Vísir - 26.07.1962, Qupperneq 5
Fimmtudagur 26. júlí 1962.
5
V’SIR
Amerískur sinfóníu
í iiaust
Telja má víst, að stjómandi Sin-
fóníuhljómsveitar íslands næsta
tónleikaár verði ameríski hljóm-
sveitarstjórinn William Strickland.
Hann var hér á ferð á dögum og
stjórnaði æfingu hljómsveitarinnar
og hugði gott til að gerast stjórn-
andi hennar næsta vetur. Er nú
beðiö eftir fullnaðarsvari hans,
sem von er á næstu daga.
veiði
fyrir austan
Síldaraflinn í gærkvöld og í nótt
var samtals rúm 44 þúsund mál og
tunnur hjá 48 skipum. Aðalveiði-
svæðið var út af Gerpi, en á mið-
unum fyrir norðan var slæmt veiði
veður fram eftir nóttu. Veður fór
batnandi þar í morgun. Leitarskip
lóðaði á síld á Skagagrunni og
Húnaflóadýpi en hún djúpt og þar
voru aðeins fá skip. Aðeins 3 skip
tilkynntu um samtals 2500 mál og
tunnur til síldarleitarinnar á Siglu-
firði í nótt. Út af Raufarhöfn var
einnig lítil veiði í nótt og tilkynntu
alls ll skip samtals 7650 mál til
síldarleitarinnar þar fyrir kl. 8 í
morgun.
Aðalveiðisvæðið f nótt var 22 —
27 sjómílur SA af Gerpi og í
Reyðarfjarðardýpi. 48 skip til-
kynntu afla til síldarleitarinnar á
Seyðisfirði, samtals rúm 34 þús-
und mál og tunnur.
Hér fer á eftir skipalisti með
veiði sl. sólarhring:
Þorleifur Rögnvaldsson 1000 tn.
Einar Hálfdáns 300 tn. Keilir AK
800 tn. Hannes lóðs 750 tn. Guð-
rún Þorkelsdóttir 750 tn. Fagri-
klettur 1000 tn. Bergvik 700 tn.
Jón Gunnlaugs 900 tn. Gunnólfur
1200 mál. Þorgrímur IS 1100 tn.
Guðmundur Þórðarson 1400 mál.
Mummi 600 tn. Auðunn 800 mál.
Ingiberg Ólafsson 800 mál. Gull-
ver 500 tn. Fróðaklettur 900 mál.
Björgúlfur 1500 mál. Stefán Þór
650 mál. Sigurður AK 960 mál.
Kristbjörg VE 500 tn. Farsæll AK
650 mál. Halldór Jónsson 600 mál.
Heimir SU 700 tn. Álftanes 700
mál. Hrönn II GK 600 mál. Bragi
SU 900 tn. Sigurfari SF 500 mál.
Snæfugl 550 tn. Ásgeir Torfason
500 mál. Rán SU 700 mál. Þor-
björn GK 1000 mál. Reynir VE
1200 tn. Garðar EA 400. Hagbarð-
ur 250 tn Náttfari 350 tn. Svanur
RE 600 tn. Héðinn 950 tn. Hilmir
KE 900 mál. Hrefna EA 600 mál.
Glófaxi 700 mál. Sigurbjörg SU
900 tn. Vilborg 800 tn. Jón Garðar
250 tn. Baldvin Þorvaldsson 500
tn. Gísli lóðs 1050 mál. Björg SU
600 mál. Helga Björg 900 mál.
Grundfirðingur II 800 mál. Guð-
björg GK 700 mál. Guðbjörg IS
550 mál. Bergvík 600 tn. Ásgeir
350 tn. Ófeigur II 200 tn. Stefán
Árnason 600 mál. Kambaröst 600
tn. Seley 1000 mál. Gullfaxi 400
tn. Steingrímur trölli 1300 mál.
Stefán Ben. 800 mál. Bergur EV
650 mál
William Strickland er maður á
bezta aldri, fæddur 1916. Hann
var organleikari áður en hann tók
að fást við hljómsveitarstjóm, tók
við af Leopold Stokowski fyrir
mörgum árum sem organleikari St.
Bartolomew-kirkjunnar í New
York. Hann hefir ferðast víða og
stjórnað hljómsveitum, síðast £
Noregi og kom hér við á heimleið
þaðan.
Unnið hefir verið undanfarið
að undirbúningi verkefna fyrir
Sinfóníuhljómsveit íslands næsta
tónleikaár, en ekki verður endan-
Iega gengið frá tónleikaskrá fyrr
en hljómsveitarstjóri hefir verið
ráðinn og þá í samráði við hann.
Sameiginleg nefnd "þjóðþingsins
bandaríska hefur náð samkomulagi
um fjárlögin og eru niðurstöðutöl-
ur 48 þúsund og 100 milljónir
dollara og fær Kennedy meira fé
en hann bað um. — Þetta reu næst
Bandaríkjanna.
