Vísir - 16.08.1962, Blaðsíða 5

Vísir - 16.08.1962, Blaðsíða 5
Fimmtudagur 16. ágúst 1962. Talið að _ VISIR — valdið húsbruna Það er talið að börn hafi í gær orðið völd að íkveikju í húsi, sem er í smíðum suður í Silfurtúni. Var Slökkvilið Hafnarfjarðar kallað út þegar eldur var laus þar. Viðbygg- ing hússins, sem eldur logaði í er talin vera ónýt en aðalbyggingunni tókst að forða. Hús það sem hér um ræðir er í byggingu, eign Óttars Proppé og er það að Faxatúni 23 í Silfurtúni. Rafmagn er ekki komið í húsið svo ekki getur verið um að ræða í- Samningar — Framhald af bls. 1. ráðin í höndum Sameinuðu þjóð- anna, og munu þau hafa þar 1000 —1500 manna gæzlulið og senda þangað 150 embættismenn til þess að taka við af hollenzkum. Kostn- að af þessu bera sameiginlega Holland og Nýja-Guinea. íbúar nýju Vestur Guineu eiga síðar að fá að greiða atkvæði um framtíð sína og fari atkvæða- greiðslan fram við eftirlit Samein- uðu þjóðanna. Samningar tókust á grundvelli tiilagna Ellsworths Bunkers fyrr- verandi bandarísks ræðismanns. „Pólitísk spila- mennska stórveldanna". í Hollandi ríkir allmikil beizkja út af þessum samningum. Þannig segir hið frjálslynda blað Alge- meen: Þessir samningar leiða það í ljós framar öðru, að enn er það valdið sem ræður í heiminum. Þessi samningsgerð á ekkert skylt við réttlæti. Holland er lítið land, hernumið í síðari heimsstyrjöld, en Hollendingar börðust áfram og lögðu bandamönnum til allan verzlunarflota sinn, en nú eru það stórveldin sem öllu ráða, og þessi samningsgerð er einn hluti stjórn- málalegrar spilamennsku þeirra, og það skiptir þau engu þótt þeir sem bíða tjón af þessu séu Hol- lendingar og íbúar Hollenzku Nýju Guineu — Papuanarnir. r I stolnum — Framhald af 16. síðu: Egilsstaða og áfram yfir Lagarfljót. í iHróarstungu óku þeir af al- faraleið inn á hliðarveg við Heið- arsel. Virðist sem þeir hafi ekkert vitað hvert þeir voru að fara, því að hliðarvegur þessi er lok- aður. Þeir komust þar að bæ, sem heitir Fremra-Sel, en þar stöðvað- ist bifreið þeirra vegna benzínleys- is. Þá gengu þeir að bænum og stálu Rússajeppa, sem stóð þar á hlaðinu og óku aftur til baka upp að þjóðveginum. En bóndinn í Fremra Seli hafði orðið þeirra var, hringdi í Heiðarsel og bað bónd- ann þar að stöðva þá. Tókst hon- um að gera það. Jafnframt var lögreglunni á Egilsstöðum gert við- vart um ferðir þeirra. Farið var nú aftur með piltana að Fremra Seli. Þar settust þeir upp í Skoda-bílinn. Komu þeir honum aftur í gang og óku að Heiðarseli, þar sem þeir keyptu benzín, en rétt í því kom lögregl- an og hirti þá. Voru þeir yfirheyrð ir og viðurkenndu brot sín. Síðan voru þeir fluttir til Seyðisfjarðar. kveikju út frá því. Skömmu áður höfðu börn sézt rétt hjá húsinu með eldspýtur og er grunað að þau geti í óvitaskap hafa valdið íkveikjunni. Kviknað hafði í hálmi og tómum glerkistum, sem geymdar voru í viðbyggingu hússins og ef dregizt hefði lengur að slökkva eldinn gat svo farið að allt húsið brynni. Atburður þessir sýnir þörfina fyr- ir að koma upp brunaboða 1 þessu sem og fleiri vaxandi úthverfum f grennd við Reykjavík og Hafnar- fjörð. Nokkrar dýrmætar mínútur glötuðust til slökkvistarfs vegna þess að hringt var til slökkviliðsins í Reykjavík, sem siðan hringdi til slökkviliðsins í Hafnarfirði, þar sem Silfurtún er á svæði þess. Lítil síldveiði í nótt Síldveiði var lítil s.l. sólarhring. 