Tölvumál - 01.11.1992, Blaðsíða 20
Nóvember 1992
skilja á tvíþættan hátt. Annars
vegarerþað umfjöllun um lands-
kerfi sem embætti ríkisskattstjóra
er ekki sátt við. Hver á að
skilgreina landskerfi? Einn fyrir-
lesari, Stefán Ingólfsson í
RUTnefnd, sagði hér áðan að
það þyrfti að korna á fót sérstakri
nefnd til að skilgreina landskerfi.
Hugtakið er því óskilgreint af
hálfu ríkisvaldsins. I ársskýrslu
tölvufyrirtækisins er talað um að
kerfi ríkisskattstjóra séu lands-
kerfi og að öll landskerfi séu
samtengd og sæki upplýsingar
hvert til annarra. Hvaðan hefur
fyrirtækið fengið heimiid til að
skilgreina landskerfi með þessum
hætti? Hefur fyrirtækið eitthvað
sérstakt leyfi til þess að annast
skilgreiningu þeirra? Varla. Þar
að auki er það skoðun ríkis-
skattstjóra að kerfi embættisins
séu í heild sinni ekki nein sérstök
landskerfi. Ákveðnir hlutar kerf-
anna eru opinber upplýsingakerfi
en aðrir hlutar ekki. Hafa þarf í
huga að ríkisskattstjóra er trúað
fyrir skattframtölum og það er
grundvallaratriði að framteljandi
sem skilar inn framtali sínu megi
vita það að það eru engir aðrir
en skattyfirvöld sem hafa aðgang
að því. Staðhæfing um samteng-
ingu og rniðlun upplýsinga er því
verulega misvísandi. Ut frá
þessum sjónarhóli er jafnvel
ástæða til þess að hafa gögnin
hjá RSK til að tryggja öryggi.
Hins vegar hefur fyrirtækið farið
í gang með að skilgreina ný kerfi
ánvitundarviðskiptavinarinssem
er óneitanlega mjög sérstakt en
kemur væntanlegaekki oftarfyrir.
Niöurstööur
Dreifð gagnavinnsla í stað tölvu-
miðstöðvar er framtíðin. Við
teljum að það gefi meiri mögu-
leika og hagkvæmni, skapi betri
þjónustu, meira sjálfstæði og
annað notendaumhverfi. Stór
tölvukerfi eru í eðli sínu fráhrind-
andi þegar notandi notar samtímis
önnur kerfi. Ut af fyrir sig kallar
það eitt á að hraða þessu máli.
Menn geta dregið ákveðnar
ályktanir af fyrirlestri þeim sem
hér hefur verið fluttur. Ég held
að það sé alveg skýrt að embætti
ríkisskattstjóra stefnir að því að
draga verulega úr viðskiptum við
Skýrsluvélar ríkisins og Reykja-
víkurborgar en það er sú tölvu-
miðstöð sem embættið hefur átt
hvað mest viðskipti við. Rökin
fyrir því eru fyrst og fremst pen-
ingalegs eðlis. Við teljum skv.
útreikningum ráðgjafa okkar að
það sé unnt að lækka kostnaðinn
verulega með breyttum aðferð-
um. Við gerurn okkur hins vegar
grein fyrir því að áfram verði
ákveðinn kostnaður við rekstur
tölvukerfa hjá miðlægum tölvu-
miðstöðvum, það er óhjákvæmi-
legt.
Eftirmáli
Greinarhöfundur hefur á undan-
fömum vikum orðið var við að
fyrirlestur þessi og umræða sem
varð samhliða honum í fjölmiðl-
um hafi skapað óróleika hjá
starfsmönnum SKÝRR. Vissu-
lega var sett fram gagnrýni á
SKÝRR á ráðstefnu Skýrslu-
tæknifélags Islands þann 24. 09.
1992. Ekkierþóósennilegtaðsá
órói hefði verið minni hefðu
fleiri starfsmenn SKÝRR en einn
sótt ráðstefnuna og hlýtt á
fyrirlesturinn í stað þess að heyra
hann affluttann. Kjarni þeirrar
gagnrýni sem fram var sett var að
leita þyrfti nýrra leiða til að lækka
kostnað. Ekki væri með nokkru
móti unnt að halda áfram á sömu
braut. Um þá afstöðu RSK að
lækka verði kostnað vita stjórn-
endur SKÝRR mæta vel. Unnið
hefur verið að tiltekinni hagræð-
ingu, undirbúningur samvinnslu
stendur yfir og leitað er leiða til
að lækka kostnað við hugbún-
aðargerð. Urn þetta allt hefur
samstarf og samvinna við starfs-
menn SKÝRR verið með ágæt-
um. RSK er það einnig ljóst að
starfsmenn SKÝRR hafa á
erfiðum stundum undanfarinna
ára beinlínis unnið þrekvirki við
að koma nýjum kerfum á fót,
þegar tími hefur verið af skomum
skammti. En betur má ef duga
skal og þýðingannikið er að
fyrirtæki eins og SKÝRR leiti
stöðugt allra leiða til að kostn-
aður viðskiptavina verði sem
minnstur. Það er órökrétt í þessu
sambandi að bera saman kostnað
við erlendar tölvumiðstöðvar.
Verður ekki séð að tölvukostn-
aðurinn verði eitthvað rninni við
það auk þess sem allsendis óvíst
er að slíkur samanburður sé
yfirhöfuð marktækur. Nær væri
fyrir SKÝRR að lækka tilkostnað
frekar en að sóa fjármunum í
samanburð sem þennan sem enga
þýðingu hefur og er afar ósann-
færandi. Fyrirtæki eins og
SKÝRR verður að leita allra
leiða til að auka hagkvæmni og
slíkt er SKÝRR vel mögulegt ef á
því er áhugi.
Þetta var inntakið í gagnrýninni á
SKÝRR og urn leið áskorun urn
að gera betur. SKÝRR verða
eins og aðrir að kunna að taka
gagnrýni og þurfa að bregðast
við henni með jákvæðum hætti,
einkum þegar hún kernur frá
einurn stærsta viðskiptavini fyrir-
tækisins, þannig verður unnt að
skapa nýjar forsendur til sam-
starfs. Stjómendur SKÝRR hafa
sagt að verkin muni tala, við-
brögð fyrirtækisins verði að laga
sig að breyttri tækni og að
SKÝRR sé það sem viðskipta-
vinurinn segir að þær séu. Ef
það verður þurfa starfsmenn
SKÝRR ekki að kvíða frarn-
tíðinni.
20 - Tölvumál