Vísir - 28.05.1962, Blaðsíða 16

Vísir - 28.05.1962, Blaðsíða 16
VISIR Mánudagur 28. raaí 1962. 47,1% Sjálfstæðisflokkurinn fékk 47,1% atkvæða í Reykjavík og kaupstöðunum. Hann bauð fram í öllum kaupstöðunum og hlaut 27390 atkv. og 52 bæjarfulltrúa. í I kosningunum 1958 hafði i hann 28131 atkv. eða 50,5%. Framsókn fékk 9480 atkv. eða 16,3% og 23 fulltrúa. Kommúnistar fengu 9255 at-1 kv. eða 15,9% og 20 ftr. Alþýðuflokkur fékk 7619 at- kv. eða 13,1% og 18 ftr. Blandaðir listar fengu 4426 atkv. eða 7,6% og 15 bæjarfull- trúa. Séð yfir leikfimissalinn, meðan á talningu stóð í gærkvöldi. Talning var langt komin, þegar myndin var tekin. Sjálfstæíismenn héídu meiríhlutanum í Vest mannaeyjum, Sauðárkróki og Ólafsfirði Kommúnistar misstu meirihlutann í Kópavogi Sjálfstæðismenn héldu meirihluta sínum í bæjar- stjórnarkosningum í Vest- mannaeyjum, Sauðárkróki og Ólafsfirði, en misstu meirihlutann, sem þeir unnu í Keflavík í kosning- unum 1958. Kommúnistar töpuðu meirihluta sínum í Kópavogi enda hrundi fylg ið af þeim þar. Áður höfðu þeir 4 bæjarfulltrúa af 7 en fengu nú aðeins 3 fulltrúa af 9. Hinsvegar héldu kommúnistar meirihluta sín- um á Norðfirði. Kosningarbaráttan var mjög hörð einkanlega í þeim kaupstöð- um, þar sem Sjálfstæðismenn höfðu unnið meirihluta i hinum óvenjulega kosningasigri 1958. And stæðingarnir vissu að sá sigur hafði byggzt á því að kjósendur flykktust að Sjálfstæðisflokknum til að mótmæla vinstri stjórninni sem þá var við lýði. Nú voru þær aðstæður ekki leng ur fyrir hendi. Til dæmis um hina hörðu baráttu má nefna að kosn- ingaþátttaka á Sauðárkróki var 94.1%. Ef kosningaúrslitin nú eru borin saman við bæjarstjórnarkosning- arnar 1958 verður útkoman yfir- leitt sú að Framsókn hafi bætt við sig atkvæðum,,m. a. tekið atkvæði frá kommúnistum en Sjálfstæðis- flokkurinn misst atkvæði. En ef samanburður er aftur gerður við úrslit í Aiþingiskosningum sést að Framsókn hefur litlu bætt við sig, jafnvel tapað sumstaðar atkvæð- um. • Á Akureyri höfðu Framsóknar- menn nú 1285 atk. og er þar um mikla aukningu að ræða síðan í bæjarstjórnarkosningum 1958 þeg- ar Framsókn fékk aðeins 980 at- Höfðu veika von um meirihluta Vísir átti í morgun stutt sam- tal við Guðjór* Sigurðsson efsta mann á lista Sjálfstæðis- flokksins á Sauðárkróki, sem hélt meirihlutanum í bæjar- stjórn og fékk 4 af 7 bæjar- fulltrúum. Guðjóni fórust orð á þessa leið: Við Sjálfstæðismenn gerðum okkur aðeins veika von um að fá haldið meirihiutanum núna vegna hinna breyttu aðstæðna. 