Þetta er annar af þeim stálbátum, sem BP hefur látið smíða fyrir
sig nýlega. Eru þetta gamlir hringnótabátar, sem gerðir hafa
verið upp. Myndin sýnir Ottó, sem smíðaður var hjá Jám h.f.
Hann hefur verið fluttur austur á Seyðisfjörð og afgreiðir þar
skip. Báturinn getur flutt í einu 16 tonn af olíu og 6 tonn af
vatni, ásamt smurolíu, feiti og öðru slíku. Á honum er einn mað-
ur. Hinn bátur BP er á Siglufirði, og var sá smíðaður í Kyndli h.f.
Fuilkominn handrítmaíur
í Landsbókasafninu
Innréttaður hefir verið salur á
fyrstu hæð Landsbókasafnsins,
þar sem Náttúrugripasafnið var
áður til húsa, en í framtíðinni
heimili íslenzku handritanna, unz
ný bygging rís, eins og Alþingi
hefir samþykkt, að verði.
Á næstu vikum verða flutt i
þennan sal handrit Landsbóka-
| safnsins, um 12 þús. talsins, og
j þarna eiga og handritin £ Kaup-
mannahöfn að fá samastað, þegar
þeim verður skilað. Handrit Lands
j bókasafnsinfe taka 400 metra hillu-
rými, en í hinum nýju skápum
handritageymslunnar nýju er rúm
fyrir a ,m. k. 700 metra. Aðstaða
þeirra, er að handritarannsóknum
Heilsubaðsiöð á heims-
mælikvarða i Hveragerði
Axel syndir -
Framh. af bls 1.
fjöldi safnist saman við höfnina
þegar Áxel kemur að landi. Þrír
bátar verða með f förinni v.b.
Dröfn, árabátur sem Pétur Eiríks-
son leiðsögumaður verður í og
auk þess mun einn af bankastjór-
um bæjarins fara á skemmtibát
sínum og fylgjast með sundinu.
Um þessar mundir dvelst hér á
Iandi forstjóri heilsubaðstaðarins
Badenweiler í Vestgr-Þýzkalandi,
Baumgartner að nafni að nafni, og
er hann hingað kominn i boði EIli-
heimilisins Grundar, til þess að
kynna sér skilyrðin fyrir heilsubað-
stað í Hveragerði.
Á fundi með fréttamönnum kom
fram, að Gísli Sigurbjörnsson hef-
ur Iátið gera teikningu af 100
manna heilsubaðhóteli í Hveragerði
og mundi það kosta 40 milljónir
miðað við verðgildi peninga nú.
Hann hefur mikinn áhuga á, að
Hveragerði verði heilsubaðstaður
með öllum beztu nútímaskilyrðum,
en slíkt kostar mikið átak margra,
mikinn undirbúning og mikið fé,
— og vitanlega þarf tíma til slíkra
framkvæmda og enn meirf tima til
að vinna slíkum stað álits og þar
með tryggja örygga framtíð hans.
Heilsubaðstaðir Evrópu eiga sér
langa sögu, Badenweiler 2000 ára,
svo að dæmi sé nefnt. Nú á tím-
um þýðir ekki annað en bjóða upp
á það bezta og fullkomnasta, og
þegar hugsað er til framtíðará-
forma um heilsubaðstað. er því
mikilvæat 'pjtr -6* iiit--. 'itnna
færust. -rianna <vo 'err Baum
gartners en alit han- e: að skit
yrði frá náttúrunnai hendi éu
hiil ákiósanlegustu alla staði nar
sé fvrii hendi jarðhitinn, heitt
vatn, gufa og leir, en í Baden-
weiler verði að flytja inn allan
leir frá Italíu, —- auk þess sé nátt-
úrufegurðin og skilyrðin til þess.
að geta verið í kyrrð og næði fjarri
glaumi heims og látum sem heilsu-
baðsjúklingum sé ákaflega mikil-
| vægt.
i En eins og Hveragerði er í dag
er þar margt í ólestri, og þó ber
að meta það, sem vel hefur verið
gert, og reynt er nú að stefna .
átt til umbóta, með holræsagerð
og fleira. Þar er þó enn svo ástatt
sums staðar í þorpinu, að óþverri
frá skolpleiðslum og salernum renn
ur út í hraunið og uppgufun frá
þessu gæti blandazt hveragufunni
og þarf ekki mörg orð um þá hættu
sem í þessu getur falizt.
Þá er athyglisvert, sem Baum-
gartner sagði, að í heilsubaðstöð-
um Þýzkalands væri sami leirinn
aldrei notaður1 oftar en einu sinni.
j Enginn gestur mundi koma aftur
I á heilsubaðstað, þar sem annar hátt
ur væri hafður á.
