Vísir - 16.08.1962, Blaðsíða 1
52. árg. - Fimmtudagur 16. ágúst -1962. — 191. tbl.
Boeing 707 nauBlemlir
á Lundúnaflugvelli
Þýzka Lufthansavélin af Boeing 707 gerð sem nauðlenti í fyrradag á Lundúnaflugvelli. Nef-
hjól hennar höfðu bilað og óttuðust menn að stórslys yrði, en flugmanni hennar Walter
Dofel tókst að lenda henni á nefinu eins og myndin sýnir.
Humarveiðin framlengd
báðir þar upp. Er talið eðlilegt sumar. Tveir til þrír bátar á hverj
með tilliti til atvinnu í þorpinu að um stað hafa þó fengið áminn-
þeir fái að halda áfram. Alls voru ingu, ef hlutfall annars fisks en
veitt 74 humarveiðileyfi og hefur humars hefur farið fram úr því
enginn bátur verið sviptur því í, sem reglur segja til um.
Samningar undirritaðir
um Vestur Nýju Guíneu
Humarveiðileyfin, sem út runnu
þann 15. ágúst, hafa nú verið fram
lengd til 31. ágúst, hjá þeim sem
þess hafa óskað. Hafa milli 20 og
30 bátar fengið framlengingu.
Samkvæmt upplýsingum er Torfi
Þórðarson, fulltrúi í sjávarútvegs-
málaráðuneytinu, gaf Vísi í morg-
un, hefur veiði yfirleitt verið góð
að undanförnu. Eru leyfin fram-
lengd til að koma í veg fyrir að
mikið hlé verði hjá bátunum. Ekki
er reiknað með að leyfin verði
framlengd meira en þetta.
Tveir bátar á Hornafirði hafa þó
fengið framlengingu til 15. sept.
Þessir bátar eru þeir tveir einu
sem gerðir eru út þaðan og leggja
Samningar hafa verið undirrit-
aðir um Vestur Nýju-Guineu af
fulltrúum Holiands, Indonesiu og
Sameinuðu þjóðanna. Fyrir þeirra
hönd skrifaði sjálfur U Thant und-
ir.
Samkvæmt samningunum láta
Hollendingar af yfirráðum í þess-
ari nýlendu sinni, sem lengstum
var kölluð Hollnezka Nýja-
Guinea, og fá Indonesar þau í
hendur 1. maí 1963, en frá 1. okt-
óber n. k. til þess tíma verða yfir-
Framhald á bls. 5.
Fréttin barst út um
Lundúnaflugvöll, að
uppi í loftinu yfir flug-
brautinni sveimaði risa-
stór farþegaflugvél af
gerðinni Boeing 707 frá
þýzka flugfélaginu Luft-
hansa með biluð fram-
hjól, sem ekki vildu fara
niður fyrir lendingu.
Með vélinni voru 42 farþegar,
fullorðnir og börn og níu manna
áhöfn. Það yrði óhjákvæmilegt
að reyna neyðarlendingu, reyna
að renna flugvélinni á nefinu eft
ir flugbrautinni. Eina bótin var
að flugmaðurinn Walter Dofel
var talinn frábær flugmaður.
★
Allt slökkvilið og hjálparlið
flugvallarins var kallað út. —
Slökkviliðsbílar og sjúkrabílar
stilltu sér úpp meðfram flug-
brautinni. Á meðan flaug Dofel
yfir autt svæði í grenndinni og
hellti afgangsbenzíni niður.
★
Svo kom þessi risaþota inn
yfir brautarendann lækkaði flug-
ið og stóru hjólin undir vængj-
unum snertu brautina. 65 tonn
komu þungt niður og á hverju
augnabliki mátti búast við að
vélin steyptist yfir sig og spreng
ingar og stórslys yrðu. En fyrst
tókst flugmanninum að halda
hinu hjólarlausa nefi vélarinnar
upp í loftið. Þá bremsaði hann
bæði með hjólbremsum og með
lofthemlum hreyflanna. Þotan
hægði ferðina og þá loks steypt-
ist hún á nefið að framanverðu
með ægilegum skruðningum, og
neistaflugi. En hún staðnæmdist
og innan fárra mfnútna hafði
öllum verið bjargað heilum á
húfi út úr henni.
Viðreisnin hefír tekiit vel
Dómur eins fremsta efna-
hagssérfræðings ólfunnar
★ Þróunin í íslenzkum efnahagsmálum hefir verið
mjög hagstæð síðustu tvö árin.
★ Tvímælalaust er rétt og sjálfsagt að halda þeim
viðreisnarráðstöfunum áfram sem gerðar hafa ver-
ið unz fullt jafnvægi er fengið.
★ Ef ísland nær tengslum við Efnahagsbandalagið
er ekkert því til fyrirstöðu að því verði veitt
framkvæmdalán úr Evrópubankanum til aukinna
framkvæmda hér á landi.
Þannig fórust von Mangoldt,
varaforseta Evrópubankans orð
á blaðamannafundi í gær. Von
Mangoldt hefir undanfarinn ára-
tug verið helzti forvígismaður-
inn í efnahagssamstarfi Evrópu-
þjóðanna. Árið 1952—1958 var
hann forstjóri framkvæmda-
stjórnar Greiðslubandalags
Evrópu (E. V. R.) og þegar Gjald
eyrissjóður Evrópu tók við af
Greiðslubandalaginu varð hann
forseti hans þar til hann tók við
núverandi starfi. Sem forseti
Gjaldeyrissjóðsins (European
Monetary Agreement) fylgdist
von Mangoldt náið með viðreisn
aráformum íslendinga 1960—
1962 og stofnun hans veitti þau
nauðsynlegu erlendu lán til ís-
lands í sambandi við viðreisnina.
Traustur efnahagur.
Á fundinum benti von Man-
goldt á að 1958 hefðu Frakk-
land og Tyrkland komið efnahag
sínum á fastan grundvöll með
hjálp Greiðslubandalagsins og
ári seinna hefði Spánn fram-
kvæmt viðreisn á efnahag sín-
um.
Hinar nýju efnahagslegu að-
gerðir hefðu að sínum dómi
tekizt mjög vel, eins vel og unnt
hefði verið að búast við á svo
stuttum tíma. Það er sjálfsagt
að halda þeim áfram, sagði ]
I hann einnig. Þannig ná þær loka
tilgangi sínum. Halda verður dýr j
tíðinni í skefjum og treysta efna
hag þjóðarinnar. Það er tvímæla
! laust rétta stefnan.
Von Mangoldt kvað ekki á-
stæðu til að óttast flutning fjár-
magns milli landa. Reyndin væri
Framhald á bls. 5.
i
Dr. H. K. von Mangoldt
, > *
! í I i I.IJt', i.i i. l.l