Tölvumál - 01.01.1990, Síða 25

Tölvumál - 01.01.1990, Síða 25
Tölvumál janúar 1990 Daði Jónsson reiknifræðingur, Verk- og kerfisfræðistofunni VERKEFNA- STJÓRNUN VIÐHUGBÚNAÐARGERÐ íslensk hugbúnaðarfyrirtæki og tölvudeildir geta vœnst mun meiri ávinnings afbættri verkefnastjórnun heldur en nýjum hugbúnaðar- verkfærum. Það tekur langan tíma að byggja upp góða verkefnastjórnun. Hér á eftir verður fyrst og fremst fjallað almennt um verkefnastjómun við hugbúnaðargerð án þess að lýst sé beint þeirri aðferðafræði sem að baki býr, enda væri slíkt efni í mun lengri grein. Hugbúnaðargerð er ung atvinnugrein og mörgum hættir til að álykta sem svo, að slík “hátækniatvinnugrein” geti lítinn lærdóm dregið af öðrum og eldri atvinnugreinum. Þetta viðhorf er alrangt og hefur staðið hugbúnaðar- gerðinni fyrir þrifum. Eitt vanræktasta svið hugbúnaðar- gerðarinnar er verkefnastjómun. Þegar fjallað er um leiðir til að skila vandaðri og ódýrari hugbúnaði dettur fæstum annað í hug en “4GL”, “CASE” og önnur hugtök af svipuðum toga. Verkfæri, sem bera þessa merkimiða em allra góðra gjalda verð og hafa í sumum tilfellum aukið afköst þeirra, sem þau nota. Stöðugt er unnið að endurbótum á þeim, og notagildi þeirra á eftir að aukast mikið á næstuárum. Þrátt fyrir það eiga þau enn langt í land með að leysa góða verkefnastjómun af hólmi. Til þess mun reyndar aldrei koma og íslensk hugbúnaðarfyrirtæki og tölvudeildir geta vænst mun meiri ávinnings af bættri verkefnastjómun heldur en nýjum hugbúnaðar- verkfærum. Þeir, sem hafa treyst í blindni á bætta tölvutækni hafa komist að því, að ein sér leiðir hún ekki til annars en þess, að hægt er að gera sífellt umfangsmeiri mistök á sífellt skemmri tíma. Verkefnastjómun á sér langa sögu og í stórum dráttum era menn sammála um hvað felst í góðri verkefnastjómun. Það er því fróðlegt að bera það saman við hvemig tekið er á þessu viðfangsefni í þeim aragrúa bóka, sem til eru um tölvur og hugbúnað. Athugun á u.þ.b. 250 bókum, sem hafa komið út um þetta efni á undanfömum árum leiddi í ljós, að einungis í einni þeirra var fjallað um verkefnastjórnun að nokkm marki. Það er þó athyglisvert, að höfundurinn mælir með sömu aðferðum og tíðkast hafa í öðrum greinum um langt skeið. Aðrar bækur tóku annað hvort mjög yfirborðskennt á þessu efni, eða virtust ekki gera neinn greinarmun á sjálfri verkefnastjómuninni og öðrum þáttum hugbúnaðar- gerðarinnar. Þá vom inn á milli bækur, sem eftir titlinum að dæma fjölluðu almennt um verkefna- stjómun, en náðu í raun einungis yfir lítinn hluta hennar. í sem stystu máli var hugtakið verkefnastjómun því teygt og togað á alla hugsanlega máta. Hvers geta fyrirtæki vænst af góðri verkefnastjómun? í könnun meðal fyrirtækja í Bandaríkjunum, sem höfðu mikla reynslu af verkefna- stjómun, voru yfir 90% sammála um að hún skilaði sér raunverulega í betri stjómun og eftirliti með verkefnum. Mjög athyglisvert er einnig, að 80% fyrirtækjanna nefndu betri samskipti við viðskiptavininn. Næst á eftir þessum atriðum komu síðan skemmri þróunartími, minni kostnaður og aukin gæði og öryggi. Nokkur stærri fyrirtækja og tölvudeilda hér á landi hafa lagt áherslu á að formlega sé staðið að allri vinnu við þróun hugbúnaðar. Ekki hefur verið kannað hver reynsla þeirra af þessum vinnubrögðum er, en þó virðist sem mörg þeirra eigi enn langt í land í þessum efnum. Eitt af því, sem menn verða að gera sér grein fyrir er að það tekur langan tíma að byggja upp góða verkefnastjómun. Það er ekki nægilegt að beita þessum aðferðum á eitt eða tvö verkefni og dæma síðan út frá reynslunni af þeim. Eitt af því vandasamasta í verkefna- stjómuninni er meðferð breytinga á verktímanum. Efbreytingaóskireru tíðar meðan á þróun kerfa stendur gerir það mjög miklar kröfur til stjórnenda verksins. Þeir þurfa að gera sér grein fyrir því, að oft á tíðum leiðir það til þess, að endurskoða þarf allar áætlanir fyrir

x

Tölvumál

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tölvumál
https://timarit.is/publication/239

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.