Vísir - 04.07.1962, Qupperneq 6
6
Lokað
vegna sumarleyfa frá 9.—30. júlí.
Vinnaheimilið að Reykjarlundi.
Nauðungaruppboð
annað og síðasta, á hluta í húseigninni nr. /é6
við Álfheima, hér í bænum, eign Jóhanns Sig-
urðssonar, fer fram á eigninni sjálfri laugar-
daginn 7. júlí 1962, kl. 2.30 síðdegis.
Borgarfógetinn í Reykjavík.
Kveðjusamkoma
fyrir Björg og Harald Ólafsson, kristniboða, verður í
Fríkirkjunni í kvöld kl. 8.30. Steingrímur Benedikts-
son, skólastjóri, Felix Ólafsson, kristniboði, og Dahl-
Goli, Stórþingmaður, flytja stutt ávörp. Gjöfum til
kristniboðsins veitt móttaka í lok samkomunnar.
SAMBAND ÍSL. KRISTNIBOÐSFÉLAGA.
Iðnaðarhúsnæði
Vantar geymslu og iðnaðarhúsnæði á jarðhæð í Aust-
urbænum 70—200 ferm. Uppl. í síma 24181 frá kl.
8—6 daglega.
Bílavörubúöin FJÖÐRIN
Laugaveg 68.
Bíll fil leigu
Óska eftir að leigja bíl í hálfan mánuð eða
lengur. Lítill fólksbíll eða jeppi koma til
greina. Tilboð sendist Mats Wibe Lund, Vísi.
Orðsending
frá SiSdtirúfvegsBiefgiá
Sj'ldarútvegsnefnd hefir ákveðið að leyfa söltun fyrst
um sinn frá og með fimmtudeginum 5, júli. Skilyrði
fyrir söltun er að síldin sé a. m. k. 20% feit, fullsölt-
uð og ennfremur að síldin sé viðurkennd af umboðs-
mönnum kaupenda sem samningshæf, þegar um út-
hlutaða, sérverkaða síld er að ræða.
Það er að sjálfsögðu að öllu leyti á ábyrgð viðkomandi
síldarsaltenda, ef þeir salta síld, sem ekki fullnægir
framangreindum skilyrðum.
Karl eða kona
Karl eða kona helst vön kjötskurði óskast nú þegar.
Uppl. í síma 11451 milli kl. 5 og 7 e. h. í dag og á
morgun.
KJÖTVER H.F.
!
Saumasfúlkur
Tvær saumastúlkur óskast nú þegar á hraðsauma-
stofu. Uppl. í síma 24080.
*
-- VISIR ---------------- Miðvikudagur 4. júlí 1962.
Skerfur Islendinga til
krisniboðs í Konsó
í eftirfarandi grein, sem Felix Ólafsson kristni-
boði hefur skrifað fyrir Vísi, er sagt frá því að í sumar
séu 10 ár liðin frá því ákveðið var af Sambandi ís-
lenzkra kristniboðsfélaga, að reisa kristniboðsstöð. í
Konso. — Þar eru nú þrenn íslenzk hjón starfandi á
vegum sambandsins og ein hjúkrunarkona, og alls að
börnum meðtöldum 12 manns, þegar með er talin
færeysk stúlka, sem þar starfar.
Það eru ekki mörg ár síðan
menn fóru að gefa kristniboði verii
legan gaum hérlendis. Menn höfðu
yfirleitt harla lítinn skilning á merk
ingu orðsins og enn minni áhuga
á málefninu sjálfu. En þetta vat
svo sem ekkert séreinkenni á and-
blaðsins „Aftenposten" 27. des.
1961. Þar er bent á, að um ,850
norskir kristniboðar séu starfándi
í ýmsum þeirra landa, sem hin op-
inbera hjálparstarfsemi beinist nú
að. Þar launar norskt kristniboð
meira en 5000 innlenda samverka-
Þessi mynd er af þeim hjónunum Haraldi Ölafssyni, Ólafs-
sonar kristniboða, konu hans Björgu, f. Böe, en hún er norsk,
og litlum syni þeirra. Haraldur hefur starfað sem kennari við
æskulýðsskóla f Noregi. Þau hjón hafa ekki starfað f Konso
áður. — Bróðir Haralds, Jóhann, starfar sem læknir á vegum
Sambands íslenzkra kristniboðsfélaga, í Suður-Eþíopiu. Hann
er kvæntur Áslaugu Johnsen frá Vestmannaeyjum.
legu lífi á íslandi. Þannig var þetta
einnig erlendis, t.d. í Skandinavíu,
og hafði þó öflugt kristniboðsstari
verið rekið af dönskum, sænskum
og norskum kristniboðum í meira
en eina öld.
Á síðustu tíu árum hefur al
menningsálitið mjög verið að breyt
ast í þessum efnum, og eru fyrit
því ýmsar ástæður. Á vorum dög.
um er mjög rætt um aðstoð við
svonefndar vanþróaðar þjóðir. Ým
is vestræn ríki veita nú opinbera
styrki til ýmiss konar friðarstarfa.
