Tölvumál - 01.01.1990, Síða 4
Frá
formanni
Halldór Kristjánsson,
formaöurSÍ
Árshátíó fyrirtækja 26.
janúar?!
Það er von okkar sem að þessarri
árshátíð stöndum að fyrirtœki muni
nota tœkifærið og sameina árshátíð
sína árshátíð okkar. Skrifstofa okkar
getur tekið frá borð fyrir hópa og
fyrirtœki sem þess óskal
Gerum þetta að árshátíð allra
þeirra sem starfa að tölvumálum!
Nýtt starfsár
Enn verður bryddað upp á
nýjungum á nýju starfsári og verða
félögunum kynntar þær eftir
hendinni.
Tölvumál janúar 1990
Tæplega160áET-degi
Mjög góð þátttaka var á ráðstefnu
félgasins um einmenningstölvur
sem haldin var í desember. Þótti
ráðstefnan takast vel og virðist þessi
dagur vera búinn að festa sig í sessi
í hugum tölvufólks hér á landi.
Stefnt er að næsta ET-degi í
desember á næsta ári.
Árshátíð SÍ, Félags
tölvunarfræðingaog
KERFÍS26.janúar
Eins og fram kemur í auglýsingu
hér í blaðinu verður haldin
sameiginleg árshátíð þessarra
þriggja félaga föstudaginn 26.
janúar næstkomandi. Er mjög
ánægjulegt að þetta samstarf skuli
hafa komist á og von mín að
áframhald geti orðið á því.
Mjög er vandað til dagskrár en í
undirbúningsnefnd sitja Kjartan
Ólafsson, Sigurjón Pétursson og
Kolbrún Þórhallsdóttir af hálfu SÍ,
Logi Ragnarsson af hálfu FT og
Helga Sigurjónsdóttir frá KERFÍS.
Hefur hópurinn lagt mikla áherslu á
að árshátíðin geti orðið sem
glæsilegust og eftirminnilegust fyrir
þá sem þátt taka án þess þó að
verðið verði of hátt. Það er mat mitt
að allur undirbúningur gefi tilefni til
þess að þessi markmið muni nást.
Upplýsingatæknidagur SÍ
Sama daginn og árshátíð félaganna
verður haldinn verður Arsfundur SI
haldinn. Hér er bryddað upp á
nýjung í tengslum við aðalfund
félagsins sem er í beinu framhaldi af
Ársfundinum. Með því að hafa
Ársfundinn, aðalfundinn og árshátíð
félagsins sama daginn er stefnt að
því að gera þennan dag að
sannkölluðum Upplýsingatæknidegi
SÍ. Þátttakendur fá nýjustu
upplýsingar úr tækniheiminum, af
starfssemi félagsins og af hver
öðrum!
Láttu þig ekki vanta!!!
Heiðursfélagi SÍ
Á árshátíð SÍ verður tilkynnt um
kjör heiðursfélaga
Skýrslutæknifélags íslands. Til að
draga ekki úr spennunni verður nafn
hans ekki tilkynnt fyrr en á
árshátíðinni.
Við val á heiðursfélaga var fyrst og
fremst litið á framlag hans til
þróunar tölvu- og upplýsingatækni
hér á landi. Var leitað til fjölmargra
aðila um tilnefningar og kom
fljótlega í ljós að kastljósið beindist
að einum einstaklingi sem unnið
hefur mikið og gott
brautryðjendastarf á þessu sviði.
Á stjómarfundi 12. janúar
síðastliðinn var síðan einróma
samþykkt að gera þennan
einstakling að heiðursfélaga SÍJEr
það von stjómar að það verði hefð í
tengslum við ársfundinn að heiðra
einstakling fyrir framlag hans til
tölvu- og upplýsingatæknimála hér
á landi.
Nýtt starfsár fer í hönd
Flestir stjómarmenn, þar með talinn
formaður, eru kjömir til setu í stjóm
tvö ár í senn. Nú er fyrra ári mínu
sem formaður lokið og það síðara
fer í hönd. Allt það starf sem fer
fram á vegum félagsins væri ókleift
ef ekki kæmi til óeigingjamt starf
félaganna og vilji þeirra til að leggja
fram sína krafta og þeirra fyrirtækja
sem þeir vinna hjá. Sérstaklega á
þetta við um það fólk sem velst til
stjómarsetu en krafist er mikils
vinnuframlags af því. Öllum þessum
einstaklingum og fyrirtækjum vil ég
þakka samstarfið á liðnu ári og lýsa
þeirri von minni að áframhald verði
á henni á næsta árí.
Guðríðurhættir
Guðríður Jóhannesdóttir hefur hætt í
ritnefnd Tölvumála. Guðríður hefur
um langt skeið lagt mikið af
mörkum til blaðsins og eru henn hér
með þökkuð giftudrjúg störf í þágu
Tölvumála. Það er von mín að við
megum frmavegis sem hingað til
njóta krafta hennar í félaginu.