Ellihcimilið Ás í
Ilveragerði 10 ára.
Það er stofnað af Árnessýslu, en
rekið af Elliheimilinu Grund með
sérstökum samningi Xrnessýsla á
þarna nú 4 hús, en Grund 8 T!u
ára afmælið er í dag, en þess
i ur minnzt síðar. Þarna eru n
1 fastavistmenn og 14 sumarges.
vinna, batnar svo í hinum nýja
stað frá því, sem verið hefir, að
ekki er sambærilegt. Skápa úr
stáli hefir Ofnasmiðjan smiðað og
færast þeir til á hjólum eftir því,
hvernig þarf að komast í, og með
því móti sparast gólfrými nærri i
um helming. Skápunufn er síðan
rennt saman, þeim læst með einu
handtaki og ekki kemst ryk að
handritunum. Útbúin hafa verið
fullkomin vinnuborð handa fræði-
og vísindamönnum, hvert með sér-
stökum handritalampa. Sérstakur
eldtraustur klefi er fyrir dýrmæt-
ustu handritin. Kemst salurinn
væntanlega í gagnið i september.
Hvernig sfanda -
Framh. af bls. 1.
ir samizt við Rússa enn þá. Vit-
að er að síldarútvegsnefnd
sendi verzlunarfulltrúa Sovét-
ríkjanna símskeyti frá Siglufirði
til Reykjavikur í gær, í sani-
bandi við þær samningaumleit-
anir, sem staðið hafa yfir síð-
an í fyrra mánuði, en ekki hafði
borizt svar við því skeyti ki. 11
í dag.
I sambandi við þessa miklu
óvissu um síldarsölu til Sovét-
ríkjanna kynni mörgum að
þykja fróðlegt að heyra hvern-
ig viðskiptasamningum V'ð
Rússa er háttað yfirleitt.
Samkvæmt viðtali við dr. Odd
Guðjónsson ráðuneytisstjóra er
í gildi þriggja ára greiðslu- og
viðskiptasamningur (ramma-
samningur) við Sovétríkin, sem
undirritaður var í Moskvu
1960. Ákvæði eru um það í
þessum samningi, að samið
skuli árlega innan þessa ramma
um einstaka liði útflutnings og
innflutnings, verð og annað.
Síldarkvótinn innan rammans i
heildarsamningnum er 120 þús-
und tunnur, en upp í þann
kvóta komu yfir 30 þúsund tn.
frá fyrra ári, svo að kvótinn
í ár minnkar strax sem því
nemur.
Sem dæmi upp á breytingar,
sem orðið geta innan rammans,
er heildarsamningurinn markast
ar, má nefna að £ fyrra var
mjög lítill útflutningur til Sov-
étrikjanna á frystum fiskflök-
um, en í ár var gerður samn-
ingur um sölu á 18 þúsund
lestum þangað af þessari vöru.
Dómurinn
birtur í dag
NIÐURSTÖÐUR gerðadómsins í
síldveiðideilunni verður að líkind-
um birtur i dag. Dómararnir hafa
setið á fundum að undanförnu og
komu enn saman til fundar rétt
fyrir hádegið í dag. Var búizt við
að eftir þann fund yrðu dómsnið-
urstöður birtar.
FAXAFLÓI FISKI-
SÆLL í SUMAR
Aflinn hjá humarveiði-
bátum og dragnótabát-
um hefur verið afburða
góður í sumar, hér í
Faxaflóanum. Enn frem-
ur hefur veiðzt vel í
botnvörpu að undan-
förnu. M. a. fyllti m.b.
Hrafnkell, sem gerður
er út frá Reykjavík á
botnvörpu, sig á 3 dög-
um, en það munu hafa
verið um 50 tonn. Sigldi
hann síðan út með afl-
<mn.
I Keflavík fékk m.b. Svanur
um 60 tonn af fiskl i botn-
'örpu í síðustu viku.
í Reykjavík eru hæstu drag-
nótabátarnir búnir að fá allt
upp í 130—140 tonn, svo sem
bátarpir Jón Bjarnason, Glaður
og Geysir. Þetta er mjög góður
afli, þar sem nokkur hluti hans
er verðmætur fiskur, svo sem
koli. Hefur kolinn i Faxaflóa
verið ágætur í sumar, stór og
feitur.
í Hafnarfirði var humarveiðin
góð framan af. Aflahæstur hum-
arbátanna er Fiskaklettur, sem
hefur lagt á Iand um 100 tonn
af humar. Til samanburðar má
þeta þess, að Fiskaklettur var
Iíka á humarveiðum 1 fyrra og
var afli hans þá 38 tonn, svo
að hann er nærri þrefalt meiri
nú.
Handfærabátarnir við Faxa-
flóa hafa margir fengið góðan
afla, aðallega hefur það verið
ufsi, sem hefur verið flakaður
um borð í bátunum og saltaður.