Tölvumál - 01.01.1990, Page 21
Tölvumál janúar 1990
Annmarkar
AUTO-MATEPLUS.
Gæði myndrœnnar framsetningar
eru ekki nógu mikil og meðhöndlun
myndmáls eru ekki nógu vel útfœrð
(ennþá). Þá er einnig hið velþekkta
vandamál með íslenska stafi til
trafala í kerfinu, því ekki er
mögulegt að nota þá nema á einu
eða tveimur formum' kerfisins.
Þeir telja það stórt framfaraskref og
vita nú betur hvemig staðið skuli að
hönnun 'kerfis númer tvö'.
Starfsmenn eru almennt ánægðir
með kerfið, en flestir hafa
athugasemdir um bæði stór og smá
atriði sem betur mættu fara og
önnur sem þyrfti að bæta við. Flest
þessara atriða ættu að geta lagast
við frekari þróun kerfisins. Hjá
SKÝRR höfum við átt ágætt
samstarf við framleiðendur AM+ og
vonumst til að þeir taki áfram tillit
til óska okkar um lagfæringar og
endurbætur.
Fæstir starfsmenn geta enn sagt
nokkuð um það hvort verk vinnast
betur nú eða hvort gæðin séu meiri,
slíkt verður frekari reynsla að leiða í
ljós. En við höfum trú á þessum
verkfærum, hvort sem þau heita
AUTO-MATE PLUS eða eitthvað
annað og gerum okkur grein fyir því
að okkur mun reynast ómögulegt að
vera án þeirra í framtíðinni.
Hönnun,frágangurog
annmarkarAUTO-MATE
PLUS.
AUTO-MATE PLUS er nánast bein
vörpun 'pappírsaðferðar' (LSDM) í
tölvuumhverfi og sums staðar má
sjá merki þess að samræmingar er
þörf. Þá má einnig sjá að kerfið
hefur verið útfært í nokkrum hlutum
og ósamræmi milli kerfishluta
skemmir nokkuð heildarsvipinn.
Leiðalýsing mætti vera innbyggð í
kerfið. LSDM-aðferðinni er, eins og
áður hefur verið nefnt, skipt í áfanga
sem síðan skiptast í þætti og
hverjum þætti fylgir verkefnalisti.
Hjálp við að fylgja ferli
verkefnalistanna væri eðlileg í
AM+.
Síðast en ekki síst þyrfti að vera
hægt að skilgreina eigin form á
útskriftum og samantektum
kerfisins og hægt að gera 'heima-
smíðaðar' fyrirspumir í gögn AM+.
i--------—---------------------------------------
j Félag tölvunarfræðinga!
Við minnum á árshátíð félagsins sem haldin verður þann
J 26. janúar klukkan 19.30 í Víkingasal Hótels Loftleiða.
Sjá nánari upplýsingar í miðopnu.
Skemmtinefndin.
I
n
i
i
i
i
i
i
i
i
i
i
j
21