Tölvumál - 01.11.1992, Qupperneq 13
Nóvember 1992
vísað í. Það er einnig ljóst að
setja verður ákveðnar reglur um
einstaka hluti búnaðarins. Þar
mætti nefna eftirfarandi:
Hávaði frá búnaði, lyklaborð sé
eftir ákveðnum staðli, skjáir séu
eftir ákveðnum gæðakröfum, séu
t.d. lággeisla. Hér þurfurn við að
leita til nágrannaþjóða okkar og
þá sérstaklega til Norðurlanda.
Hér þarf einnig að passa að setja
ekki það sérstakar reglur sem
erfitt sé að uppfylla og getur þar
af leiðandi verkað sem sam-
keppnishamlandi.
Erfitt getur verið að setja þessar
reglur og verðum við að treysta
þeim aðilurn í ríkiskerfinu sern
sjá um tölvukaup ríkisins til þess
að setja þær. Meginreglan verð-
ur þó að vera sú að öllum sé ljóst
að hverju gengið sé, reglur séu
skýrar og minnka áhættuna á því
að hægt sé að hygla einhverjum
og hafa í franimi ófagleg vinnu-
brögð. Fagleg vinnubrögð verða
að ráða. Öll umræða um ófagleg
vinnubrögð ráðgjafa verður að
vera byggð á rökum. Að sjálf-
sögðu eru ráðgjafa ekki hafnir
yfir gagnrýni. En umræða með
órökstuddum fullyrðingum er
einungis til skaða fyrir alla aðila.
Tölvumarkaðurinn hér á landi er
mjög ungur að árum og má segja
að í dag sé PC markaðurinn að
komast á unglingsárin. Mörg
fyrirtæki hafa horfið undanfarin
ár og má segja að í dag séu
einungis 4 stór fyrirtæki á mark-
aðnum og nokkur minni fyrirtæki.
Hvort þetta er sú mynd sem við
munum sjá í framtíðinni skal
ósagt látið, en það er ljóst að
línur á þessum markaði hafa
skýrst verulega undanfarin ár.
Stefnumótun ríkisins,
á ríkið að hafa
opinbera stefnu?
Ég tel nauðsynlegt að ríkið hafi
fastmótaða stefnu í sínum tölvu-
málum. Þetta er bæði nauðsyn-
legt gagnvart hug- og vélbúnaði.
Tryggja verður þó að ekki sé
hætt á einokun og aðstöðumun
milli einstakra seljanda og/eða
framleiðanda. Mjög mikilvægt
er að halda fullri samkeppni milli
bjóðenda. Fylgja þarf stöðlum
og kerfum sem má kalla opin
kerfi, forðast kerfi sem eru Iokuð.
Dæmi um lokuð kerfi eru t.d.
IBM System 36 eða Digital VAX
tölvur. Þar er viðkomandi lok-
aður af í einu umhverfi og getur
einungis keypt búnað frá ákveðn-
um aðila sem síðan getur verð-
lagt búnaðinn samkvæmt eigin
Mynd 1. Nettenging við háhraðanet Pósts og síma.
13 - Tölvumál