Tölvumál - 01.01.1990, Page 15
Tölvumál janúar 1990
Tölvusamskipti:
Mótöld,
gagnabankar
og X.400
Einar Haukur Reynis
rafeindavirkjameistari,
Póst- og
símamálastofnun.
Því hefur verið fleygt að þetta sé
seinasti upphringistaðallinn frá
CCITT og að öll frekari þróun á
þessu sviði verði undir merkjum
stafrænu símkerfanna ISDN
Notkun mótalda til tölvusamskipta
um upphringilínur hefur aukist
hröðum skrefum síðastliðin ár og
miklar framfarir orðið á þessu sviði.
Sendihraðinn hefur hækkað jafnt og
þétt og er það fyrst og fremst að
þakka þeirri miklu tækniþróun sem
orðið hefur í örgjörvum, en þeir
þurfa að vera sérstaklega hraðvirkir
svo mögulegt sé að senda á miklum
hraða um símalínur. Núna eru tæpir
þrír áratugir síðan
alþjóðastaðlanefndin CCITT gaf út
fyrstu staðlana yfir þennan búnað en
hraði þeirra tækja var lágur. í áranna
rás hefur stöðlum fjölgað og notkun
tölva aukist, en með tilkomu
einmenningstölvanna varð
sprenging á þessu sviði og núna eru
flesdr kaupendur upphringimótalda
úr röðum notenda þeirra. Þeir
staðlar sem vinsælasdr eru í dag eru
fyrir sendihraðann 1200 og 2400
bitar-á-sekúndu og þeir
framleiðendur nánast óteljandi sem
bjóða slíkan búnað. Ljóst hefur
verið að til að ná meiri hraða úr
símalínu fyrir ósamhæfðan
gagnaflutning, sem
einmenningstölvur nota gjaman,
þyrfti að beita sérstökum aðferðum.
Nokkur tími leið áður en slíkt var
gerlegt, og kostnaður orðinn það
lágur að hægt væri að setja slík tæki
á almennan markað. Lengi hefur
verið vitað að vegna takmarkaðrar
bandbreiddar talsímarása yrði ekki
hægt að komast hraðar en sem
nemur 20.000 bitum-á-sekúndu.
Núna eru að koma á markað fyrslu
fjöldaframleidduupphringimótöldin
sem senda á hærri hraða en áður
hefur þekkst og eru þau samkvæmt
CCITT staðli V.32. í honum er
skilgreind tækni fyrir hraðann 4800
og 9600 bitar-á-sekúndu. Nú þegar
eru margir framleiðendur búnir að
setja slík tæki á markað þar sem
boðið er upp á val milli samhæfðra
og ósamhæfðra samskipta og
jafnvel innifaldir að auki aðrir
algengir staðlar fyrir
upphringimótöld. Nokkur
aðdragandi er að þessum staðli og
tilraunir með frumgerðir hafa staðið
lengi yfir. Þau 9600 bita-á-sekúndu
upphringimótöld sem fengist hafa
hér á landi eru hluti af þessum
dlraunum og ekki samkvæmt V.32
staðli. Hvort stöðluð verði
upphringimótöld fyrir hærri hraða
en þetta er óvíst, en gerðar hafa
verið tilraunir með þannig búnað á
hraðanum 12000 og 14400 bita-á-
sekúndu. Því hefur verið fleygt að
þetta sé seinasti upphringistaðallinn
frá CCITT og að öll frekari þróun á
þessu sviði verði undir merkjum
stafrænu símkerfanna ISDN þar sem
stafrænn frekar en flaumrænn
gagnaflutningur verði hafður að
leiðarljósi.
Nýtt upphringimótald
CCITT V.32
• Hraði:
4800 og 9600 bitar á sekúndu
• Samhæfður eða ósamhæfður gagnaílutningur
• Tvívirk samskipti (full-duplex)
• Aðrir eiginleikar etv. innbyggðir:
Hayes AT og/eða V.25 bis,
MNP og/eða LAPM
• Hraði etv. síðar 12000 eða 14400 bitar á sekúndu
15