Tölvumál - 01.01.1990, Síða 12
Tölvumál janúar 1990
TÖLVU-
VÆÐING
STEYPUSKÁLA
ÍSAL
Stefán Hrafnkelsson
tölvuverkfræöingur,
TölvuMyndumh.f.
Tölvuvæðing steypuskála ísal er
stórt verkefni, sem samanstendur af
mörgum kerfum. Stærðargráðan er
slík að líklegast var fyrirfram að
útlendingar yrðu fyrir valinu við
smíði kerfisins.
Umhverfi
Umhverfið sem kerfið er skrifað í
byggir á verkaskiptingu milli
móðurvélar og einmenningsvéla.
Einmenningsvélamar eru notaðar
sem vinnustöðvar og sjá um
framsetningu, en móðurvélin er
notuð sem gagnastjóri og tryggir að
gögn séu sameiginleg(client -
server).
Einmenningsvélamar eru síðan
tengdar saman með staðbundnu neti
við móðurvélina. Með þessu
umhverfi má nýta bæði kosti
móðurvéla og einmenningsvéla.
Móðurvélin sinnir aðeins
fyrirspumum í gagnagrunninn, en
það er einmitt mælistika á afköst
slíkrar vélar hvað hún getur svarað
mörgum fyrirspurnum á mínútu
(transaction per second).
Vélbúnaður slíks gagnastjóra byggir
oft á hraðvirkum diskum, og miklu
innra minni til að geta haft sem mest
af gögnum til reiðu.
Vinnslugetan er oft takmörkuð, sé
hún jafnframt nýtt til framsetningar
getutr það leitt til þess að fjöldi
fyrirspuma sem vélin annar minnki.
Kostir einmenningsvélanna nýtast
einnig að fullu til grafískrar
framsetningar og þróunar.
Þessi uppsetning leiðir af sér í fyrsta
lagi meiri sveigjanleika, þar sem
gögnin eru aðskilin frá forritum og í
öðru lagi einfaldari aðgang í gögn á
móðurvél (t.d. með stöðluðum
töflureikni eins og Excel eða Lotus
1-2-3). Einnig er mun einfaldara og
ódýrara að auka afköst slíks kerfis,
bæði með því að bæta vinnu-
stöðvum við netið og stækka
gagnastjórann. Stækkun gagnastjóra
ætti hvorki að verða eins tíð né
kostnaðarsöm og reynslan hefur
sýnt að stækkun hefðbundinnar
móðurvélar með beintengda skjái
sé.
í fyrsta lagi er lítil sem engin
forritun framkvæmd á gagnastjóra
þannig að ekki kemur til yfirfærsla á
forritum. í öðru lagi er stór hluti
vinnslunnar fluttur yfir á
vinnustöðvamar þannig að
sambærileg móðurvél ræður við
fleiri færslur og lengri tími ætti því
að líða milli þess að skipta verður
um móðurvél.
12