Tölvumál - 01.01.1990, Page 14
Tölvumál janúar 1990
Öll forritun á sér stað á PC/PS
vélum, enforritun á móðurvél er
engin.
skrifuð í Windows og haldið
aðskildri frá forritun sem hefur með
aðgang í gagnagrunn að gera (Sql-
Oracle forritun). Þriðja lagið,
rökhluti (aðeins háður "C"), er
hvorki háður framsetningu né
gagnagrunni. Með slíkri
lagskiptingu er mun auðveldara að
ráðstafa mannskap í verkið, þar
sem auðvelt er að láta tvo menn
vinna við sama kerfið. Skilin milli
þeirra eru undirforritaköll, og
sérhæfing er möguleg.
Umfang verksins
Eftirfarandi tafla sýnir í grófum
dráttum umfang verksins:
50 Mannmánuðir
14 Kerfi
150 Töflur
70 Skjámyndir í Oracle
50 Skjámyndir í Windows
40 Skýrslur
85 Þúsund forritalínur á PC/PS
0 Forritalínur á Vax
(móðurvél)
Skjámyndir í Oracle eru í raun mun
meira en skjámyndir, því heilu
kerfin byggja á þeim og má segja að
bak við margar þessarra skjámynda
liggi flóknar reglur, sem líkja má
Hefðbundin forritun:
Forritunarumhverfið byggir á styrk
eins þáttar (t.d. dBase, Clipper er
sterkt í gagnagrunnsverkefnum en
takmarkað í framsetningu og
rökhluta).
við forritun. Skjámyndir í Windows
eru búnar til í sérstökum
skjámyndaritli, sem geymir aðeins
útlit skjámynda, en allar reglur eru
forritaðar. Einfaldari skýrslur voru
gerðar í skýrslugerðarforriti frá
Oracle, en þær flóknari þurfti að
forrita sérstaklega. Aðeins eru taldar
skrifaðar forritalínur. Athyglisvert
er að öll forritun á sér stað á PC/PS
vélum, en forritun á móðurvél er
engin.
Lærdómur
Öflug verkefnisstjóm er nauðsynleg
í svo stóru verkefni og reglulegir
fundir verktaka og verkkaupa eru
afar mikilvægir, til að láta
verkkaupa fylgjast með gangi mála,
og þá sérstaklega þegar verið er að
greina, hanna og forrita. Að lokum
er óhætt að segja að dýrmæt
þekking hefur fengist inn í
fyrirtækið með þessu verkefni.
Þekking á ýmsum sviðum, s.s.
gagnagrunnsþekking (Oracle -
SQL), þekking á forritun í
gluggaumhverfi (Windows) og
reynslan sem felst í því að takast á
við svo stórt verkefni nýtist
örugglega í önnur verkefni sem
byggjast á hugtakinu vinnustöð -
gagnastjóri.
Lagskipt forritun:
Forritunarumhverfið er sterkt á
öllum sviðum
14