Tölvumál - 01.01.1990, Side 22

Tölvumál - 01.01.1990, Side 22
Tölvumál janúar 1990 Einka- töivuvæðing opinberra stofnana Atii Arason viðskiptafræðingur hjá SKÝRR Þjálfun og kennslu starfsmanna hejur verið verulega ábótavant hjá opinberum stofnunum. í grein þessari verða teknar út nokrar niðurstöður úr erindi sem ég hélt á desemberráðstefnu Skýrslutæknifélags íslands. Erindi sem fjallaði um nokkrar niðurstöður úr könnun sem ég gerði á einmenningstölvuvæðingu opinberrra stofnana. Það var að mörgu leiti kastað til höndunum við undirbúning einmenningstölvuvæðingarinnarhjá opinberum stofnunum. Það kom fram í könnuninni að einungis 40% þeirra hafi látið gera úttekt á rekstrinum til að geta metið þörfina fyrir einmenningstölvur áður en ráðist var í fjárfestingar á þeim. Ekki nóg með það, heldur hafði fjórða hver ríkisstofnun ráðist í einmenningstölvuvæðinguna án þess að hafa sett sér markmið sem ná skyldi með henni. Þetta tel ég vera órækan vitnisburð þess að undirbúningur fyrir tölvuvæðinguna hafi verið ónógur og einmitt vera jarðvegur þar sem auðvelt er að gera kostnaðarsöm mistök. Tölvumar hafa verið notaðar í mjög einhæf verkefni. Þó svo það sé eðli margra ríkisstofnana að framleiða skýrslur þá mætti nota tölvumar meira í önnur verkefni en ritvinnslu. Getur það verið að með einmenningstölvuvæðingunni gafi ríkisstofnanir fyrst og fremst verið að endurnýja ritvélakost sinn? Niðurstöður könnunarinnar voru þessar. Þjálfun og kennslu var um margt ábótavant. Það kom fram í könnuninni að 40% opinberra stofnana höfðu hvorki látið starfsmenn sína fá kennslu né þjálfun áður en þeim var ætlað að fara að vinna við tölvumar. Þetta er að sjálfsögðu skýringin á þeim tilvikum þar sem minna hefur komið út úr einmenningstölvu- væðingunni en til stóð. Þegar spurt var hver hefðu verið helsu vandamál sem upp hefðu komið við einmenningstölvu- væðinguna þá varð útkoman eins og sýnt er efst á næstu síðu. Af þessu er ljóst að þjálfun og kennslu starfsmanna hefur verið verulega ábótavant hjá opinberum stofnunum. Því hefur verið haldið fram um nokkum tíma að þáttur hugbúnaðarins væri stærstur við tölvuvæðingu. En þessu er öðru vísi farið hjá ríkisstofnunum eins og sjá má af eftirfarandi. Þáttur vélbúnaðar er hér lang stærstur eða sem næst 60% á meðan þáttur hugbúnaðar er 27%. Fram kemur að meðaltalskostnaður við einmenningstölvuvæðingu opinberrar stofnunar var 6 milljónir króna. Opinberar stofnanir eru um 100 talsins þannig að um er að ræða 600 milljónir fyrir þær allar. Ef reynt er að finna út hver meðalkostnaður er á bak við hvem starfsmann þá kemur út talan 180.000. FJÖIdl 35 30 25 20 15 10 5 0 Svo virðist sem ríkisstofnanir þurfi að fara í gegnum tvær tölvuvæðingar til að ná árangri. Þetta má ráða af ýmsum niðurstöðum könnunarinnar sem verða ekki tíundaðar hér. Ég skipti stofnununum í tvo flokka, lengra komna í tölvuvæðingunni og styttra komna. Ef svörunum við spumingu um ánægjustig með tölvuvæðinguna í heild er skipt á flokkana þá varð niðurstaðan þessi (ég tel að þeir sem merkja við þolanlega séu að einhverju leiti óánægðir). 22

x

Tölvumál

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tölvumál
https://timarit.is/publication/239

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.