Tölvumál - 01.11.1992, Blaðsíða 5

Tölvumál - 01.11.1992, Blaðsíða 5
Nóvember 1992 Frá formanni Halldór Kristjánsson, formaöur SÍ Vetrarstarfiö Þegar þetta er ritað eru tvær ráðstefnur að baki á vetrarmisseri og báðar vel sóttar og vel heppnaðar. Ekki skal því neitað að ég hafði af því nokkrar áhyggjur að sú urnræða sem verið hefur urn efnahagsástandið myndi hafa áhrif ásóknáráðstefnurfélagsins. Það sem af er bendir ekki til að svo verði. Engu að síðurhefur stjórn ákveðið að halda þátttökugjöldum óbreyttum á þessu starfsári eins og því síðasta, þannig að þau hafa þá ekki breyst í tvö ár. Er það von okkar að félagsmenn kunni að meta þetta og láti þátttökugjald ekki aftra sér frá þátttöku í atburðum á vegum félagsins. ET-dagurinn 1992 Framundan er ET-dagur SÍ, en hann verður haldinn 4. desember næstkomandi. Þessi ráðstefna er orðinn fastur liður í lífi fjölmargra félagsmanna og ekki hægt að loka árinuánhennar! Dagskráin verður fjölbreytt að vanda og hún og léttu veitingarnar í lok ráðstefnunnar eiga að stuðla að því að þátttakendur fari bjartsýnni af ráðstefnunni en þeir komu. Ársfundur 1993 Við undirbúning ráðstefnunnar hefurkomið í ljós að mikil gróska er í srníði hugbúnaðar og kerfa til útflutnings og ástæða til þess að geraþví skil sérstaklega. Það væri því verðugt verkefni að kynna á næsta ársfundi okkar þann vaxtarbrodd sem er í smíði og útflutningi á hugbúnaði og þekkingu í tölvugeiranum og fjalla um þá möguleika sem kunna að leynast þar fyrir nýtt framtak. Faghópar um meginverkefni Stjórn hefur samþykkt að leggja áherslu á stofnun faghópa um sérstök málefni upplýsinga- tækninnar. Þegar hefur verið stofnaður hópur um hlutbundna hugbúnaðargerð og 22. október síðastliðinn hélt stofnfund faghópur um öryggi og end- urskoðun tölvukerfa. Hafinn er undirbúningurað stofnun faghóps um einmenningstölvunotkun og verður fljótlega boðað til stofnfundar hans. Þá er stjórn ávallt tilbúin til þess að standa að stofnun faghópa með félagsmönnum sem hafa áhuga á að mynda hóp um ákveðið málefni. Reglur fyrir slíka faghópaeru birtaríþessutölublaði Tölvumála. Það er mat okkar í stjórninni að með stofnun faghópa náist betur að sinna sérþörfum félagsmanna og eru reglurnar sniðnar að því. Er samtakagleðin okkur fjötur um fót? Því er ekki að neita að ég hefi nokkrar áhyggjur af því hvað við, sem störfum að upplýsingatækni, erum dugleg við að stofna alls kyns samtök um stór málefni sem smá. í sumar hafa verið stofnuð tvenn eða þrenn ný samtök um málefni upplýsingatækninnar og á liðnum árum hafa verið stofnuð nokkur samtök. Ekki vil ég dærna um gildi allra þeirra samtaka sem stofnuð hafa verið en óneitanlega er kröftum okkardreiftmeðþessu. Aðmínu mati hefðu sum þessara samtaka rúmast sem faghópar innan Skýrslutæknifélagsins og styrkt það sem félag. Á hinn bóginn er og á það að líta að Skýrslutæknifélagið getur ekki verið allt fyrir alla innan upplýsingatækninnar. Það leiðir af þeirri breidd sem er í félaginu að stundum stangast hagsmunir á. Þessi breidd er urn leið aðalstyrkur félagsins og hægt er að leiða saman andstæða póla innan vébanda þess. Skýrslutæknifélagið 25ára1993 Á næsta ári verður SI 25 ára. Skipuð hefur verið afmælisnefnd og sitja í henni eftirtaldir einstaklingar: Anna Kristjánsdóttir, varafor- maður SI Vilhjál mur Þorsteinsson, stjómar- maður í SI Páll Jensson, fyrrverandi for- maður SÍ Sigurjón Pétursson, fyrrverandi formaður SÍ og Lilja Ólafsdóttir, fyrrverandi gjaldkeri SÍ og fyrrverandi formaður NDU Stefnt er að því að gera árið 5 - Tölvumál

x

Tölvumál

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tölvumál
https://timarit.is/publication/239

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.