Tölvumál - 01.01.1990, Blaðsíða 8
Tölvumál janúar 1990
Hins vegar er það œði oft, að leggja
þarf eitthvað slíkt mat á
niðurstöður, að þar verður engri
stœrðfrœðiformúlu við komið og á
því mati byggist hvort leitað er fleiri
lausna eða niðurstaða kynnt. Við
þessi verkefni tel ég töflureikninn
öflugasta verkfærið.
Fyrir u.þ.b. ári síðan var
töflureiknirinn Excel, settur upp á
einkatölvu með Postscript prentara.
Innbyggt í Excel er Chart
teikniforrit, sem er tiltölulega öflugt
en einfalt í notkun og skilar góðum
frágangi á myndum. Reynslan sýnir
ótvírætt, að hinir grafísku
eiginleikar eru mjög mikilvægir og
vega þungt þegar gagnsemi þessa
töflureiknis umfram aðra er metin.
Sá eiginleiki töflureikna að líkja
eftir þeim vinnubrögðum sem menn
eru vanir úr námi og öðru starfí,
gerir það að verkum að tiltölulega
lítillar þjálfunar er þörf áður en
hægt er að ná árangri í notkun
þeirra. Þetta er líklega það sem
gerir töflureiknana svo útbreidda
sem raun ber vitni.
Miklu máli skiptir að þeir veita
mjög góða yfirsýn yfir þau gögn
sem eru til meðferðar, villur eru
auðfundnar og fljótlegt er að laga
reiknilíkön að nýjum hugmyndum.
Við val á töflureikni er mikilvægt
að hafa í huga, að skipanir séu
aðgengilegar. Þá á ég ekki aðeins
við að fljótlegt sé að gefa þær
skipanir sem maður kann, heldur
ekki síður að fljódegt sé að finna
þær sem maður kann ekki. Þá þarf
að vera auðvelt að taka inn gögn frá
öðrum forritum og skila frá sér
gögnum á margvíslegu formi.
Síðast lítur maður á afl
töflureiknisins, hversu margvíslegar
skipanir hægt er að gefa og hve
mörg föll fylgja.
Kjörverkefni töflureikna eru þau þar
sem fyrst þarf að kynna sér
fyrirliggjandi gögn áður en hægt er
að vinna úr þeim. Það er mjög oft
sem maður fær einhver gögn í
hendur og þarf að finna út notagildi
þeirra. Hér má þó ekki vera um of
mikið magn gagna að ræða. Hins
vegar er það æði oft, sérstaklega við
gerð fjárhagsáætlana, að leggja þarf
eitthvað slíkt mat á niðurstöður, að
þar verður engri stærðfræðiformúlu
við komið og á því mati byggist
hvort leitað er fleiri lausna eða
niðurstaða kynnt. Við þessi
verkefni tel ég töflureikninn
öflugasta verkfærið. Þetta er trúlega
sá eiginleiki sem hefur gert
töflureikna svo vinsæla sem raun
ber vitni þannig að nánast er hægt
að tala um byltingu í úrvinnslu og
framsetningu gagna.
í" KERFÍS !
* Munið áríðandi aðalfund félagsins sem hefst klukkan 17.00 föstudaginn
26. janúar 1990. Fundurinn verður haldinn í fundarherberginu Aldan í
| kjallara ráðstefnuálmu á Hótel Loftleiðum. |
Framtíð félagsins getur ráðist á þessum aðalfundi!!
Gemm okkur svo glaðan dag í sameiningu og mætum öll á sameiginlega J
árshátíð KERFIS, Skýrslutæknifélagsins og Félags tölvunarfræðinga.
| Stjóm KERFÍS I
Lk,_________________________________________________________________I
8