1 kosningunum 1958 höfðum við unnið meirihluta í bæjar- stjórn Sauðárkróks í fyrsta. skipti. Þá voru aðstæður okkur mjög hagstaéðar, hinir flokk- arnir voru sundraðir og auk þess fölu kosningarnar þá í sér mótmæli g.egn vinstri stjórn- inni. Nú var aðstaðan breytt og höfðu Alþýðuflokksmenn, kommúnistar og hluti af Fram- sóknarflokknum sameinast um I-listann og gerðu sér miklar vonir um að fú 4 kjörna. Ráku þeir sterkar og óhugnanlegan áróður, sem hefur nú orðið þeim að falli. Ég er ákaflega ánægður með úrslitin þó litlu hafi munað og meirihluti bæjarstjórnarinnar færir bæjarbúum þakkir fyrir það traust sem þeir hafa sýnt honum. kvæði. En í Alþingiskosningum 1959 fengu atkvæði og hafa um síðan þá. í Hafnarfirði fengu Framsóknar- menn nú 407 atk. og er þar um mikla aukningu að ræða síðan í bæjarstjórnarkosningum þegar fylgi hafði hrunið af þeim niður í 203 atkv. En í Alþingiskosningum áður fyrr höfðu Framsóknarmenn fengið yfir 500 atkv. I kauptúnunum var einnig hörð barátta Sjálfstæðismenn héldu þar meirihluta sínum á Seltjarnarnesi, Hnífsdal, Blönduósi og unnu meiri- hluta á Flateyri, en töpuðu meiri hluta í Njarðvíkum, Stykkishólmi og Hveragerði. Kópavogur: Þorsteinsson Alþýðuflokkur 271 atkv. 1 fltr. Framsókn 747 — 2 — Sjálfstæðisfl. 801 — 3 — Kommúnistar 928 — 3 — Auðir og óg. 66 2813 greiddu atkvæði af 3145 á kjörskrá eða 89,4%. í kosningum 1958 fékk Alþýðufl. 136 (0), Fram sókn 349 (1), Sjálfstæðisfl. 523 (2), Kommúnistar 1006 (4). Mynd þessi var tekin þegar bjarnarhúnarnir tveir voru fluttir úr flugvélinni, inn í afgreiðslu Flugfélagsins. Grænlenzkir hán- ar í heimsókn Keflavík: Alþýðufl. 458 atkv. 2 fltr. Framsókn 613 - 2 - Sjálfsteeðisfl. 816 — 3 — Kommúnistar 137 — 0 — Auðir og óg. 43 2067 greiddu atkvæði af 2352 á kjörskrá eða 88%. 1 kosningum 1958 fékk Alþfl. 500 (2), Fram- sókn 390 (1), Sjálfstæðisfl. 811 (4), Kommúnistar 83 (0). Hafnarfjörður: Alþýðuflokkur 1160 atkv. 3 fltr. Framsókn 407 — 1 — Sjálfstæðisfl. 1557 — 4 — Kommúnistar 378 — 1 — Auðir og óg., 72 í kosningum 1958 fékk Alþfl. 1320 (4), Framsókn 203 (0), Sjálf- stæðisfl. 1360 (4) og Kommúnist- ar 362 (1). Framh. á bls. 5 S.l. föstudagskvöld lenti Jó- hannes R. Snorrason flugstjóri flugvél sinni Reykjavíkurflug- velli, kom frá Meistaravík á Græn- landi og hafði meðferðis tvo hvíta- bjarnarhúna, sem hann hafði fengið að gjöf þar vestra. Ekki lá sérlega vel á ferðalöng- unum í hinum nýja gististað, þeir reyndu að beita kjafti og klóm, þegar þeir voru bornir í kössum úr flugvélinni og inn í skála flug- félagsins, þar sem þeir hafa dvalizt síðan og eru ekki á að taka gælum þeirra, sem láta vilja vel að þeim. Þeir eru 3ja mánaða gamlir Þeg- ar Jóhannes var að því spurður, hvað hann hyggðist gera við dýr- in, svaraði hann í spaugi að hann ætlaði að hafa þá fyrir kelturakka heima hjá sér. Enginn tók það al- varlega, trúlegra að hann ætli að láta einhvern dýragarð fá þá. En Jóhannes fór erlendis í morgun og ekki hægt að fá frekari fregnir af dýrunum.

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.