32 skip komu inn með samtals 13360 mál og tunnur, aðallega til Austfjarðahafna. Veiðin var mest út af Dalatanga og Gerpi, en síldin var misjöfn og sumt var smásíld. Reynt var þó að salta eftir því sem hægt var. Til Austfjarðahafna komu 25 Viðreisnin — Framhald af bls. 1. sú að þjóðin sem fengi erlent f jármagn auðgaðist miklu meir á því, í mynd vinnulauna o. fl. en sú þjóð sem fjármagnið legði til. Framkvæmdalán. Þá kvað hann ekkert því til fyrirstöðu að ísland fengi fjár- hagslega aðstoð úr Fram- kvæmdabanka Evrópu í Brussel ef landið næði tengslum við Efnahagsbandalagið. Það væri hlutverk bankans að veita þjóð- um bandalagsins lán til þess að byggja upp atvinnuvegi sína og auka velmegun. Gruoað— Framh. af 16. síðu: annars staðar. Er þar um að ræða níu tegundir og hver þeirra með ýmsum afbrigðum. Tetracyclin er að öðrum talið mikilvægt og gott efni í baráttunni gegn bólgusýklum. Vísir hefur aflað sér upplýsinga um að fúkkalyfið tetracyclin hefur verið mörg ár til sölu í lyfjabúðum hér á landi. Það er einnig selt und- ir heitunum achromycin og steclin. Það hefur verið talið mjög gott og áhrifaríkt og var litið á það sem nokkurs konar undralyf, þegar það kom fyrst fram. Það sýnir nokkuð hve mikilvægt það er talið, að sjúkrasamlagið hefur borgað % af verði þess. skip með 11250 mál og tunnur, 4 skip fengu smáslatta af síld við Kolbeinsey í nótt og fóru með hana til Siglufjarðar, samtals 910 mál og tunnur. Þrjú skip komu til Raufarhafnar með 1200 mál og tunnur, en þangað hefur lítil sem engin síld borizt undanfarna sól- arhringa og megnið af söltunar- fólkinu er farið þaðan á brott. Eftirtalin skip fengu 500 mál og tunnur eða meira: Freyja GK 500, Steinunn 650, Sigrún 700, Seley 750, Guðmundur Þórðarson RE 500, Skírnir AK 500, Hvanney 500, Sigurbjörg 500, Hafrún 1000, Höfrungur II 800, Hrönn II 500 og Gjafar 750. í morgun var yfirleitt hægviðri á miðunum, samt nokkur kvika á suðursvæðinu fyrir Austfjörðum og á Grímseyjarsvæðinu var þoka. lldur I skála og skúr Slökkviliðið í Reykjavík var kvatt upp að Geithálsi í fyrrinótt vegna elds í sölu- eða veitinga- skála sem þar er. Kvaðningin barst nokkru eftir kl. 1 í fyrrinótt, en þegar slökkvi- liðið kom á staðinn var búið að kæfa eldinn. Skálinn hafði sviðn- | að mikið að innan og bæði eldur og reykur valdið talsverðum skemmdum. , Talið var að eldsupptökin hafi verið út frá olíuo'fni sem oltið hafði um koll. í gærdag var slökkviliðið í Hafnarfirði beðið um aðstoð við að slökkva eld í bílskúr f Silfur- túni. Skúrinn var alelda þegar slökkviliðið kom á staðinn og brann hann með því sem í honum var. Þarna var talið að kviknað hafi £ hálmi f skúrnum. ► Aðalritari Kommúnistaflokksins í Rostovhéraði, Sovétríkjunum, A. Basov að nafni hefur verið vikið frá störfum, að því er frétt í Pravda hermir. iorðntenn fylgfast mei viðræðuns unt fiskimúl Utanríkisráðuneyti Noregs hefur stofa Efnahagsbandalagsins leggur sent skrifstofu Efnahagsbandalags- áherzlu á að hér sé um algerar ins í Briissel orðendingu þess efn- undirbúningsviðræður að ræða. Ekk is, að Norðmenn óski þess að fá að ert uppkast og engar tillögur hafa fylgjast með viðræðum þeim sem enn komið fram um það hvernig fram eiga að fara á næstunni um eigi að haga þessum málum, en meðhöndlun fisksöluvandamálanna viðurkennt er að sjávarútvegsmál í Efnahagsbandalaginu. j hljóti að fá sérstaka afgreiðslu í Áður hafði verið tilkynnt að1 bandalaginu með líkum hætti og fiskimálaviðræðurnar hæfust f, landbúnaðarmálin. haust, sennilega í október. Skrif-1 5 Hafnfirzkir slökkviliðsmenn sprauta á eldínn í húsinu í Silfurtúni. Flugvélin — Framhald af bls. 16. irhugaðar á vélinni. Bæta þarf í hana ýmsum tækjum, sem nauðsynleg eru við gæzlustörf. Er ætlunin að taka úr henni mikið af sætunum og nota það rúm sem þannig fæst undir ný tæki og kortaklefa. Til þess að aðstaða sé góð til mælinga, þarf mikið pláss undir kortaklefa. Telur Land- helgisgæzlan að ekki nægi minni vél en þessi ef vel á að vera. Á vélinni