En þá hafa menn eins og farið at
átta sig á því, að kristniboðið hef-
ur rekið svona hjálparstarfsemi' \
áratugi og jafnvel aldir. Þetta kom
t.d. mjög skýrt fram í umræðum
( norska þinginu á sl. ári og í skrif-
um norskra blaða. Má þar m.a
benda á ritstjórnargiein norska stót
menn, rekin voru á árinu 1961 19
sjúkrahús og 56 sjijkraskýli, 9 holds
veikrahæli, barnaskólar með um
40.000 nemendum, gagnfræðaskólar
með um 3.700 nemendum og kenn-
araskólar með 950 nemendum. Þá
ef ekki minnzt á nema nokkur at-
riði, en þau nægja til þess að sýna,
að það er ekki lítið sem Norðmenn
hafa látið vanþróuum þjóðum f té
með kristniboðinu. Ársáætlun
norskra kristniboðsfélaga er nú
um 20 millj. n. kr., og allt eru það
frjálsar gjafir þeirra, sem áhuga
hafa og skilning á málefninu.
Annað sem aukið hefur almenna
viðurkenningu á gildi kristniboðs-
ins, er þjóðernisvakningin í Afríku.
Fjölmargir þeirra manna, sem nú
stíga fram sem leiðtogar nýrra
þjóða, hafa hlotið uppeldi og mennt
un hjá kristniboðunum. Þeir hrósa
starfi kristniboðsins og gildi þest
fyrir þjóðir Afríku. Nægir þar að
nefna mann eins og Albert John
Luthuli frá Suður-Afríku, en hann
hlaut friðarverðlaun Nobels 1960.
Hann hefur alla tíð verið virkur
þátttakandi í starfi kristinnar
kirkju í Suður-Afríku. Er hann kom
til Ósló til þess að veita verðlaun-
unum viðtöku, gat hann þess m.a.,
að kristniboðið hefði enn sem fyrr
miklu hlutverki að gegna í Afríku.
Þeir sem að kristniboði starfa,
hljóta að gleðjast yfir slíkri viður-
kenningu. En þeir gera sér það
jafnframt ljóst, að þetta er tak-
mörkuð viðurkenning, stundarfyrir-
bæri, sem fljótlega getur gleymzt.
Þetta er viðurkenning á mannúðar-
starfi kristniboðsins og á kristni-
boðinu sem boðbera kristinnar
menningar. En það er ekki nema
að takmörkuðu leyti viðurkenning S
boðskap kristindómsins eða lotning
fyrir þeim Drottni, sem kristniboð-
arnir þjóna. Það kann að hljóma
undarlega fyrir einhverjum, en sá
sem þetta ritar hefur rætt við
menn, sem fyllilega hafa viður-
kennt gildi kristniboðsins og þó
lýst því yfir um leið, að þeir tryðu
ekki á tilveru Guðs.
Jesús sagði eitt sinn: „Þannig lýsi
Ijós yðar mönnunum, til þess að
þeir sjái góðverk yðar og vegsami
föður yðar, sem er í himninum“.
Það er ástæðá þess, að vér gleðj-
umst yfir þeirri viðurkenningu, sem
kristniboðinu áskotnast. Vér gerum
ekki ráð fyrir að það efli sjálft
kristniboðsstarfið. Það verður
ávallt borið uppi af einstaklingum,
sem sjálfir eru höndlaðir af Kristi
og elska málefni hans. Það er einn-
ig höfuðástæða þess, að kristniboð
vort hefur verið og verður ávallt
hlutverk áhugamanna innan kirkj-
unnar, en ekki hinnar opinberu
kirkju sem stofnunar. En starfsemi
kristniboðsins er vitnisburður um
Krist. Um leið og einhver viður-
tkennir gildi kristniboðsins, eykst
ábyrgð hans gagnvart honum, sem
allt kristniboð er þjónusta við.
Skerfur vor Islendinga til kristni-
boðs er ekki mikill, en hann hefur
þó aukizt mjög á síðari árum. Á
þessu sumrir eru tíu ár síðan ákveð
ið var að reisa kristniboðsstöð í
landi Konsóþjóðflokksins í Suður-
Eþíópíu. Menn spyrja, hvort starfið
hafi borið ávöxt. Staðreyndir eru
bezta svarið. Ein hjón hófu starf
í moldarkofa í bæ Amharanna. Skól
inn hafði um 10 stopula nemendur
fyrsta misserið. Sjúkraskýli var
ekki rekið, þar eð engin hjúkrunar-
kona var þá komin út. Samkomu-
gestir voru um 15 og flestir komu
aðeins af forvitni og stóðu stutt
við. í dag eru tvær hjúkrunarkonur
á vorum vegum þarna, enda þótt
önnur þeirra sé kostuð af færeysk-
um kristniboðsvinum. Þá greiðum
vér laun eins læknis, sem hefur
aðsetur í bæ einum 50 km frá
eftir Felix
Ólafsson
Konso. Tvenn íslenzk hjón annast
sjálft kristniboðsstarfið og skóla-
reksturinn í Konso. Stöðin hefur
vaxið og samkomugestir eru mörg
hundruð, jafnvel stundum um 1000.
Innlendur söfnuður hefur myndazt
og hópur innlendra starfsmanna að
stoðar við starfið, þar af eru nokkr-
ir Konso-piltar, sem uppeldi og nám
Framh. á 9. síðu.