ray Berwick. Hann segir
að það sé auðveldast að temja.
krákurnar og hrafnana, þau
hafi mest vit. Hinsvegar er erf-
iðast að temja erni og fálka.
Það.er hægt að kenna þeim að
veiða, eða það kunna þeir raun
ar áður. En vit þeirra virðist
takmarkað þar fyrir utan. Það
er ekki hægt að kenna þeim
nein brögð. Grimmastur allra
fugla er svartbakurinn eða
veiðibjallan. Hann hefur oft
meitt fuglatemjara illa.
Svartbakurinn tekur kennslu,
Berwick hefur t.d. kennt einum
svartbak að setjast á axlir
manns og ganga með vængja-
slætti yfir höfuð hans. Uppá-
haldsfuglinn er þó kráka ein.
Berwick hefur æft hana í að
sækja bíllykla og ýmsa smá-
muni Ianga leið og ennfremur
gat hann gefið krákunni merki
úr 100 m fjarlægð um að hefja
sig til flugs og fljúga beint að
opi ljósmyndavélar.
Magasárlæknui
með frystingu
Bandaríska tímaritið Time
skýrir frá því að ný og vægast
sagt furðuleg aðferð hafi verið
fundin til að lækna magasár og
sár í skeifugöm. Aðferðin er
einfaldlega fólgin í því að
frysta magann. Hefur banda-
ríslcui læknir að nafni Wagen-
steen við háskólann í Minne-
sota fundið þessa aðfcrð upp
og heldur hann og starfslið
hans því fram að uppskurðir
vegna magasárs verði nú að
mestu óþarfir.
Wangensteen hafði verið
skurðlæknir í 35 ár og fram-
kvæmt bundruð magaupp-
skurða, en alltaf verið óánægð-
ur með árangurinn. Sjúkling-
arnir höfðu áfram óþægindi,
þurftu að nota töflur til að
eyða magasýrum og urðu að
borða oft og lítið f einu.
Hann komst inn á sporið
þegar farið var að nota þá að-
ferð fyrir nokkrum árum, að
kæla magann til að stöðva blæð
andi magasár. Kom honum þá
til hugar hvort auðveldasta að-
ferðin til að draga úr starfsemi
sýrukirtlanna í maganum væri
ekki að frysta þá.
Wangensteen hóf nú tilraun-
ir á 150 tilraunahundum við
háskólann og eftir að þeir
kenndu sér einskis mcins eftir
frystinguna hóf hann tilraunir
á sjúklingum með magasár.
Frystingin er þannig fram-
kvæmd, að sjúklingarnir eru
matarlausir í 15 klst. Síðan er
gúmmíblöðru með langri
gúmmíplpu stungið niður í
magann. Blaðran er blásin út
og síðan er spíritus er verkar
sem frystivöki niður í gúmmí-
blöðruna, svo hún kólnar niður
í 20 stiga frost. Þannig er mag-
inn frystur f klukkustund og er
vömbin þá oyðin hörð eins og
grjót.
Eftir það tekur það þó að-
eins 5 mínútur að láta magann
þiðna og geta menn þá gengið
út úr spítalanum og eftir tvær
klukkustundir geta þeir borð-
að góða máltíð.
Þessi aðferð verkar með
tvennum hætti, hún eyðileggur
eða dregur úr starfsemi sýru-
kirtlanna í maganum, en maga-
sár stafa af því að magasýrurn-
ar éta magavegginn og í öðru
lagi deyfa þær magataugarnar,
Framh. á bls. 5