Vísir - 16.08.1962, Page 13
Fimmtudagur 16. ágúst 1962.
VISIR
13
Hárbönd
(Jackie-look)
í mörgujn litum,
nýkomin.
Fallegí þægileg fyrir
hárið.
Tilvalin við
íþróttaiðkanir.
SNYRTIVÖRUBÚÐIN
LAUGAVEGl 76 . Sími 12275
LONDON og PARÍS
11 daga ferð: 8.900 kr.
Innifalið: ferðir, fæði og gistingar.
Brottför: 4. september.
Fararstjóri: Einar Pálsson, skólastjóri.
Allar nánari upplýsingar á skrifstofu okkar.
L&L
F erðaskrif stof an
LOND OG LEIÐIR H.F.
Tjarnargötu 4.
Símar 20800 og 20760
Háseta
vantar á dragnótabát. Sími 10344.
Sendibifreið
Ford Thames ’56 sendibifreið í úrvalsstandi
og vel útlítandi, með hliðarrúðum, til sýnis
og sölu að Hagamel 43, sími 12309.
Útför móður okkar,
ÞORBJARGAR SIGURÐARDÓTTUR
Drápuhlíð 23,
fer fram frá Fossvogskirkju föstudaginn 17. ágúst kl.
1.30 e. h. — Blóm vinsamlegast afþökkuð, en þeim, sem
vildu minnast hennar, er bent á líknarstofnanir.
Hanna Ingvarsdóttir, Þorkell Ingvarsson,
Guðbjöm Ingvarsson.
Einn af grímuklæddu mönnunum um borð í sjóræningjaskipinu Radio Mercur. _
Vopnaðir grímumenn í
sjóræningjaskipi við Höfn
í byrjun ágústmánaðar var stöðv
uð starfsemi „sjóræningjaútvarps-
ins“ Radio Mercur, sem hafði bæki-
stöð á skipi í Eyrarsundi utan við
landhclgi. Höfðu Danir þá sett lög
sem bönnuðu starfsemi hennar. Fór
allt starfslið þá burt af skipinu
eftir mikið kveðjuhóf. En skipið lá
eftir sem áður fyrir festum á sund-
inu.
1 fyrradag gerðust hins vegar
þau undarlegu tíðindi, að sást til
mannaferða i skipinu. Þetta voru
grímuklæddir menn og voru þeir
vopnaðir skammbyssum. Hefur
þetta fyrirbæri valdið mikilli undr-
un í Danmörku.
Þegar þetta spurðist fóru frétta-
menn frá danska blaðinu BT út að
skipinu og ætluðu að stíga um borð,
þótt stórt skilti hefði verið sett á
skipið þar sem stóð „Aðgangur
bannaður“.
En þeir komust ekki um borð í
skipið því að nokkrir grímuklæddir
menn stóðu þar og ógnuðu þeim
með skammbyssum. — Megum við
ekki koma um borð? spurðu frétta-
mennirnir.
— Es ist verboten, hrópaði einn
hinna grímuklæddu á þýzku. —
Það er bannað. Þeir sýndu skamm-
byssurnar. Gríma þeirra var ým-
ist stór hjálmur logsuðumanna, eða
stór sólgleraugu en vasaklútur fyr-
ir neðri hluta andlitsins.
— Þið verðið að fara í burt,
sögðu grímumenn við fréttamenn-
ina. Við verðum að fara að vinna.
— Og við hvað ætlið þið að
vinna?
— Við að senda út tónlist. Radio
Mercur heldur áfram starfseminni.
Þykir þessi lýsing blaðsins BT
af vopnuðum grímumönnum all ó-
hugnanleg.
Auglýsið í Vísi
Pbrstorp
— decorative laminate
Sænska harðplastið
ÁVALLT TIL í MIKLU LITAÚRVALI.
SMIÐJUBIÍÐIN
við Háteigsveg — Sími 10033.