verður sex manna áhöfn. Verða það tveir flug- menn, einn vélamaður, einn loft skeytamaður og tveir skip- stjórnarmenn. Þrír þeir síðast- nefndu, munu verða til skiptis á varðskipum og flugvélinni, eins og tíðkast hefur. Kostnaður eykst lítið. Kostnaður við rekstur vél- arinnar er ekki talinn verða að ráði meiri en við rekstur Rán- ar. Stafar það meðal ánnars af því að sjóflugvélar eru dýr- ari í rekstri en aðrar, auk þess sem þessi flugvél lýkur sömu störfum og Rán á mun skemmri flugtíma. Er áætlað að rekstur flugvélarinnar muni kosti álíka mikið og að gera út 200 tonna varðskip. Vél þessi er byggð í Banda- ríkjunum árið 1944 og var upphaflega notuð af United Airlines. Var kaupverð hennar hingað 127 þúsund dollarar. Flugstjórar á vélinni á leið- inni heim, voru þeir Bragi Norðdahl frá Flugfélagi Is- lands og Guðjón Jónsson frá Landhelgisgœzlunni. Loft- skeytamaður var Garðar Jóns- son og vélamenn þeir Gunnar og Ingi Loftssynir. Vélin hefur einkennisstafina TF —SIF og má geta þess að Sif var kona Þórs, en Rán var hins vegar gyðja sjávarins. Myndin sem fylgir greininni er af flugstjóranum á nýju vélinni, Guðjóni Jónssyni. Vélin sést í bak- sýn og inni í skýlinu sést gamlá ; vélin Rán. StoS 2p isr. peningum Brotizt var í nótt inn í bygg- ingavöruverzlun J. Þorlálcsson & Norðmann í Skúlagötu. Þjófurinn hafði komizt mn með því að brjóta glugga. Það eina sem hann hafði upp úr krafsinu voru um 50 tveggja krónu pen- ingar. Annars var ekki saknað úr verzluninni Iþróttir — Framhald af bls. 2. hjá Heimi, sem reyndi allt hvað hann gat til að bjarga með úthlaupi, en of seint. Valsmenn áttu eina tækifærið, er eftir var og var það þegar Skúli komst upp kantinn en skaut í stað þess að leggja boltann út á mið- herja eða innherja, sem voru vel staðsettir. KR-INGAR ÓHEPPNIR Ekki verður annað sagt en að KR-ingar hafi verið óheppnir í leik þessum. Fyrst að missa 4 varnar- menn sína og síðan að tapa leik, sem þeir áttu að mestu og „rnissa" þar með ,,af vagninum", eða svo gott sem í fslandsmótinu. Vörn KR verður ekki sökuð um mörkin, samt sem áður, hún stóð sig mjög vel. Ellert Schram lék framvörð fyrir Garðar og var hann langbezti maður vallarins, lék mjög yfirvegað og lagði góða bolta fyrir vörnina. Heimir var og góður í markinu og bakverðirnir Hreiðar og Kristinn voru góðir. Framlínan var sundurlausari og náði einhvern veg inn ekki saman. Örn Steinsen var aftur með og er greinilega f fram- för. Gunnar Felixson var annars hættulegasti framlínumaðurinn með mörg góð skot, en Sigurþór var á köflum allgóður. Valsmenn áttu ekki góðan leik megnið af leiktímanum, en síðustu mínúturnar voru góðar og baráttu- viljinn ótakmarkaður. Björgvin Her mannsson átti oft góð tilþrif en var óöruggur. Vörnin var góð, og fram- verðirnir í síðari hálfleik. I fram- línunni var Skúli beztur. Dómari var Baldur Þórðarson og dæmdi vel, en átti oft til að flauta of snemma með þeim afleiðingum að andstæðingarnir högnuðust á brotum. — jbp — Mrnlm sigraði léiss ieðkina Eins og sagt var frá í blaðinu í gær, eru nokkrir leikir eftir í hinu skemmtilega og spennandi íslands- j móti í knattspyrnu (yngri flokkarn- ir) í gærkveldi léku Valsmenn við | Víking í 2. flokk og sigraði Valur í með 3:0.- Þeir verða því að Ieika ; aukaleik í riðlinum við Vestmanna | eyjar, sem eru jafnir þeim að stig- um. Sá leikur fer fram fljótlega, þvf ekki má draga þetta mót leng- ur en gert hefur verið. I 3. flokk, lék Valur einnig við Víking og sigr uðu með 6:0 og tryggðu sér þar með sigur í sínum riðli, og rétt til að leika ' úrslitaleikinn. Þessi 3. flokkur Vals varð Reykjavíkur- og Islandsmeistari 1961.

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.